Skagfirska – mótaröðin

mars 27, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

 

 

 

Á miðvikudagskvöldið verður keppt í Tölt barna og unglinga flokk, slaktaumatölt opinn flokkur og í skeiði.  Mótið hefst kl. 18:00 og aðgangseyrir er 1000 krónur.

 

Ráslisti  Skagfirska mótaröðin 28. mars - til útprentunar

 

 

 

Tölt barnaflokkur

 

1.  Júlía Kristín Pálsdóttir Valur frá Ólafsvík

 

1.  Helgi Gestsson Máki frá Borgarhóli hægri.

 

2. Ingunn Ingólfsdóttir Morri frá Hjarðarhaga vinstri

 

2.  Stefanía Sigfúsdóttir Ljós frá Syðra Vallholti

 

3.  Björg Ingólfsdóttir  Hnokki frá Dýrfinnustöðum vinstri

 

3.  Sigurður Bjarni Aadnegard Prinsessa frá Blönduósi vinstri

Read more

Grunnskólamót – úrslit

mars 26, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

 

Þriðja og síðasta mótið í Grunnskólamótaröðinni var haldið í gær í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi, þátttaka var mjög góð og þó það hafi rignt ögn í örstutta stund þá hafði það ekki áhrif á krakkana. Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra standa saman að þessari mótaröð og  þátttökurétt hafa börn og unglingar á grunnskólaaldri á svæðinu og keppa þau í nafni þess skóla sem þau stunda nám við, skólarnir eru alveg ótengdir mótunum að öðru leiti.  Þetta er fjórða árið sem þessi mótaröð er haldin og viljum við (Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna) þakka öllum sem komið hafa að undirbúningi, aðstoð og framkvæmd mótanna, sem og þeim sem hafa hliðrað til í hesthúsum sínum og lánað aðstöðu til keppenda á mótunum á hverjum stað.  Þátttaka á mótunum hefur verið mjög góð og frábær liðsandi hjá skólunum og góð stemming á hverjum stað.  Á mótunun í vetur voru voru milli 60-70 krakkar að taka þátt á hverju móti fyrir sig, velríðandi og prúðir knapar, glæsilegur hópur sem við megum vera stolt af.  Til hamingju með flottan árangur í vetur. Hlökkum til að sjá ykkur næsta vetur.

 

Varmahlíðarskóli vann stigakeppnina 4. skiptið í röð og óskum við þeim innilega til hamingju með það. Á hæla þeim var Grunnskóli Húnaþings vestra  og  var mjótt á munum á öllum mótunum, sem gerir þetta skemmtilegt og spennandi á að horfa.

 

Stigakeppnin fór svo:
1. sæti Varmahlíðarskóli með 105 stig
2. sæti Grunnskóli Húnaþings vestra  með 94 stig
3. sæti Húnavallaskóli með 78 stig
4. sæti Árskóli með 42 stig
5. sæti Blönduskóli með 39 stig
6. sæti Grunnskólinn austan Vatna 21 stig

 

Stigahæstu knapar:
1.-3. bekk  – Björg Ingólfsdóttir  með 30 stig
4.-7. bekk  -  Ingunn Ingólfsdóttir   með 18 stig
8.-10 bekk  -   Ásdís Ósk Elvarsdóttir  með 27 stig

Read more

Grunnskólamót – Þrautabraut og Smali – Ráslistar

mars 24, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Þriðja og síðasta Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verður í Reiðhöllinni Arnargerði á  Blönduósi sunnudaginn 25. mars  kl: 13:00. 

Skráningargjald er

 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr fyrir
næstu skráningar
og skal greiða á staðnum áður en mót
hefst (með peningum – ekki kort).

Read more

Grunnskólamót – Þrautabraut – Smali – Skeið

mars 21, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Þrautabraut – Smali – Skeið


Þriðja og síðasta Grunnskólamót hestamannafélaga 
á Norðurlandi vestra verður í 
Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi


sunnudaginn 25. mars kl: 13:00.

Keppnisgreinar eru:

1. – 3. bekkur þrautabraut
4 – 10. bekkur smali
8. – 10. bekkur skeið
   ( ef veður og aðstæður leyfa)

 

Skráningar þurfa að hafa borist fyrir
miðnætti miðvikudaginn 21. mars  á
netfangið:
    neisti.net@simnet.is

Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa

nafns hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein.

 

Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu,
500 kr fyrir næstu skráningar

og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.  

Read more

Aðalfundur – Léttfetafélagar

mars 19, 2012 -  
Tilheyrir Uncategorized

Aðalfundur hestamannafélagsins Léttfeta verður haldinn í Tjarnarbæ,

mánudagskvöldið 19. mars kl. 20:00

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin

Grunnskólamót – úrslit

mars 19, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

 

 

 

Annað mótið í grunnskólakeppni Norðurlands vestra var haldið i reiðhöllinni Svaðastöðum í gærdag. Er alltaf jafn gaman að sjá hve krakkarnir eru orðnir færir að stjórna og sitja hrossinum bæði í forkeppni og úrslitum þar sem fleiri eru inn á.Meira segja í einum b-úrslitum í gær voru átta keppendur inná þar sem fjórir voru með sömu einkunn eftir forkeppni. Þetta tafði mótið en krakkarnir láta það ekkert á sig fá. Sem sagt var góðum degi varið að horfa og fylgjast með upprennandi stórstjörnum hestamennskunnar.

 

Athugið – næsta Grunnskólamót ( og líka það síðasta þessa árs) verður á Blönduósi sunnudaginn 25.Marz -

=  eða NÆSTA SUNNUDAG !  =

 

 

Úrslit keppnarinnar eru eftirfarandi:

 

 

 

Fegurðarreið 1. – 3. bekkur Forkeppni
 Holl –  hönd – Nafn –  Bekkur – Skóli – hestur
1 V Björg Ingólfsdóttir 3 Varmahlíðarskóli Hnokki f. Dýrfinnustöðum 6,0
1 V Júlía Kristín Pálsdóttir Varmahlíðarskóli Valur f.Ólafsvík 5,5
2 H Viktoría Lind Björnsdóttir 2 Árskóla Fáni f. Hvítárholti 4,25
2 H Hafdís María Skúladóttir Grsk. Húnaþings vestra Funi f. Fremri Fitjum 5,25
3 V Einar Pétursson 2 Húnavallaskóli Jarl f. Hjallalandi 4,75
3 V Jón Hjálmar Ingimarsson 3 Varmahlíðarskóli Flæsa f. Fjalli 6,0
3 V Björg Ingólfsdóttir 3 Varmahlíðarskóli Svartifolinn f. Hafnarfirði 5,0

 

 

Fegurðarreið 1. – 3. Bekkur Úrslit

1. Björg Ingólfsdóttir 3 Varmahlíðarskóli Hnokki f. Dýrfinnustöðum 7,0

Read more

Grunnskólamót á sunnudaginn

mars 17, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Grunnskólamót – Fegurðarreið – Tvígangur – Þrígangur – Fjórgangur – Skeið

Á sunnudaginn verður annað af þremur Grunnskólamótum vetrarins í reiðhöllinni Svaðastaðir.

Mótið hefst klukkan 13:00

Þar verður keppt í :

Fegurðarreið 1. – 3. bekkur  =x=  Tvígangi og Þrígangi 4. – 7. bekkur =x= Fjórgangi 8. – 10. bekkur og í Skeiði 8. – 10. bekkur (ef aðstæður leyfa).

Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða (með peningum – kort ekki tekin) áður en mót hefst.

 Ef vantar skráningar á ráslistann,  vinsamlega hafið þá samband á lettfetar (hjá) gmail.com eða í síma 847 2685

 

Ráslisti – með fyrivara um breytingar – !

 

Read more

Úrslit í Skagfirsku mótaröðinni 14. mars

mars 15, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Þriðja og næstsíðasta mótið í Skagfirsku mótaröðinni var í reiðhöllinni Svaðastaðir í gærkvöldi, fjórða og síðasta mótið er áætlað 28. marz.  Dagskráin þá er í barnaflokki og unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður  keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið  í þeirri grein.

En úrslitin í gær voru eftirfarandi:

Fjórgangur barnaflokkur  -  Forkeppni

1. Viktoría Eik Elvarsdóttir-Máni frá Fremri Hvestu  5,87

2. Ingunn Ingólfsdóttir-Embla Dýrfinnustöðum  5,83

3. Ingunn Ingólfsdóttir-Morri Hjarðarhaga  5,80

4. Rakel Eir Ingimarsdóttir-Garður frá Fjalli  5,33

5. Sigurður Bjarni Aadnegard-Prinsessa frá Blönduósi  5,20

6. Björg Ingólfsdóttir-Magni Dallandi  4,83

7. Júlía Kristín Pálsdóttir-Valur frá Ólafsvík  4,53

8. Stefanía Sigfúsdóttir-Sigurdís frá Syðra Vallholti  4,10 Read more

FEIF Youth Cup 2012

mars 14, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Cup sem haldið verður dagana 7.-15.júlí n.k. Mótið er haldið í Verden í Þýskalandi. Heimasíðan www.feifyouthcup2012.de er upplýsingasíða mótsins.

Skilyrði fyrir þátttöku eru:
•    Reynsla í hestamennsku
•    Enskukunnátta
•    Keppnisreynsla í íþróttakeppni
•    Sjálfstæði
•    Geta unnið í hóp
•    Reglusemi

Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.

Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1.apríl 2012. Senda má umsóknir í tölvupósti á hilda@landsmot.is eða lh@isi.is

Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga

Skagfirska mótaröðin í kvöld !

mars 14, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

 

Í kvöld verður :

Keppt  í tölti í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.
Keppt verður í fjórgangi í barnaflokki og unglingaflokki.

Keppni hefst kl. 18:00 í barnaflokki.

Aðgangseyrir 1000,- Read more

« Undanfarandi síðaEftirfarandi síða »