Öryggismál og íþróttakeppnir.

febrúar 9, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd, Mótanefnd

Fræðslufundur fimmtudagskvöldið 11. febrúar, kl 20:00 í Tjarnarbæ.

Tekin verða fyrir öryggismál, Sigurbjörn Bogason frá VÍS kemur og fræðir okkur um tryggingamál.   Einnig ætlar Ísólfur Líndal Þórisson að fræða okkur um íþróttakeppni og þær reglur sem þar gilda.

Allir – ungir sem aldnir hvatti til að mæta – heitt á könnunni !

Fræðslu og skemmtinefnd  og hestaíþróttaráð

Á döfinni 2010

febrúar 9, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Mót og keppnir 2010

30. – 31. janúar

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

13. – 14. febrúar

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

17. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS- deildin.  4 – gangur

Fært til 21.mars

Reiðhöllin Arnargerði Blönduósi Grunnskólamót Hestamannafélaganna.Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði

24. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  Keppt verður í  Smala og skeiði. 

27. – 28. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

MARS

3. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin. Tölt

7. mars

Reiðhöllin Þytsheimar Hvammstanga Grunnskólamót HestamannafélagannaKeppt verður í þrígangi, fjórgangi, pollaflokki og skeiði.

10. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  Tölt

12. – 13. mars

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

13. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Áskorendamót Riddara Norðursins

17. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin.  5. Gangur.

21. mars

Reiðhöllin Arnargerði Blönduósi Grunnskólamót Hestamannafélaganna. Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði

24. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin. 4. gangur

27. – 28. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

27. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Ræktun Norðurlands

APRÍL

7. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin. Smali og skeið

14. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  5.gangur, skeið og tölt.

18. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Grunnskólamót hestamannafélaganna á Sauðárkróki.  Keppt veður í tölti, pollaflokki og skeiði.

MAÍ

1. maí

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Æskan og hesturinn

22. maí

Sauðárkróki Firmakeppni Léttfeta

JÚNÍ – ÁGÚST

12. júní

Sauðárkróki Félagsmót Léttfeta og úrtaka fyrir Landsmót

27. júní – 4. júlí

Vindheimamelar Landsmót hestamanna Vindheimamelum

31. júlí  – 1. ágúst

Sauðárkróki Fákaflug

Daghólf – efri mýrarnar

febrúar 9, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni

Eigendum hrossa í hesthúsahverfinu er heimilt að nota daghólfið.

Ætlast er til að hrossin séu ekki höfð þar nema þegar birtu nýtur. Það er með öllu óheimilt að gefa hey í hólfið.

Um helgar er heimilt að setja hross í efri mýrarnar yfir daginn.

Öll önnur hólfanotkun er bönnuð yfir veturinn.

stjórn Léttfeta.

Skagfirska mótaröðin

febrúar 5, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni

Búið er að setja mótin í skagfirsku mótaröðinni niður á keppnisdagana. Keppt verður í þremum flokkum í tölti og 4.gangi, 1.flokki (keppnisvanir), 2.flokki (minna keppnisvanir) og þriðji flokkurinn er barna- og unglingaflokkur (16 ára og yngri). Í smala verður keppt í tveimur flokkum, fullorðinsflokki og barna- og unglingaflokki. Í fimmgangi verður keppt í 1.flokki og 2. flokki. Í skeiði verður keppt í einum flokki.

Þetta eru dagsetningarnar á  mótunum.

24. febrúar. smali og skeið.
10. mars. tölt.
24. mars. 4.gangur.
14. apríl. 5.gangur, skeið og tölt.

Eins og sjá má þá er keppt tvisvar sinnum í tölti og skeiði, skeiðsjúklingar ættu að geta fengið góða útrás í vetur. Vonandi verður þátttaka góð í vetur og fólk hafi gaman af að reyna með sér á fákum sínum.

Af vef     www.svadastadir.is

FEIF skipti

febrúar 2, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni

Hefur þú áhuga á unglingaskiptum?

Hefur þú/þið áhuga á að bjóða erlendum unglingum í heimsókn?

Viltu fara til útlanda?

.

Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF.  Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1 – 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum.  Þetta er tækifæri fyrir áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl.

Einnig er fyrirhugað að bjóða erlendum unglingum til dvalar hér á landi á sömu forsendum.

Æskulýðsnefndin óskar eftir áhugasömum unglingum sem vilja fara og fjölskyldum sem mundu vilja bjóða heim erlendum unglingum.  Miðað verður við að þátttökugjald standi undir kostnaði.  Ef þið hafið áhuga vinsamlega hafið samband sem fyrst við æskulýðsnefnd LH.

.

Tölvupóstföng og símanúmer eru á heimasíðu LH á www.lhhestar.is

.

Með kveðju  Æskulýðsnefndar LH

« Undanfarandi síða