Úrslit í félagsmóti Léttfeta 2010

ágúst 25, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Úrslit í Félagsmóti Léttfeta

-     Skapti maður mótsins

Félagsmót Léttfeta fór fram laugardaginn 21.ágúst s.l.   Keppt var í A.- og B.-Flokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og 100 m.skeiði.  Góð hross voru á mótinu, hæst dæmda hrossið var Hróaskelda frá Hafsteinsstöðum með 8,68 í einkunn enda valinn glæsilegasti hestur mótsins.  Skapti Steinbjörnsson á Hafsteinsstöðum kom sterkur til leiks og vann bæði A.- og B. flokk auk þess að vera með tvö önnur hross í úrslitum í sömu flokkum.  Annars voru úrslit mótsins eftirfarandi:

.

A - flokkur Léttfeta

A.-Flokkur:

1.    Dofri f. Úlfsstöðum / Skapti Steinbjörnsson     8,50 / 8,39

2.    Vordís f. Sjávarborg / Pétur Örn Sveinsson      8,27 / 8,23

3.    Hrynjandi f. Sauðárkróki / Magnús Bragi Magnússon     8,23 / 8,21

4.    Kolbeinn f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson (Egill Bjarnason í úrslitum) 8,19 / 8,08

5.    Drangey f. Miðsitju / Guðmundur Sveinsson 8,14 / 8,00

.

.

B-flokkur Léttfeta 2010

B-flokkur Léttfeta 2010


B.-Flokkur:

1.    Hróaskelda f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson 8,68 / 8,47

2.    Kolbeinn f. Sauðárkróki / Julia Stefanie Ludwiczak    8,50 / 8,44

3.    Steingrímur f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson (Egill Bjarnason í úrslitum) 8,24 / 8,27

4.    Draumur f. Sauðárkróki / Árni Þór Friðriksson         8,14 / 8,05

5.    Héla f. Sauðárkróki / Svala Guðmundsdóttir            8,13 / 8,10

Ungmennaflokkur:

1.    Hallfríður Óladóttir / Ræll f. Varmalæk               8,33 / 8,22

2.    Egill Bjarnason / Seiður f. Kollaleiru                8,32 / 8,30

3.    Svala Guðmundsdóttir / Þyrill f. Hólakoti             8,19 / 8,01

4.    Sigurlína Magnúsdóttir / Sunna f. Stóru-Ökrum         8,03 / 8,02

5.    Sigurður Heiðar Birgisson / Stígur f. Íbishóli        7,87 / 7,34

Unglingaflokkur:

1.    Steindóra Haraldsdóttir / Gustur f. Nautabúi          8,45 / 8,22

2.    Elín Magnea Björnsdóttir / Gola f. Ytra-Vallholti     8,36 / 8,18

3.    Friðrik Andri Atlason / Hvella f. Syðri-Hofdölum      8,24 / 7,88

4.    Lýdía Ýr Gunnarsdóttir / Stígandi f. Hofsósi          8,22 / 8,04

5.    Bryndís Rún Baldursdóttir / Tenór f. Eyjarkoti        8,04 / 8,10

Barnaflokkur:

1.    Guðmar Freyr Magnússon / Frami f. Íbishóli            8,44 / 7,88

2.    Magnús Eyþór Magnússon / Mánadís f. Íbishóli          7,91 / 7,62

3.    Aníta Ýr Atladóttir / Demantur f. Syðri-Hofdölum      7,67 / 8,52

100 m. Skeið:

1.    Guðmar Freyr Magnússon / Fjölnir f. Sjávarborg  8,31 / 8,51

2.    Steindóra Haraldsdóttir / Glanni f. Syðra-Skörðugili  10,11 / 11,55

3.    Pétur Örn Sveinsson / Tópas f. Sjávarborg       10,36 / —–

4.     Magnús Bragi Magnússon / Korri f. Sjávarborg        11,39 /

Úrslit í Firmakeppni 2010

ágúst 25, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Úrslit í Firmakeppni Léttfeta

Firmakeppni Léttfeta fór fram föstudagskvöldið 20.ágúst s.l.  og var þátttaka góð.   Keppt var í fimm flokkum, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, kvennaflokki og karlaflokki.  Þökkum við styrktaraðilum keppninnar fyrir þeirra stuðning.  Annars voru úrslitin eftirfarandi:

Kvennaflokkur:

1.    Camilla Sörensen á Blæng f. Húsavík / Fluga

2.    Arndís Brynjólfsdóttir á Hlyn f. Vatnsleysu / Vörumiðlun

3.    Guðrún Hanna Kristjánsdóttir á Töffara f. Hlíð / Verslun Haraldar Júlíussonar

4.    Anna Lóa Guðmundsdóttir á Þyrli f. Hólkoti / Topphestar

5.    Þórhildur Jakobsdóttir á Kolgerði f. V.-Leirárgörðum / Deloitte

Karlaflokkur:

1.    Sigurbjörn Þorleifsson á Elvu f. Langhúsum / Trésmiðjan Ýr

2.    Brynjólfur Jónsson á Koníaks-Rauð f. Reykjum / Sjóvá

3.    Guðmundur Sveinsson á Spegli f. Sauðárkróki / Dýralæknaþjónusta Stefáns Friðrikssonar

4.    Gunnar Eysteinsson á Stíganda f. Hofsósi / Snyrtistofan Táin

5.    Árni Friðriksson á Draum f. Sauðárkróki / Króksverk

Ungmennaflokkur:

1.    Hallfríður Óladóttir á Ræl f. Varmalæk / K-Tak

2.    Svala Guðmundsdóttir á Hélu f. Sauðárkróki / Landsbankinn

3.    Karitas Guðmundsdóttir á Gneista f. Miðhúsum / Efnalaug Sauðárkróks

4.    Egill Bjarnason á Hugleik f. Hafragili / Leiðbeiningamiðstöðin

5.    Sigurlína Magnúsdóttir á Sunnu f. Stóru-Ökrum / Byggðastofnun

Unglingaflokkur:

1.    Steindóra Haraldsdóttir á Takt f. Varmalæk / Hádrangi

2.    Friðrik Andri Atlason á Létti f. Kvistum / Fasteignasala Sauðárkróks

3.    Bryndís Baldursdóttir á Tenór f. Eyjarkoti / Sauðárkrókshestar

4.    Lydía Gunnarsdóttir á Geysi f. Hofsósi / Ólafshús

5.    Ragnheiður Petra Óladóttir á Rán f. Skefilsstöðum / Hótel Tindastóll

Barnaflokkur:

1.    Guðmar Freyr Magnússon á Blæ frá Íbishóli / K.S. Bifreiðaverkstæði

2.    Hafdís Lára Halldórsdóttir á Gustur frá Hlíð / K.S. Vélaverkstæði

3.    Aníta Ýr Atladóttir á Demant f. S.-Hofdölum / Tannlæknastofa Ingimundar

4.    Magnús Eyþór Magnússon á Mánadís f. Íbishóli / Nýprent.

Dagskrá félagsmóts Léttfeta 2010

ágúst 20, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Félagsmót Léttfeta árið 2010

Dagskrá:

A.-flokkur (hefst kl. 12:30)

Barnaflokkur

Unglingaflokkur

Ungmennaflokkur

B.-flokkur

Kaffihlé

Úrslit:     Ungmennaflokkur (kl.16:00)

Unglingaflokkur (kl.16:30)

Barnaflokkur (kl.17:00)

B.-flokkur (kl.17:30)

A.-flokkur (kl. 18:00)

Opin skeiðkeppni: 100 m. skeið (kl.19:10)

Félagsmót Léttfeta og Firmakeppni

ágúst 20, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Félagsmót og Firmakeppni hestamannafélagsins Léttfeta  20.-21.ágúst

Firmakeppni 20.ágúst:

Firmakeppni verður haldin á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki föstudagskvöldið 20.júlí 2010.  Skráning í Tjarnarbæ milli kl. 18:00 – 19:00 en keppni hefst kl 19:30   Keppt verður í:  Barnaflokki  (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17  ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.

Félagsmót 21.ágúst:

Félagsmót verður haldið á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki laugardaginn 21.ágúst 2010.

Keppnisgreinar:    A- og B-flokkur. Barna, ungl. og ungmenna-flokkar.

Dagskrá nánar auglýst síðar.

Skráningar þurfa að berast til Guðmundar á netfang badboy@simnet.is fyrir miðvikudaginn 18.ágúst n.k.   Skráningargjald kr. 1.000,-  Gefa þarf upp nafn og kennit knapa og IS-númer hests.   ATH! Allir keppnishestar skulu skráðir í Worldfeng og í eigu félagsmanns í Léttfeta.

Opið skeiðmót í 100m skeiði:

Opið skeiðmót í 100m skeiði verður haldið þann 21.ágúst á félagssvæði Léttfeta kl 19:10.  Skráning á staðnum og skráningargjald kr. 1.000,-.

Stóra Léttfetaferðin 6. til 8. ágúst 2010.

ágúst 18, 2010 -  
Tilheyrir eitt og annað . . ., Ferðanefnd

  
 
 
 
 

Merkigil

Hin árlega stóra Léttfetaferð var farin dagana  6,7 og 8  ágúst. Að þessu sinni var stefnan tekin í Austurdalinn.  Hófst ferðin í Miðsitju föstudaginn 6. ágúst kl. 13,00.  Þó  var allnokkur  hópur, sem lagði af stað frá Sjávarborg miðvikudagskvöldið 4. ágúst og reið fram í Torfgarð.  Daginn eftir var svo farið úr Torfgarði niður hjá Garðhúsum og yfir Húseyjakvísl,  gegnum hlaðið í Krossanesi.   Farið þaðan meðfram veginum fram í Miðsitju, með stoppi á Höskuldsstöðum. Gekk þetta mjög vel, þrátt fyrir  mikla bílaumferð austur Hólminn og fram Blönduhlíð.            

            

Föstudagur 6. ágúst, lagt af stað kl. 13,00  frá Miðsitju, 18 manns og 106 hross,  stoppað var í Silfrastaðarrétt.  Þaðan  farið í Flatatungu og  Kelduland, þar sem Stebbi bóndi bauð ferðafólki uppá kaffi.  Eftir kaffið hans Stebba sem er annálað fyrir gæði var haldið að Gilsbakka, það var síðasta stopp fyrir náttstað, sem var Merkigil. Komið þangað kl. 19,00.  Úr Miðsitju í Merkigil eru c/a 25 km.  Veðrið var mjög gott 18 til 20 stiga hiti, en það helliringdi síðustu tvo tímana.  Í Merkigili biðu þau Bjössi og Edda  með matinn. Tekið var hraustlega til  matarins enda allir orðnir svangir.  Kvöldinu var eytt með því að sagðar voru sögur, spilað og sungið.            

           

Laugardagur 7. ágúst, lagt af stað kl. 13,00  fram að Ábæ og stoppað í gömlu steinréttinni . (það er verið að gera hana upp ) Þar skiptist hópurinn í tvennt, sumir riðu frammí Fögruhlíð.  Þar sem þeir hittu Kristján í Stóradal og fleiri húnvetninga, sem voru þar í hestaferð.  En hinir snéru við í Merkigil. Allir voru komnir þangað kl. 18,30. Úr Merkigili framí Fögruhlíð og í Merkigil aftur eru ca.  44 km.   Sól, þurrt og 16 til 18 stiga hiti. Um kvöldið var grillað, sungið,spilað og sagðar sögur fram á kvöldið.           

       

            

Sunnudagur 8.ágúst. Lagt af stað kl. 13,00. Farið yfir Jökulsárbrúna og í Bústaði. Þaðan í Birgisskarð og Tunguháls, þar sem ferðafólk borðaði nestið sitt. Næst var stoppað í Sveinsstaðarrétt.  Síðasti leggurinn var í Mælifelsrétt.  Þangað var komið kl. 18,30.  Úr Merkigili í Mælifellsrétt eru ca. 38 km. Sól og blíða og 15 til 17 stiga hiti.         

Ferðinni lauk svo formlega í Mælifellsrétt .  Í ferðinni voru 24 manns og 106 hross.   Eina óhappið í ferðinni var að einn hestur skarst á fæti í Austurdalnum og þurfti að koma honum með kerru til byggða.            

Við í ferðanefnd Léttfeta þökkum kærlega, öllum þeim sem tóku þátt og aðstoðuðu okkur í og við ferðina.          

 

Ferðanefnd Léttfeta.  

 

       

Kvennareið – allar konur velkomnar !

ágúst 17, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Kvennareið 2010

Kvennareið Stíganda

Hin árlega kvennareið Stíganda verður farin laugardaginn 28. ágúst. Lagt verður af stað frá Rósurétt við Narfastaði kl 14:00 og riðið í Brimnes og út bakkana með sjónum í Kolkuós og þaðan upp Kolbeinsdal og í Fjall. Á Fjalli verður grillað og gist.

Á sunnudeginum verður riðið niður í Laufskálarétt og yfir Hrísháls og endað í Rósurétt.

Skráning í ferðina þarf að berast í síðasta lagi sunnudaginn 22. ágúst til Klöru í síma 861-6940 eða Steinunnar í síma 865-0945

Allar konur velkomnar.

Nú styttist í Stóru Ferðina !

ágúst 4, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Þeir sem ætla að koma með í Stóru Ferðina eru beðnir um drífa sig að hafa samband við Söru eða Heiðrúnu — því 4. ágúst er í dag!

Skrá þarf í ferðina í síðasta lagi  4.ágúst.
Kostnaði verður stillt í hóf að vanda

Upplýsingar og skráning í síma
895-6417 Sara
861-1247 Heiðrún

.

Ferðanefndin