Hestamanna hittingur !

júní 21, 2010 - Kristin  
Tilheyrir Ferðanefnd

Þá er komið að Grillveislu ferðanefnda hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.

Stefnan er tekin á létta kvöldskemmtun með söng og glensi í Melsgili  kl 20.00  þann 26.júní.   Á staðinn mætir hinn heimsfrægi Guðjón Viðar trúbador með gítarinn og Riddarakórinn.  Einnig mun Ari stjórna fjöldasöng.  Svo eitthvað sé nefnt.

Vonast ferðanefndirnar til að sjá sem flesta hestamenn og aðra.  Kostnaði verður haldið í lámarki.

Skrá þarf  í matinn fyrir fimmtudag  24 júní.

Skráning og nánari upplýsingar  hjá:

.Söru  8956417,    Bjössa  8985455,    Ara  8936673  og    Sigfríði  8669906.

Ferðanefndirnar

Lokahóf helgarstarfs hestamannafélaganna

júní 21, 2010 - Kristin  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Lokahóf Léttfeta, Stíganda og Svaða. mynd Ragna Hjartar.

Miðvikudagskvöldið 16. júní  var haldið lokahóf  vegna helgarstarfs hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.  Byrjað var á að fara í sund í nýju og flottu sundlaugina á Hofsósi og skoða hana. Síðan var farið að hesthúsinu á Hofi og glæsileg aðstaða þar skoðuð. Áður en haldið var heim voru grillaðar pylsur og afhentar peysur með merki félagskaparins .

Veðrið var meiriháttar gott, eins og á sólarströnd en krakkarnir og reiðkennarar þeirra fengust þó til að stilla sér upp fyrir myndatöku í nýju peysunum.

Sumarkveðjur Stjórnin.

Lok vetrarstarfs Léttfeta, Stíganda og Svaða

júní 14, 2010 - Kristin  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Kæru þátttakendur og  foreldrar í sameiginlega vetrarstarfi hestamannafélaganna í Skagafirði

Nú er komið að því að ljúka vetrarstarfi hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.

Mæting á Hofsósi klukkan 17:30,  hafa meðferðis sundföt og þjónustukort Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem veitir börnum frían aðgang í sund í sveitarfélaginu !     .

Eftir sund grillum við svo pylsur ! .

Hvenær - Hvar — Á miðvikudaginn 16. júní og auðvitað hjá nýju sundlauginni á Hofsósi

Kveðja Stjórnin

Hestamanna-hittingur

júní 9, 2010 - Kristin  
Tilheyrir Ferðanefnd

Hestamanna hittingur

Eins og staðan er í dag er félagslíf hestamanna frekar dapurt sökum hestapestar.  Lítið er um að hægt sé að fara í skipulagðar hestaferðir.  Hafa því ferðanefndir hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða ákveðið að slá til grillveislu og léttrar kvöldskemmtunar í Melsgili að kveldi 26.júní.

Nánar auglýst síðar

Ferðanefndirnar

Sameiginlega vetrarstarfið :- )

júní 4, 2010 - Kristin  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Sameiginlega vetrarstarf hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.

Jæja krakkar, nú er komið að því að gera eitthvað saman eins og venja hefur verið í lok vetrarstarfs okkar.  Fyrirhugað er að vera með grill og glens 16. júní – nánar auglýst síðar – fylgjast með

En fyrst er peysumátun í anddyri Reiðhallarinnar á  sunnudagskvöldið, 6. júní frá klukkan 18:00 til 20:00.  Þá þarf að máta peysur og skrifa niður hvaða stærð hver þarf svo við getum pantað peysur með merkinu okkar á, peysurnar eru innifaldar í námskeiðisgjaldi vetrarins.

EF það eru einhverja spurningar þá má hafa samband við:

Tullan: 849 6420       . Helga: 869 2160         .Stína: 847 26850

Kveðja  stjórnin