Skagfirska mótaröðin
febrúar 28, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Fimmgangur og tölt – Ráslisti
Skagfirska mótaröðin heldur áfram næsta miðvikudagskvöld með hörkumóti með mörgum áhugaverðum hrossum og knöpum.
Þá verður keppt í fimmgangi ungmenna,-áhugamanna og meistaraflokki og einnig keppt í tölti í barna og unglingaflokki.
Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokki eru tveir inn á í einu og stjórnað af þul.
Mótið hefst klukkan 18:00 með töltinu og það klárað,
hlé gert eftir það og keppni í fimmgangi að því loknu.
Aðgangseyrir 1000 kr.-
ÁRSHÁTÍÐIN !!
febrúar 28, 2012 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Munið að panta miða á ÁRSHÁTÍÐINA
Einungis 100 miðar eru í boði og stendur forsalan fram til
klukkan 20:00, í kvöld
þriðjudagskvöld 28. feb hjá
Steinunni í síma 865-0945 og Camillu í síma 869-6056.
sjá fyrri auglýsingu neðar á siðunni !!
Grunnskólamót 4. marz á Hvammstanga !
febrúar 27, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Unglingaráð
Sunnudaginn 4. mars verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið klukkan 13:00 Þetta er fyrsta mótið í vetur og vonumst við eftir góðri þátttöku og skemmtilegri keppni eins og síðastliðin ár.
Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudag, 29. febrúar á netfangið: thyturaeska@gmail.com
Keppt verður í:
1. – 3. bekkur fegurðarreið
4. – 7. bekkur tölt
8. – 10. bekkur tölt
8. – 10. bekkur skeið, ef veður og aðstæður leyfa
Við skráningu skal koma fram:
nafn, bekkur og skóli knapa – - nafn hests og uppruni, aldur og litur – - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt.
1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra.
2. Keppnisgreinar eru:
Ø Fegurðarreið 1. – 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 – 3 keppendur inná í einu.
Ø Tvígangur 4. – 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Ø Þrígangur 4. – 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Ø Fjórgangur 8. – 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk.
Ø Þrautabraut 1. – 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í þvermál.
Ø Smali 4. – 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2×4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn
Ø Tölt 4. – 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir .
Ø Tölt 8. – 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir .
Ø Skeið 8. – 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.
¨ Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.
v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.
3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis.
4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar.
5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur
6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. – 7. bekk, verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum.
7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa.
8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti.
9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar.
10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur.
11. Í Tölti 4. – 7. og 8. – 10. bekk og Fjórgangi 8. – 10. bekk skulu riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Stig:
Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið,
Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis.
1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla
2. sæti gefur 8 stig
3. sæti gefur 7 stig
4. sæti gefur 6 stig
5. sæti gefur 5 stig.
Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein.
1. sæti gefur 5 stig
2. sæti gefur 4 stig
3. sæti gefur 3 stig
4. sæti gefur 2 stig
5. sæti gefur 1 stig.
Árshátíð Léttfeta
febrúar 23, 2012 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Árshátíð 2. mars n.k.
Föstudagskvöldið 2. mars nk. verður haldin enn ein snilldar árshátíð hjá hestamannafélaginu Léttfeta þar sem boðið verður upp á enn eina magnaða skemmtun.
Maturinn sem verður sem fyrr eldaður af félagsmönnum og rennur allur afrakstur til kaupa á eldhústækjum í Tjarnarbæ.
Dulmögnuð skemmtiatriði verða á dagskrá og í veislustjórn var narraður Guðmundur Sveinsson.
Geiri og Jói munu svo halda fólkinu í skagfirskri sveiflu fram á nótt.
Einungis 100 miðar eru í boði og stendur forsalan fram til kl. 20:00 þriðjudagskvöld 28. feb hjá Steinunni í síma 865-0945 og Camillu í síma 869-6056.
Miðaverð er hlægilega lágt eða aðeins kr. 4000- Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst stundvíslega kl. 20:00.
Fræðslu og skemmtinefnd
Þjálfun á afmörkuðu svæði, reiðhöll/reiðgerði.
febrúar 20, 2012 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Takið kvöldið frá !!
Mánudagskvöldið 20. febrúar (Bolludaginn) kl 20:00 í Tjarnarbæ
mun Brynjólfur Þór Jónsson reiðkennari frá Fagranesi
fjalla um þjálfun á afmörkuðu svæði ásamt reiðleiðum og umferðarreglum í reiðhöll. Hann mun kynna fyrir okkur lokaverkefni sitt sem hann vann í reiðkennaranáminu á Hólum og hvernig hægt er að nýta sér reiðhöll/reiðgerði á markvissan hátt.
Hvetjum alla Léttfeta félaga sem og aðra til að koma og hlusta á fróðlegt erindi ásamt því að splæsa á sig rjómabollu og kaffi.
Fræðslunefnd Léttfeta
Úrslit í Fjórgangi
febrúar 17, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Næsta mót verður 29. febrúar.
Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.
Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.
Úrslit í Fjórgangi í Skagfirsku mótaröðinni 15. febrúar
Skagfirska mótaröðin 2012
febrúar 14, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Fjórgangur
Fjórgangur 15. febrúar 2012 ( ráslisti til útprentunar )
Hefst miðvikudaginn 15.febrúar klukkan 18:00
með forkeppni í barnaflokki og úrslit riðin strax á eftir.
Síðan er unglingaflokkur og ungmennaflokkur kláraður.
Áhugamanna og meistaraflokkur reka síðan lestina með úrslitum í endann.
Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokki eru tveir inn á í einu og stjórnað af þul.
Í meistaraflokki er einn inn á í einu.
Videó
febrúar 13, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Á morgun þriðjudag er videó – upptaka af þátttakendum í virka-daga-starfi hestamannafélaganna.
Sjá lista frá fyrri viku og póst.
Grunnskólamót 2012
febrúar 13, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
NÝJAR dagsetningar
Því miður þurfum við að breyta áður auglýstum dagsetningum fyrir Grunnskólamótin í vetur.
Mjög erfitt er að finna daga sem skarast sem minnst á við það sem er á dagskrá hjá skólunum og hestamannafélögunum, en endanlegar dagsetningar eru eftirfarandi:
4. mars , Fegurðarreið (1.-3. bekkur), Tölt (4.-10. bekkur) og Skeið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga
18. mars , Fegurðarreið (1.-3. bekkur), Tvígangur (4.-7. bekkur), Þrígangur (4.-7. bekkur), Fjórgangur (8.-10. bekkur) og Skeið í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki
25. mars , Þrautabraut (1.-3. bekkur), Smali (4.-10. bekkur) og Skeið (8.- 10.bekkur) í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.
——- Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. ——-
Nánar auglýst þegar nær dregur.
Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra
Skagfirska mótaröðin
febrúar 7, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Skagfirska mótaröðinhefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í fjórgangi.
Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og meistaraflokki.
Keppni hefst kl. 18:00 á barnaflokki. Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12. febrúar á netfangið fritz@mi.is. Það verður kjötsúpa í kvöldmat eftir kl 19:00
Næsta mót verður 29. febrúar.
Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki. Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.
Þriðja mótið verður haldið þann 14. mars.
Ungmenni, áhugamenn og meistarar keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi.
Fjórða og síðasta mótið er svo áætlað 28.mars.
Í barnaflokki og unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið í þeirri grein.
Skagfirska mótaröðin er stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótinu.





