Æskan og Hesturinn 2010 – FRESTAÐ!
29. apríl 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Æskulýðsstarf
Stórsýningin Æskan og Hesturinn verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðumá Sauðárkróki, laugardaginn 1. maí. Þar mæta börn og unglingar frá hestamannafélögum á Norðurlandi og leika listir sínar.
Dagskráin er fjölbreytt og spennandi. Þórarinn Eymundsson tamningameistari og kvikmyndastjarna með meiru kemur og setur sýninguna.
Meðal atriða sem verða á sýningunni: Fimleikar á hesti, munsturreið og hindrunarstökk. Einnig verður þekkt leikrit sett á svið, riddari og prinsessur mæta í fullum skrúða, trúðar leika listir sínar og margt fleira. Hinn eini sanni MAGNI mætir á svæðið og skemmtir áhorfendum.
Sýningarnar verða tvær, fyrri kl: 13:00 og síðari kl: 16:30
Sýningin er unnin í sjálfboðavinnu og styrkt af fyrirtækjum.
Aðgangur ókeypis!



