Íþróttamaður Skagafjarðar

desember 31, 2009 - Kristin  
Tilheyrir Almennt efni

Bjarni Jónasson félagi í hestamannafélaginu Léttfeta stóð sig með miklum ágætum á árinu 2009. 

Keppti hann og sýndi hross víða, bæði hérlendis og erlendis.   Allsstaðar komst hann í úrslit og oftar en ekki hafði hann sigur.

Helstu afrek hans i íþróttagreinum hestamennskunnar voru eftirfarandi:

  • Héraðsmót UMSS 1.sæti tölt
  • Fjórðungsmót Vesturlands 3.sæti tölt og valinn knapi mótsins.
  • Íslandsmót í hestaíþróttum 6.sæti fjórgangur, 5.sæti tölt og 1.sæti sameigilegur árangur í fjórgangsgreinum.
  • Fákaflug 1.sæti tölt.
  • Þýska skeiðmeistaramótið 1.sæti 250m. skeið.

 Auk þessa var Bjarni með mjög góðan alhliða árangur og má þar helst nefna:

  • Sigraði bæði A og B flokk hjá Léttfeta, sigraði bæði A og B flokk á Fákaflugi.
  • Sigraði B flokk á Fjórungsmóti Vesturlands.

Hann var kjörinn kynbótaknapi Skagafjarðar og útnefndur sem einn af fimm bestu gæðingaknöpum Íslands 2009.  Einnig sýndi hann hryssu í hæsta hæfileikadóm í heiminum árið 2009.

 Bjarni er íþróttamaður góður,  algjör reglumaður og kemur ætið vel undirbúinn til keppni.  Hann er vel að titlinum Íþróttamaður Skagafjarðar kominn.

Gleðileg Jól !

desember 24, 2009 - Kristin  
Tilheyrir Uncategorized

Léttfetafélagar   

        Gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár. 

                   Jólakveðja

Mót 2010

desember 18, 2009 - Kristin  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Þá er búið að ákveða mótadaga fyrir Léttfeta árið 2010.

Firmakeppnin verður haldin 22.maí.       Félagsmót og úrtaka fyrir landsmót verður 12.júní.

 Einnig er rétt að geta þess að Fákaflug verður haldið um verslunarmannahelgina.

Af stað. . . !

desember 2, 2009 - Kristin  
Tilheyrir Almennt efni

Þá er síðan okkar að feta af stað og þá er bara að vera dugleg að nota flipann   “Senda inn efni”  til að koma á framfæri því efni sem okkur varðar og vera virkir þáttakendur þannig að sem flestum okkar gagnist þessi síða. 

Hér til hægri er gluggi sem heitir “póstlisti Léttfeta” þar er hægt að skrá póstfangið sitt og fá send skilaboð í pósthólfið þegar nýtt efni kemur á síðuna.    

Kveðja Kristín

Í loftið

Þá er loks komið að því að heimasíða okkar Léttfetsfélaga er tilbúin til notkunar. Vonandi verður þetta lifandi síða þar sem starfsemi félagsins verður kynnt hverju sinni. Umsjónarmaður síðunar verður Kristín Ármannsdóttir. Nefndir félagsins eru sérstaklega hvattar til að kynna starfsemi sína á síðunni. Öllum er frjálst að senda inn efni sem þeir telja eiga erindi til félagsmanna. Verum virk, nýtum okkur síðuna. Kveðja: Guðmundur Sv.