Árshátíðarmót Léttfeta 2010
Árshátíðarmót Léttfeta 2010
Í tilefni árshátíðar Léttfeta laugardaginn 6.mars n.k. verður sama dag haldið sérstakt Árshátíðarmót, með firmakeppnisfyrirkomulagi á beinni braut. Keppt verður í karla og kvennaflokki. Mótið er opið öllum Léttfetafélögum og engin þátttökugjöld.
Mótið verður haldið á keppnisvelli félagsins og byrjar kl. 13:30. Skráning í andyri Tjarnarbæjar frá kl.12:00 til 13:00.
.
Mótanefnd Léttfeta
Grunnskólamót á Hvammstanga
mars 3, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Fyrsta grunnskólamótið verður í Þytsheimum á Hvammstanga sunnudaginn 7. mars kl. 13.00
Keppt verður í
fegurðarreið 1.-3. bekkur
tví- og þrígangi 4.-7. bekkur
fjórgangi 8.-10. bekkur
skeiði 8.-10. bekkur
Skráningargjald er 1000 krónur á fyrstu skráningu og 500 krónur ef keppt er í skeiði líka.
Skráning þarf að berast fyrir kl. 21.00 fimmtudagskvöldið 4.mars
Þar þarf að koma fram nafn knapa og hests, bekkur, skóli og upp á hvora hönd er riðið
Nánari upplýsingar í síma 844 7285 hjá Smára Har.
Skráning á thyturaeska@gmail.com
KS-Deildin – Tölt
mars 3, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Eftir frábæra fjórgangskeppni í KS deildinni er komið að tölti.
Það verður mikið fjör í Svaðastaðahöllinni í kvöld, miðvikudagskvöld.
Eins og sjá má á ráslistanum eru margir sterkir hestar skráðir til leiks og ljóst er að hart verður barist.
Ráslisti
1) Elvar E. Einarsson – Mön frá Lækjarmóti
2) Líney María Hjálmarsdóttir – Þerna frá Miðsitju
3) Ragnar Stefánsson – Lotning frá Þúfum
4) Bjarni Jónasson – Komma frá Garði
5) Riikka Anniina – Gnótt frá Grund II
6) Þorsteinn Björnsson – Ögri frá Hólum
7) Magnús Bragi Magnússon – Farsæll frá Íbishóli
8 ) Sölvi Sigurðarson – Töfri frá Keldulandi
9) Þórarinn Eymundsson – Fylkir frá Þingeyrum
10) Mette Manseth – Happadís frá Stangarholti
11) Heiðrún Ósk Eymundsdóttir – Spakur frá Dýrfinnustöðum
12) Ólafur Magnússon – Gáski frá Sveinsstöðum
13) Erlingur Ingvarsson – Gerpla frá Hlíðarenda
14) Viðar Bragason – Von frá Syðra-Kolugili
15) Tryggvi Björnsson – Ólga frá Steinnesi
16) Ísólfur Líndal Þórisson – Sindri frá Leysingjastöðum
17) Þorbjörn H. Matthíasson – Týr frá Litla-Dal
18) Björn Fr. Jónsson – Aníta frá Vatnsleysu



