Árshátíð Léttfeta
26. febrúar 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Árshátíð Léttfeta verður haldin í Tjarnarbæ laugardagskvöldið 6. mars 2010.
Félagar eru kvattir til að mæta og taka með sér gesti. Húsið opnar kl 20:00 en borðhald hefst kl 20:30.
Í boði verður matur og gaman frá meistara Óla á Hellulandi og væri það óðs manns æði að telja það allt upp.
Engin drykkjarföng verða seld á staðnum. Skemmtiatriði verða að venju t.d. pistill ferðanefndar, leikrit, söngur og trall.
Síðan spilum við hljómdiska fram eftir nóttu. Herlegheitin kosta aðeins 3000 kr. per haus.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir miðvikudagskvöldið 3. mars til Steinunnar í síma 865-0945 eða Geira í síma 894-5832.
PS hátíðin verður haldin:-)



