Æskan og hesturinn 2010
mars 24, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin 1.maí nk.
Þeir krakkar sem ætla að taka þátt í sýningunni eiga að skrá sig í síðasta lagi á sunnudaginn 28.mars hjá reiðkennurum eða í síma 8472685 Stína.
Krakkar athugið!
Reiðkennsla fellur niður laugardaginn 27.mars en verður samkvæmt venju á sunnudaginn 28. mars.
Í staðinn býður Skotta-film ykkur í bíó á laugardaginn, á myndina Kraftur, þið megið taka mömmu eða pabba með.
Það verða tvær sýningar kl: 11:00 og 13:00.
Þið pantið miða hjá Stínu í síma 8472685 fyrir laugardag.
Stjórnin.
Ráslisti 4.gangur 24.mars 2010.
mars 24, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Keppt verður í 4. gangi í kvöld í Skagfirsku mótaröðinni, í reiðhöllinni Svaðastaðir og hefst mótið klukkan 20:00
Unglingaflokkur 16 ára og yngri ( tveir inná í einu ), H=hægri, V=vinstri.
1. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir – Blesi frá Litlu-Tungu. H.
1. Elínborg Bessadóttir – Viðja frá Hofstaðarseli. H.
2. Jón Helgi Sigurgeirsson – Samson frá Svignaskarði. V.
2. Katarína Ingimarsdóttir – Smáralind frá Syðra-Skörðugili. V.
3. Sonja Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir – Darri frá Hóli. V.
3. Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir – Bjálki frá Hjalla. V.
4. Bryndís Rún Baldursdóttir – Aron frá Eystri-Hól. H.
4. Þórdís Inga Pálsdóttir – Valur frá Ólafsvík. H.
5. Ásdís Ósk Elvarsdóttir – Höfðingi frá Dalsskarði. V.
5. Rakel Eyr Ingimarsdóttir – Flæsa frá Fjalli. V.
6. Jón Helgi Sigurgeirsson – Bjarmi frá Enni. V.
6. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir – Glymur frá Hofstaðarseli. V.
7. Elínborg Bessadóttir – Lóa frá Bakka. H.
2. Flokkur, tveir inná í einu. H=hægri, V=vinstri.
1. Sunna Björk Bjarnadóttir – Ljós ? H.
1. Aníta Lind Elvarsdóttir – Sigurdís frá Syðra-Vallholti. H.
2. Ninni Kullberg – Sóldögg frá Efri-Fitjum. V.
2. Björn Magni Svavarsson – Glanni frá Blönduós. V.
3. Gréta B. Karlsdóttir – Þróttur frá Húsavík. H.
3. Sæmundur Jónsson – Gosi frá Bessastöðum. H.
4. Sigurlína Erla Magnúsdóttir – Öðlingur frá Íbishóli. V.
4. Birgir Þorleifsson – Tangó frá Reykjum. V.
5. Ingunn Sandra Arnþórsdóttir – Galsi frá Bakka. H.
5. Svala Guðmundsdóttir – Þyrill frá Hólkoti. H.
6. Sigurður Heiðar Birgisson – Stjarna frá Lindarbrekku. V.
6. Karen Guðmundsdóttir - Kjarkur frá Flögu. V.
7. Sædís Bylgja Jónsdóttir - Prins frá Garði. H.
7. Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir – Draumur frá Syðri-Ingveldarstöðum. H.
8. Þórey Elsa Valborgardóttir – Stjörnunótt frá Íbishóli. V.
1.Flokkur, einn inná í einu.
- Lísa Rist – Töffari frá Hlíð.
- Pétur Grétarsson – Týr frá Hólavatni.
- Ástríður Magnúsdóttir – Sómi frá Vatnsleysu.
- Hörður Óli Sæmundarson – Hans frá Vatnsleysu.
- Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir – Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum.
- Egill Þórir Bjarnason – Hugleikur frá Hafragili.
- Hrefna Hafsteinsdóttir – Móri frá Rauðalæk.
- Óli Sigurjón Pétursson – Djásn frá Höfnum
- Sigurður Rúnar Pálsson – Jarpur frá Hrafnagili.
- Hannes Brynjar Sigurgeirsson Lykill frá Varmalandi.
- Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir – Limra frá Hjaltastöðum.
- Tryggvi Björnsson – Ólga frá Steinnesi.
- Ísólfur Líndal Þórisson – Aþena frá Víðidalstungu II.
- Sigurbjörn Þorleifsson – Jörp frá Fellskoti.
- Guðmundur Þór Elíasson – Fáni frá Lækjardal.
- Lísa Rist – Táta frá Glæsibæ.
- Stefán Öxndal Reynisson – Sæla frá Sauðárkróki.
- Sveinn Brynjar Friðriksson – Gosi frá Hofsvöllum.
- Fanney Dögg Indriðadóttir – Stuðull frá Grafarkoti.
- Júlía Ludwiczak – Veigar frá Narfastöðum.
- Ingólfur Pálmason – Mosi frá Hjaltastöðum.
- Rut Vidvei – Hremsa frá Frostastöðum II.
- Elvar Logi Friðriksson – Sirpa frá Hrísum.
- Bjarney Anna Bjarnadóttir – Þokki frá Brennigerði.
- Þórarinn Ragnarsson – Sigurfari frá Húsavík.
- Páll Bjarki Pálsson – Hátíð frá Blönduósi.
- Sigurður Rúnar Pálsson – Rúna frá Flugumýri.
af vef svadastadir.is
Úrslit Grunnskólamótsins
mars 22, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Mót númer tvö í Grunnskólamótaröðinni var haldið í gær á Blönduósi, keppt var í smala, fegurðarreið og skeiði. Fjöldi krakka tóku þátt og var spennan mikil. Þriðja og síðasta mótið þar verður á Sauðárkróki 18. apríl, þar verður keppt í fegurðarreið, tölti og skeiði.
Eftir mótið á Blönduósi eru stigin svona:
| Varmahlíð |
63 |
| Árskóli |
45 |
| Húnaþing vestra |
44 |
| Húnavallaskóli |
39 |
| Blönduósskóli |
16 |
| Gr. austan vatna |
14 |
Úrslit urðu þessi:
| Smali 4 – 7 bekkur | |||
|
nr. |
Nafn | Skóli | Hestur |
|
1 |
Ásdís Ósk Elvarsdóttir | Varmahlíðarskóli | Glódís frá Hafsteinsstöðum |
|
2 |
Jóhanna Skagfjörð Jónsdóttir | Gr. Blönduósi | Stígandi |
|
3 |
Arndís Sif Arnarsdóttir | Gr Húnaþings vestra | Álfur frá Grafarkoti |
|
4 |
Fríða Ísabel Friðriksdóttir | Gr austan vatna | Þorri frá Veðramóti |
|
5 |
Anna Baldvina Vagnsdóttir | Varmahlíðarskóli | Vanadís frá Búrfelli |
|
|
|||
|
|
Smali 8 – 10 bekkur | ||
|
nr. |
Nafn | Skóli | Hestur |
|
1 |
Haukur Marian Suska Hauksson | Húnavallaskóli | Laufi frá Röðli |
|
2 |
Rósanna Valdimarsdóttir | Varmahlíðarskóli | Stígur frá Kríthóli |
|
3 |
Stefán Logi Grímsson | Húnavallaskóli | Perla frá Reykjum |
|
4 |
Ragnheiður Petra Óladóttir | Árskóli | Perla frá Beiðabólstað |
|
5 |
Rakel Ósk Ólafsdóttir | Gr Húnaþings vestra | Rós frá Grafarkoti |
| Fegurðarreið 1 – 3 bekkur | |||
|
nr. |
Nafn | Skóli | Hestur |
|
|
|||
|
1 |
Guðný Rúna Vésteinsdóttir | Varmahlíðarskóli | Blesi frá Litlu Tungu |
|
2 |
Lilja María Suska Hauksdóttir | Húnavallaskóli | Ljúfur frá Hvammi II |
|
3 |
Ásdís Freyja Grímsdóttir | Húnavallaskóli | Gyðja frá Reykjum |
|
4 |
Hólmar Björn Birgisson | Gr austan vatna | Tangó frá Reykjum |
|
5 |
Lara Margrét Jónsdóttir | Húnavallaskóli | Varpa frá Hofi |
| Skeið 8 – 10 bekkur | |||
|
nr. |
Nafn | Hestur | |
|
1 |
Fríða Marý Halldórsdóttir | Gr Húnaþings vestra | Stígur Efri-Þverá |
|
2 |
Kristófer Smári Gunnarsson | Gr Húnaþings vestra | Kofri frá Efri-Þverá |
|
3 |
Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir | Varmahliðarskóli | Kráka |
|
4 |
Gunnar Freyr Gestsson | Varmahliðarskóli | Stella frá sólheimum |
|
5 |
Steindóra Ólöf Haraldsdóttir | Árskóli | Gneysti frá Yzta-Mó |
Byggingadómar hrossa
mars 22, 2010 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Sýnikennsla í byggingu hrossa
Fyrirhugað er að halda sýnikennslu í byggingadómum hrossa í Reiðhöllinni Svaðastöðum þriðjudagskvöldið 23. mars næstkomandi. Kennslan hefst í Tjarnarbæ kl 20:00. Síðan verður farið yfir í reiðhöll og skoðuð bygging á nokkrum hrossum. Leiðbeinandi verður Víkingur Gunnarsson kynbótadómari og kennari við Háskólann á Hólum. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að fræðast um byggingu hrossa og þá þætti sem lagðir eru til grundvallar þegar hross kemur til dóms til þess að mæta.
Fræðslunefnd Léttfeta
Grunnskólamót á Blönduósi
mars 16, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra
verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi
sunnudaginn 21. mars kl: 13:00.
ÞETTA MÓT ER FYRIR ALLA Í GRUNNSKÓLANUM ÓHÁÐ ÞVÍ HVORT
ÞIÐ ERUÐ Í HESTAMANNAFÉLAGI EÐA EKKI !
ÞEIR SKÓLAR SEM TAKA ÞÁTT ERU:
GRUNNSKÓLARNIR Í: HÚNAÞINGI VESTRA, Á BLÖNDUÓSI, Á SIGLUFIRÐI OG AUSTAN VATNA, VARMAHLÍÐARSKÓLI, ÁRSKÓLI OG HÚNAVALLASKÓLI.
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti fimmtudaginn 18.mars 2010 á
netfangið: neisti.net@simnet.is
Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa.
nafns hests, aldur, litur, keppnisgrein, og upp á hvora hönd er riðið.
Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrsta hest og 500 kr fyrir annan hest.
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.
Dagskrá:
Smali 4-7. bekkur.
Smali 8-10. bekkur.
Hlé
Fegurðarreið 1-3. bekkur.
Skeið 8-10. bekkur.
ATH. Í smala er EKKI leyft að ríða með stangir.
Nánari upplýsingar í síma 844 7285 hjá Smára Har.
Aðalfundur
mars 15, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Aðalfundur Léttfeta verður haldinn í Tjarnarbæ föstudagskvöldið 26.mars og hefst kl 20:00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Úrslit fyrsta grunnskólamótsins
mars 10, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Sunnudaginn 7. mars síðastliðinn var fyrsta grunnskólamót vetrarins haldið í nýrri og glæsilegri reiðhöll á Hvammstanga, Þytsheimum. Þátttaka var góð og það var virkilega gaman að fylgjast með keppendum á þessu fyrsta grunnskólamóti vetrarins. Keppt var í fegurðarreið 1 – 3. bekkur, tvígangur/þrígangur 4 – 7. bekkur, fjórgangur 8 – 10. bekkur og skeiði 8 – 10. bekkur.
Næsta mót er á Blönduósi 21. mars nk. Þar verður keppt í fegurðarreið 1 – 3. bekkur, smala 4 – 7. og 8 – 10. bekkur og í skeiði 8 – 10. bekkur. Þriðja og síðasta mótið er á Sauðárkróki 18. apríl, þar verður keppt í fegurðarreið, tölti og skeiði.
Eftir mótið á Hvammstanga eru stigin svona:
|
Varmahlíð |
30 |
|
Ársskóli |
26 |
|
Grsk. Húnaþingsvestra |
22 |
|
Húnavallaskóli |
21 |
|
Blönduskóli |
8 |
Úrslit í keppnisflokkum urðu eftirfarandi:
|
Fegurðarreið 1.-3. bekkur |
||||
| Knapi | skóli | Hestur |
Einkunn í forkeppni |
einkunn úrslit |
|
Hún | Ljúfur frá Hvammi ll |
5,5 |
6 |
|
Var | Blesi frá Litlu-Tungu ll |
5,5 |
5,5 |
|
Var | Pókemon frá Fagranesi |
4,5 |
5 |
|
Árs | Katla frá Íbishóli |
4,5 |
4,5 |
|
Hún | Varpa frá Hofi |
4,5 |
4 |
|
Tvígangur/þrígangur 4.-7.bekkur |
||||
| Knapi | skóli | Hestur |
Einkunn í forkeppni |
einkunn úrslit |
|
Var |
Smáralind frá Syðra-Skörðugili |
5,5 |
7,2 |
|
Var |
Hafþór frá Syðra-Skörðugili |
5,8 |
6,7 |
|
Blö |
Óviss frá Reykjum |
5,8 |
6,3 |
|
Árs |
Frami frá Íbishóli |
5,5 |
6 |
|
Var |
Blesi frá Litlu- Tungu ll |
5,6 |
5,7 |
|
Fjórgangur 8.-10.bekkur |
||||
| Knapi | skóli | Hestur |
Einkunn í forkeppni |
einkunn úrslit |
|
Árs | Aron frá Eystri-Hól |
6,1 |
6,8 |
|
Var | Bjarmi frá Enni |
5,6 |
6,5 |
|
Hvt | Þróttur frá Húsavík |
5,7 |
6 |
|
Hvt | Sómi frá Böðvarshólum |
5,3 |
5,7 |
|
Árs | Máni frá Árbakka |
5,3 |
5,6 |
|
Árs | Muggur frá Sauðárkróki |
5,3 |
5,3 |
Skeið 8. – 10. Bekkur
Knapi skóli bekkur hestur tími 1 tími 2
- Fríða Marý Halldórsdóttir Hvt 10 b. Stígur frá Efri Þverá 3.94 4.15
- Kristófer Smári Gunnarsson Hvt. 10 b. Kofri frá Efri Þverá 5.47 4.95
- Jón Helgi Sigurgeirsson Var 9 b. Náttfari frá Reykjum 5.59 5.03
- Steindóra Ólöf Haraldsdóttir Árs 10 b. Gneisti frá Ysta Mói X 5.19
- Sara María Ásgeirsdóttir Var 9 b. Jarpblesa frá Djúpadal X 6.53
Landsmót 2012 . . . .
mars 10, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .
Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undirritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi Hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að Landsmót skyldi haldið í Reykjavík.
Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undirritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi Hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að Landsmót skyldi haldið í Reykjavík.
Hestamannafélögin Geysi, Léttfeti, Sindri og Stígandi sendu í kjölfarið frá sér fréttatilkynningu þar sem þau furða sig á vinnubrögðum formanns LH, telja þau ólýðræðisleg og ekki sé unnið af heilindum. „Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Haraldur hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann hafnar því að hafa beitt ólýðræðislegum vinnubrögðum. Beðið hafi verið um fundinn með sólarhringsfyrirvara og hafi hann átt erfitt um vik að verða við því, enda hafi verið stefnt að fundi með Fáksmönnum á svipuðum tíma. Hafi síðar komið í ljós að fundartíminn hefði ekki hentað og hann tjáð formanni Stíganda það í síma. Ákveðið hafi verið að sá fundur færi fram 9. mars. Þá segir Haraldur í tilkynningu sinni: „Undirritaður vill taka skýrt fram að miðað við þann stutta fyrirvara sem hér um ræðir þar sem óskað var eftir fundi með stjórn LH, með sólarhrings fyrirvara, tel ég mig hafa lagt mig allan fram um að leysa úr óskum félaga okkar hvað það varðar og vann að því af heilindum.“
Jónína Stefánsdóttir formaður Stíganda undrast framgöngu Haraldar. Hún segir jafnframt að hún telji afar ólíklegt að af fundi þeirra verði á morgun, 9. mars. „Okkur finnst við nú ekki hafa erindi til að fara suður eftir þessa ákvörðun um Landsmót í Reykjavík, trúlega sendum við þessar undirskriftir bara í ábyrgðarpósti.“ Jónína segir að þessi 26 félög setji sig á móti Reykjavík sem landsmótsstað en ekki síður þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafi verið. „Ákvörðun um landsmótsstað á að taka á aðalfundi eða formannafundi og í raun átti að vera búið að taka þessa ákvörðun í júlí síðastliðnum. Í þessu ljósi þykir mér mjög ólýðræðislega staðið þessari ákvarðanatöku. Það eru meira en helmingur hestamannafélaganna í LH sem að eru mótfallnir þessu.“ Spurð hvort hún telji að kominn sé upp trúnaðarbrestur milli stjórnar LH og aðildarfélaga þess sagði Jónína að henni fyndist það. „LH er samnefnari fyrir öll hestamannafélögin í landinu og þau virðast ekki vera að starfa eftir því.“
Haraldur Þórarinsson segist undrast hversu seint þessi mótmæli komi fram. „Það var vitað að við vorum búin að gefa okkur tíma til 26. febrúar að klára málið en síðan framlengdum við það um viku. Þetta var úrslitastundin þarna á föstudaginn.“ Haraldur segir það ekki hafi komið fram í samtali hans við formann Stíganda að 26 félög hefðu undirritað mótmælaskjalið. Spurður hvort það hefði breytt einhverju um undirritun samningsins segir hann ómögulegt að segja til um það. Haraldur segir að þessi mótmæli verði rædd á stjórnarfundi LH á föstudaginn. „Auðvitað skoðum við þetta, við tökum tillit til þess sem félögin vilja, það er skylda okkar.“
Af vef www.bbl.is
Af vef http://bbl.is
Hresst upp á minni Haraldar Þórarinssonar – opið bréf
mars 10, 2010 - Kristin
Tilheyrir eitt og annað . . .
Sæll Haraldur
Vegna svars þíns við fréttatilkynningu frá Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda, sé ég mig knúna til þess að leiðrétta nokkrar staðreyndir. Í fyrsta lagi þá tilkynnti ég starfsmanni L.H. að morgni 4. mars að erindið væri vegna Landsmóts 2012. Hálfri klukkustund síðar hringir starfsmaðurinn, þá búinn að hafa samband við þig þar sem við (fulltrúar fjögurra hestamannafélaga af Suður- og Norðurlandi) höfðum fengið úthlutaðan fund kl: 15:30 föstudaginn 5. mars. Um kvöldið hafðir þú síðan samband, sagðist sjálfur vera upptekinn á morgun við önnur verk og enginn gæti mætt úr stjórninni nema kannski ein manneskja. Þú tjáðir mér að þér þætti miður að geta ekki tekið sjálfur á móti okkur og vildir bjóða okkur í mat eftir helgi. Ég gerði þér alveg ljóst að tilefnið hafi verið að afhenda ályktanirnar frá hestamannafélögunum. Aldrei minntist þú einu orði á það hver þessi “önnur verk” væru sem þú varst skyndilega upptekinn við, enda brá mér mikið þegar ég sá fréttir netmiðlanna daginn eftir um að þú hafir skrifað undir samning varðandi LM 2012 í Reykjavík. Þá finnst mér skrítið að enginn úr stjórninni hafi getað mætt kl: 15:30 þar sem ég hef fyrir satt að þú hafir fundað með þínum stjórnarmönnum kl: 16:00 þann sama dag. Einkennilegt finnst mér að þú skulir ekki hafa beðið með stórar ákvarðanir varðandi LM 2012 þar sem þú vissir full vel að þú ættir von á afstöðu frá aðildarfélögum þeirra samtaka sem þú ert í forsvari fyrir.
Jónína Stefánsdóttir formaður Stíganda.
FRÉTTATILKYNNING
mars 8, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .
Fréttatilkynning frá hestamannafélögunum Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda varðandi Landsmót hestamanna 2012
Fulltrúar ofan talinna hestamannafélaga áttu pantaðan fund með Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga (LH) í gær, 5. mars kl: 15:30. Þar átti að afhenda honum skjöl undirrituð af stjórnarmönnum 26 hestamannafélaga innan LH þar sem því er mótmælt hvernig staðið er að ákvörðun um að halda Landsmót 2012 í Reykjavík. Undir miðnætti í fyrrakvöld afboðar Haraldur fundinn á þeim forsendum að hann sé upptekinn og ná ekki að boða stjórnarmenn til fundarins. Í gær (5. mars) birtist síðan frétt um að komið hafi verið á fundi milli LH og Fáks þar sem undirritaður var samningur um Landsmót í Reykjavík 2012. Furðum við okkur á vinnubrögðum formanns LH og teljum þau ólýðræðisleg og ekki unnin af heilindum. Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012.
Geysir Léttfeti Sindri Stígandi



