Æskan og hesturinn 2010
24. mars 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Æskulýðsstarf
Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin 1.maí nk.
Þeir krakkar sem ætla að taka þátt í sýningunni eiga að skrá sig í síðasta lagi á sunnudaginn 28.mars hjá reiðkennurum eða í síma 8472685 Stína.
Krakkar athugið!
Reiðkennsla fellur niður laugardaginn 27.mars en verður samkvæmt venju á sunnudaginn 28. mars.
Í staðinn býður Skotta-film ykkur í bíó á laugardaginn, á myndina Kraftur, þið megið taka mömmu eða pabba með.
Það verða tvær sýningar kl: 11:00 og 13:00.
Þið pantið miða hjá Stínu í síma 8472685 fyrir laugardag.
Stjórnin.



