Byggingadómar hrossa

22. mars 2010 -  
Tilheyrir: Fræðslu- og skemmtinefnd

Sýnikennsla í byggingu hrossa

Fyrirhugað er að halda sýnikennslu í byggingadómum hrossa í Reiðhöllinni Svaðastöðum þriðjudagskvöldið 23. mars næstkomandi. Kennslan hefst í Tjarnarbæ kl 20:00. Síðan verður farið yfir í reiðhöll og skoðuð bygging á nokkrum hrossum. Leiðbeinandi verður Víkingur Gunnarsson kynbótadómari og kennari við Háskólann á Hólum. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að fræðast um byggingu hrossa og þá þætti sem lagðir eru til grundvallar þegar hross kemur til dóms til þess að mæta.
Fræðslunefnd Léttfeta