Skagfirska mótaröðin

febrúar 7, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Skagfirska mótaröðinhefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í fjórgangi.

Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og  meistaraflokki.

Keppni hefst kl. 18:00 á barnaflokki. Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12.  febrúar á netfangið   fritz@mi.is.   Það verður kjötsúpa í kvöldmat eftir kl 19:00

 

Næsta mót verður 29. febrúar.

Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.  Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.

 

Þriðja mótið verður haldið þann 14. mars.

Ungmenni, áhugamenn og meistarar  keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi.

 

Fjórða og síðasta mótið er svo áætlað 28.mars.

Í barnaflokki og unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður  keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið  í þeirri grein.

 


Skagfirska mótaröðin er stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótinu.

Ísmót á Ólafsfjarðarvatni

febrúar 1, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Ísmót Gnýfara Ólafsfirði 11. febrúar n.k.  Keppt í tölti og skeiði, skráning fyrir kl. 22:00   –  9. febrúar.

sjá nánar á  -  http://gnyfari.fjallabyggd.is/is/news/istolt/

Íamót á Ólafsfjarðarvatni

Hestadagar í Reykjavík

janúar 26, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Hestadagar í Reykjavík

Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman.   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu“.

Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is

Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!

Meistaradeild Norðurlands -KS-deildin frestað

janúar 24, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

Stjórn Meistaradeildar Norðurlands hefur ákveðið að fresta úrtöku sem átti að vera miðvikud 25. jan til miðvikudagsins 1. febrúar. Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun meira en 20 m/s á Vestfjörðum síðdegis á morgun.

af vef Feykir

Félagsfundur 13. janúar

janúar 6, 2012 -  
Tilheyrir Almennt efni

 Félagsfundur Léttfeta í Tjarnarbæ föstudaginn 13. janúar kl 20:30

 Dagskrá
 
1. Félagsstarfið í vetur
2. Fluga hf hlutafjáraukning
3. Önnur mál  
 
Stjórnin

Jólakveðja

desember 24, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni

Gleðileg  jól,

óskum öllum félagsmönnum

Gleðilegra jóla og gæfu og farsældar
á nýju ári.

Óskum einnig félagsmönnum okkar til
hamingju sem hlutu tilnefningar og þeim unnu sigra á árinu sem er að líða.

Jólakveðja Léttfeti

Uppskeruhátíð Skagfirskra hestamanna í Tjarnarbæ í kvöld

desember 9, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni

“Maður er manns gaman”

 

Gleðifundur skagfirskra hestamanna

Í kvöld föstudaginn, 9. des. eru hestamenn boðaðir til gleðifundar í Tjarnarbæ við Sauðárkrók og hefst samkoman kl. 20:30.  Í boði verða veitingar framreiddar af Bíbí og Auði . Afhent verða afreksverðlaun ársins til hrossaræktenda og knapa.
Ræðumaður kvöldsins er Kristinn Hugason, fyrrv. hrossaræktarráðunautur BÍ. 

Tilnefningar til hestaíþróttamanns Skagafjarðar 2011:

 

- Barnaflokkur:         Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Guðmar Freyr Magnússon, Ingunn Ingólfsdóttir, Þórdís Inga Pálsdóttir.

- Unglingaflokkur:     Bryndís Baldursdóttir, Elín Magnea Björnsdóttir, Jón Helgi Sigurgeirsson

- Ungmennaflokkur: Hallfríður Óladóttir, Sigurður Rúnar Pálsson

- Fullorðinsflokkur:   Elvar E. Einarsson, Magnús Bragi Magnússon, Þórarinn Eymundsson

 

Tilnefningar til kynbótaknapa Skagafjarðar ársins 2011:

Bjarni Jónasson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson

.

Tilnefningar til hrossaræktarbús Skagafjarðar 2011:

Flugumýri II, Hólaskóli, Prestsbær

.

Verið velkomin
Hestamannafélögin í Skagafirði og HSS

Elhústækin

desember 9, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Smáréttahlaðborðið

Þá er lokið þessum áfanga í fjáröflun til að standa straum af tækjakaupum í eldhúsið.  Alls söfnuðust kr. 206,000  en þó vantar  í viðbót og er ætlunin að hvíla nú og safna kröftum þar til á nýju ári.

Við viljum þakka öllum sem á einhvern hátt styrktu okkur með ýmsu framlagi, vinnu, kökum, réttum, vinningum  og þeim fjölmörgu  sem komu og nutu um leið  góðs af þessu uppátæki okkar, vonum að allir hafi haft ánægju af.

 

 

Með ósk um gleðilega jólahátíð !

Fjáröflunarnefnd

Kökubingó !

nóvember 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Kökubingó á sunnudag klukkan 14:00 í Tjarnabæ

Á Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður kökubingó í Tjarnarbæ. 1000 krónur fyrsta spjald, kaffi og vöfflur í hléi  og viðbótar spjald/spjöld á 500 krónur stykkið.

 

Smárétta kvöld verður haldið sunnudaginn 27. nóv. , Þá ætlum við að hafa gaman saman með jólalegu ívafi –  nánar auglýst síðar

Léttfetafélagar sem og aðrir velkomnir.   Vinsamlega hafið með pening sem greiðslumiðil,  kort ekki tekin.

Nefndin

 

Hrossaveisla ! 11.11.11.

nóvember 11, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Hrossakjötsveisla í Tjarnarbæ

Frá klukkan 18:00 – 20:00  verður hrossakjöt:  folald – tryppi – fullorðið: saltað, nýtt, reykt, soðið, steikt, grillað, grafið og að sjálfsögðu meðlæti sem hæfir hverjum rétti.

Það ættu flestir að finna eitthvað gómsætt  á borðinu!!  Kaffi - rússur og notalegheit á eftir. 

 

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read more

Eftirfarandi síða »