Árshátíð Léttfeta
febrúar 26, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Árshátíð Léttfeta verður haldin í Tjarnarbæ laugardagskvöldið 6. mars 2010.
Félagar eru kvattir til að mæta og taka með sér gesti. Húsið opnar kl 20:00 en borðhald hefst kl 20:30.
Í boði verður matur og gaman frá meistara Óla á Hellulandi og væri það óðs manns æði að telja það allt upp.
Engin drykkjarföng verða seld á staðnum. Skemmtiatriði verða að venju t.d. pistill ferðanefndar, leikrit, söngur og trall.
Síðan spilum við hljómdiska fram eftir nóttu. Herlegheitin kosta aðeins 3000 kr. per haus.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir miðvikudagskvöldið 3. mars til Steinunnar í síma 865-0945 eða Geira í síma 894-5832.
PS hátíðin verður haldin:-)
Sýnikennsla í byggingadómum hrossa
febrúar 26, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Fyrirhugað er að halda sýnikennslu í byggingadómum hrossa í Reiðhöllinni Svaðastöðum þriðjudaginn 23. mars næstkomandi kl 20:00. Byrjað verður í anddyrinu og síðan fært sig inn í höll. Leiðbeinandi verður Víkingur Gunnarsson kynbótadómari og kennari við Háskólann á Hólum.
Fræðslunefnd Léttfeta
Fundur um hross og hrossarækt
febrúar 25, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ og Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda verða með fund í anddyri reiðhallarinnar Svaðastaða þriðjudagskvöldið 2. mars næstkomandi kl 20:30.
Aðgangur ókeypis og kaffi á könnunni.
Hrossaræktarsamband Skagafjarðar – Leiðbeiningamiðstöðin
http://www.bondi.is/pages/23/newsid/886
Youth Cup í Danmörku
febrúar 24, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Æskulýðsnefnd LH minnir áhugasama á að skila inn umsóknum á Youth Cup sem verður haldið 10.- 18. júlí nk. Mótið er haldið í Kalo í Damörku. Útvegaðir verða hestar ef óskað er. Skilyrði fyrir þátttöku: Reynsla í hestamennsku, enskukunnátta, keppnisreynsla í íþróttakeppni, sjálfstæði, geta unnið í hóp og reglusemi.
Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu LH undir æskulýðsmál og hjá æskulýðsfulltrúum LH og félaganna.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1. mars nk.
.
Sjá nánari upplýsingar undir ÆSKULÝÐSMÁL á vef LH http://www.lhhestar.is/
.
Heimasíða mótsins: www.youthcup2010.dk . Mótsstaðurinn: www.kalo.dk
Breytingar á hópum í helgarstarfinu !
febrúar 23, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Unglingaráð, Æskulýðsstarf
Áríðandi - Breytingar á hópum – Allir að skoða!
Krakkar endilega skoðið í hvaða hóp þið eruð fyrir helgina og klukkan hvað þið eigið að mæta – látið berast til annarra krakka sem eru í helagarstarfinu að skoða líka hvenær þeir eiga að mæta.
Enn og aftur viljum við minna á hádegishressinguna sem er seld í Tjarnarbæ í hádeginu, laugardag og sunnudag. Matseðill auglýstur í höllinni.
Allur ágóði er til styrktar helgarstarfinu!
| Laugardagur | Sunnudagur | |||
| Reiðvöllur | 1 | 2 | 1 | 2 |
| 09:00-09:40 | A | B | A | B |
| 09:50-10:30 | C | D | C | D |
| 10:40-11:20 | E | F | E | F |
| 11:30-12:10 | G | H | G | H |
| Matur | ||||
| 12:50-13:30 | I | J | I | J |
| 13:40-14:20 | K | L | K | L |
| 14:30-15:10 | M | N | M | N |
| A-hópur | H-hópur | |||
| Bryndís Rún Baldursdóttir | Björn Ingi Ólafsson | |||
| Elín Magnea Björnsdóttir | Guðrún Aníta Hjálmarsdóttir | |||
| Elínborg Bessadóttir | Sandra Eiðsdóttir | |||
| Kristín Líf Linder | Katarína Leifsdóttir | |||
| Steindóra Ólöf Haraldsdóttir | Sverrir Þór Þórarinsson | |||
| Sædís Rós Álfsdóttir | ||||
| B-hópur | ||||
| Helga Þórsdóttir | I-hópur | |||
| Hera Árnadóttir | Aron Ingi Halldórsson | |||
| Hugrún Edda Karlsdóttir | Heimir Sindri Þorláksson | |||
| Ingibjörg Gísladóttir | Helgi Fannar Gestsson | |||
| Jóhann Björn Sigurbjörnsson | Hólmar Björn Birgisson | |||
| Úrsúla Ósk Lindudóttir | Kristófer Bjarki H. Kjerúlf | |||
| C-hópur | J-hópur | |||
| Arney Björnsdóttir | Guðný Björg Hallgrímsdóttir | |||
| Hinrik P. Helgason | Hólmfríður Sylvía Björnsdóttir | |||
| Rakel Eir Ingimarsdóttir | Matthías Finnbogason | |||
| Úlfar Örn Sveinsson | Stefanía Malin Halldórsdóttir | |||
| Þórdís Inga Pálsdóttir | Stella Finnbogadóttir | |||
| Sunna Þórarinsdóttir | ||||
| D-hópur | ||||
| Auðunn Elí Midjord | K-hópur | |||
| Eysteinn Ívar Guðbrandsson | Freydís Þóra Bergsdóttir | |||
| Jón Hjálmar Ingimarsson | Guðmunda Góa Haraldsdóttir | |||
| Júlía Kristín Pálsdóttir | Guðný Rúna Vésteinsdóttir | |||
| María Ósk Ólafsdóttir | Herjólfur Hrafn Stefánsson | |||
| Sigurður P. Unnarsson | Jódís Helga Káradóttir | |||
| Stefanía Sigfúsdóttir | ||||
| L-hópur | ||||
| E-hópur | Anna Sif Sveinsdóttir | |||
| Ásta Lilja Gísladóttir | Ásdís Eva Halldórsdóttir | |||
| Indriði Ægir Þórarinsson | Eydís Eir Víðisdóttir | |||
| Ragnheiður Eva Ólafsdóttir | Katrín Ösp Bergsdóttir | |||
| Sólveig Erla | Viktoría Lind Björnsdóttir | |||
| Þorgrímur Svavar Runólfsson | ||||
| N-hópur | ||||
| F-hópur | Alma Karen Sigurðardóttir | |||
| Arnar Ólafsson | Arndís Katla Óskarsdóttir | |||
| Bjarkey Birta Gissurardóttir | Einar Kárason | |||
| Birgitta Ósk Örvarsdóttir | Gísli Kristjánsson | |||
| Garbríel Ernir Midjord Jóhannsson | Halla Margrét | |||
| Guðni Bjarni | Herdís María | |||
| Gunnar Freyr Þórarinsson | Hrafnhildur Helgadóttir | |||
| Pálmi Þórsson | Ólöf Bára Birgisdóttir | |||
| Þórgunnur Þórarinsdóttir | ||||
| G-hópur | N-hópur er í 30 mín | |||
| Anna Margrét Hörpudóttir | Frá 14:30-15:00 | |||
| Álfrún Lilja Þórarinsdóttir | ||||
| Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir | M-hópur | |||
| Dalmar Snær Marinósson | Gunnar Freyr Gestsson | |||
| Freyja Sól Bessadóttir | Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir | |||
| Gísli Höskuldsson | Karen Jónsdóttir | |||
| Lydía Ýr Gunnarsdóttir | ||||
| Ragna Vigdís Vésteinsdóttir | ||||
| Ragnheiður Petra Óladóttir | ||||
| Hópaskipting er birt með | ||||
| fyrirvara um breytingar. | ||||
Nokkur orð um fundinn með Ísólfi og VÍS
febrúar 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslunefnd Léttfeta stóð á dögunum fyrir fræðslufundi um Íþróttakeppni. Ísólfur Líndal Þórisson kom og fjallaði um slíka keppni bæði frá augum dómarans og sýnandans. Ísólfur hefur starfað sem dómari í ellefu ár og tekið þátt í mörgum keppnum í gegnum árin. Hann er einn okkar besti fyrirlesari og reiddi því boðskapinn fram á mjög skiljan – og skemmtilegan hátt.
Hér á eftir kemur stutt samantekt um það helsta sem farið var yfir.
Frá augum dómarans á hesturinn að vera frjáls og fallegur. Knapi og hestur eiga að vera í sama liði og sýna vasklega framgöngu. Gangskiptingar þurfa að vera nákvæmar og mikilvægt er að hesturinn fari á þeim hraða sem knapinn vill. Afar mikilvægt er að takturinn sé góður „ekkert hopp upp á fótinn“
Mikilvægir hlutir sem hafa þarf í huga inn á vellinum.
• Hneigja sig á skammhlið bæði við upphaf og endi sýningar
• Ríða stystu leið að þeirri skammhlið sem knapinn hefur ákveðið að byrja á
• Þegar skipta á um gangtegund er mikilvægt að fara að undirbúa hestinn einni hestlengd fyrir miðlínu skammhliðar.
• Ef riðið er út úr beygju (inn á langhlið) þegar snúa á við er sýningin ógild.
• Þegar hægt tölt/yfirferðartölt er riðið og ekki hægt niður á fet þegar atriðinu er lokið heldur dettur hesturinn í brokk má draga 0,5 af einkunn.
• Hvað hraða varðar í íþróttakeppni er talað um að ríða allt að milliferð. Í gæðingakeppni er aftur á móti talað um fulla ferð.
• Reglan á að vera sú að lipur hestur fái hærri einkunn heldur en sá sem spýtist áfram.
Sýningatækni.
• Láta sýninguna ganga upp
• Gera sem mest úr því góða hjá hestinum
• Gera sem minnst úr því sem er ábótavant
• Ekki koma með hesta þreytta í keppni
• Hugsa vel út í það hvernig sé best að raða gangtegundum upp í sýningunni. Hvað röð hentar hestinum best. T.d. töltir hesturinn betur eftir stökk.
• Þegar dómarar eru staðsettir fyrir utan völlinn myndast svokallað „blint svæði“ í beygjum. Þetta svæði má nýta í það að „laga hestinn til“ ef þarf. T.d. losa um stirðan hest með því að láta hann víkja í beygjunni.
• Skrefmiklum hestum sem eiga erfitt með að tölta mjög hægt er betra að ríða aðeins hraðar á hægu ferðinni.
• Huga að heildarmynd hestsins. Fallegri heildarmynd fyrirgefst ýmislegt.
Þetta sama kvöld fengum við til okkar góða gesti frá tryggingafélaginu Vís og kynntu þeir fyrir okkur helstu tryggingar á hrossum ásamt tryggingum á reiðtygjum, hestakerrum og bílum.
Einnig var farið yfir helstu öryggisatriði í hestamennsku svo sem notkun hjálma og endurskinsmerkja.
Lýsum okkur upp í skammdeginu og notum endurskinsmerki til þess að forða slysum á okkur sjálfum eða þeim sem að á vegi okkar verða.
.
F.h Fræðslunefndar Léttfeta
Steinunn Anna Halldórsdóttir
KS-deildin.
febrúar 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Úrslit í 4-gangi.
Hart var barist í A og B úrslitum og hrossin á heimsmælikvarða. Margt var um manninn í höllinni og skemmtu sér vel yfir frábærri keppni. Úrslitin eru eftirfarandi
A úrslit:
1. Mette Manseth og Happadís frá Stangarholti 7.87
2. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum 7.83
3. Bjarni Jónasson og Komma frá Garði 7.63
4. Elvar E. Einarsson og Mön frá Lækjamóti 7.37
5. Ísólfur Líndal Þórisson og Sindri frá Leysingjarstöðum 2 7.17
6. Þórarinn Eymundsson og Fylkir frá Þingeyrum 7.13
B úrslit:
Upp í A úrslit Elvar E. Einarsson og Mön frá Lækjamóti 7.33
7. Sölvi Sigurðarson og Nanna frá Halldórsstöðum 7.23
8. Magnús Bragi Magnússon og Farsæll frá Íbishóli 7.20
9. Líney María Hjálmarsdóttir og Þytur frá Húsavík 6.80
.
Næsta KS-deild er 3. mars, þá er keppt í tölti.
svadastadir.isÁrshátíð Léttfeta 2010
febrúar 14, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Fyrirhugað er að halda árshátíð Léttfeta laugardagskvöldið 6. mars. Húsið opnar kl. 20:00 en dagskrá hefst kl. 20:30. Við hvetjum fólk til að mæta og skemmta sér og öðrum. Ásamt því að borða góðan mat.
Hægt verður að panta miða hjá Steinunni í síma 865-0945.
.
Nánar auglýst síðar.
.
Fræðslu- og skemmtinefnd Léttfeta.
Fræðslukvöld um fóðrun reiðhesta í Tjarnarbæ
febrúar 14, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslukvöld um fóðrun reiðhesta
- Er hesturinn þinn of feitur eða þunnur?
- Þarf að gefa kjarnfóður?
- Hvaða steinefnum þarf sérstaklega að gæta að?
Guðrún Stefánsdóttir lektor við Hólaskóla verður með fræðslukvöld um fóðrun og holdamat reiðhesta.
Mánudaginn 15. feb. kl: 20:30 í Tjarnarbæ
Allir velkomnir – 500 kr. aðgangseyrir. (engin kort)
.
Fræðslunefnd Léttfeta og FT-norður.
KS -Deildin
febrúar 11, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Nú styttist í fyrsta keppniskvöld KS-Deildarinnar.
Keppt verður í 4-gangi miðvikudagskvöldið 17. febrúar.
Margir bíða spenntir eftir að sjá hvaða hesta knapar munu mæta með, en knapar verða að vera búnir að skrá fyrir sunnudagskvöld.
Ráslisti verður birtur á mánudagsmorgunn.
.
Meistaradeild Norðurlands.



