Hestamenn safna fyrir eldhústækjum.

nóvember 2, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

 Fjáröflunarnefnd Léttfeta hyggst seðja svanga maga nú í nóvember til að fjármagna ný eldhústæki í félagsheimili þeirra, Tjarnabæ, og verður byrjað nk. föstudag á bleikjuþema.

Föstudaginn 4. nóv. kl 18-19:30  verður boðið upp á nokkra bleikjurétti, kaffi og súkkulaði á eftir.  Á meðan á borðhaldi stendur munu myndir úr ferðum félagsmanna vera  sýndar á myndvarpa.

 

Föstudaginn 11. nóv. kl 18-19:30 verður boðið upp á nokkrar útfærslur á hrossakjöti,  kaffi og rússur á eftir.

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read more

Úlpur – Verum sýnileg !

október 20, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Mátun á úlpum!!

Þið kannski munið eftir að í vor þá viðruðum við ykkur hugmynd um að fá tilboð og styrki til að bjóða þátttakendum barnastarfsins, úlpur til kaups með lógóinu okkar og  þeirra sem myndu vera svo góðir að styrkja okkur til að greiða þær eitthvað niður.  Þessi áprentun (lógóin)  yrði með endurskini til að auka á sýnileikann í myrkri og einnig eykur það öryggi, hvort sem flíkin er notuð þegar farið er á hestbak eða bara út að ganga ( skóli – vinna – skemmtun).

Það er boðið upp á að fullorðnir geti líka fengið sér úlpu en greiði þá hærra verð fyrir  – einungis niðurgreitt til krakkanna -
Sóla er búin að vera mjög dugleg að taka niður stærðir og pantanir en einhverjir eru enn eftir og því ætlum við að vera í Tjarnarbæ annað kvöld -  fimmtudag 20. okt  frá kl. 20:00- 21:00 ca. Því svo sendum við pöntunina frá okkur og reiknum ekki með að það verði pantað aftur á þessu tilboðsverði – börn  ca. 10.000 fer eftir styrkjum, fullorðnir eitthvað hærra  — verð birt með fyrirvara um breytingar —

Félagar —-  Endilega komið og lítið á þessar flottu úlpur.

 

 

VERUM SÝNILEG Í VETUR Í FLOTTUM ÚLPUM !!!!

ENDILEGA AÐ LÁTA ÞETTA BERAST til þeirra sem voru þátttakendur sem og foreldra/forrráða.

Vonumst til að þeir félagar sem hafa áhuga á úlpu komi og máti  -  kaffi á könnunni

 Kveðja

Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða

 

Látið þetta ekki framhjá ykkur fara !

 

 

 

Æskan og hesturinn 2011 á DVD

september 16, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Sýningin Æskan og hesturinn 2011 sem haldin var í vor í reiðhöllinni Svaðastaðir, var tekinn upp og er til á DVD-diski.
Þeir sem vilja eignast eintak sendi póst á lettfetar@gmail.com eða á vjmyndir@fjölnet.is

 

 

 

einnig er hægt að koma við á snyrtistofunni Táin, Skagfirðingabraut 6, Sauðárkróki.
Diskurinn kostar 2,500 + sendingarkostnað ef þarf að senda.

Einnig er hægt að safna saman pöntunum á sama svæði og nýta ef einhver er á ferðinni á milli.

Landsmótsnefnd á ferð

september 12, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni

Landsmótsnefndin hefur síðustu tvær vikur fundað á Hornafirði, Egilsstöðum, Akureyri, Hvanneyri, Hvolsvelli og í Reykjavík.

Fundaröðinni lýkur á Blönduósi þann 13. september næstkomandi með fundi í reiðhöllinni Arnargerði kl. 20:00.

Allir hestamenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í málefnalegum umræðum um málefni landsmót, koma með fyrirspurnir og tjá skoðanir sínar.

Landsmótsnefnd og stjórnir LH og LM.

Fákaflug um verslunarmannahelgina

júlí 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni

 Fákaflug 2011 verður haldið á Vindheimamelum dagana 29.-31. júlí nk.

Keppt verður í A-flokk, B-flokk, Ungmennaflokk, Unglingaflokk, Barnaflokk, 100m skeiði, tölti og ef næg þátttaka fæst verður einnig keppt í 300m brokk og 250m stökk kappreiðum. Keppt verður í sérstakri forkeppni.

Skráning er hjá Guðmundi á netfanginu badboy@simnet.is og lýkur skráningu á miðnætti þann 25. júlí.

Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins við skráningu. Skráningargjald er kr. 3.000,- og skal það greiðast inn á reikning 161-26-269, kt.620269-6979 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á badboy@simnet.is.

Mótið hefst föstudagskvöldið 29. júlí kl.18:00 á forkeppni í tölti, nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Lummudagar

júní 22, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Á morgun, fimmtudag fer fram setning Lummudaga í fjörunni hjá Siglingaklúbbnum kl. 19:30   

 Kveikt í brennu, söngur glens og gaman.  

Hvernig væri að taka þátt í hópreið í byrjun Lummudaga ?

Safnast saman við Tjarnarbæ  kl. 19:00  

Allir velkomnir.

Forsvarsmenn Léttfeta á Landsmóti 2011

júní 17, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

A  -    Flokkur

Vafi frá Ysta-Mói og Magnús Bragi Magnússon 8.40

Hnokki frá Þúfum og Mette Mannseth 8.36

Háttur frá Þúfum og Mette Mannseth 8.28

Varahestur Dofri frá Úlfsstöðum og Skapti Steinbjörnsson 8.20

B  -    Flokkur

Óði Blesi frá Lundi og Sölvi Sigurðsson 8.58

Komma frá Garði og Bjarni Jónasson 8.49

Veigar frá Narfastöðum og Julia S. Ludwiczak 8.27

Varahestur Vornótt frá Hólabrekku og Líney María Hjálmarsdóttir 8.18

Ungmennaflokkur

Annette Tiderman og Gnótt frá Grund II 8.23

Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir og Kolgerður frá Vestri Leirárgörðum 8.22

Karitas Guðrúnardóttir og Seiður frá Kollaleiru 7.96

Varaknapi Laufey Rún Sveinsdóttir og Ótti frá Ólafsfirði 7.82

Unglingaflokkur

Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Gustur frá Nautabúi 8.36

Elín Magnea Björnsdóttir og Stefnir frá Hofstaðarseli 8.13

Bryndís Rún Baldursdóttir og Birna frá Vatnsleysu 8.01

Varaknapi Friðrik Andri Atlason og Hvella frá Syðri-Hofdölum 7.83

Barnaflokkur

Guðmar Freyr Magnússon og Frami frá Íbishóli 8.19

Hólmfríður Sylvía Björnsdóttir og Fjóla frá Fagranesi 8.02

Magnús E. Magnússon og Bjartur frá Garðakoti 7.93 Varaknapi

Stella Finnbogadóttir og Hersir frá Enni 7.87

Einnig áttum við glæsilega félagsmenn og konur í töltinu og þar má nefna fremstan Bjarna Jónasson á Kommu frá Garði  og Sölva Sigurðarson á Óða Blesa frá Lundi sem voru jafnir á toppnum með 7.43

Mótanefndin vill óska landsmótsförum innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis á landsmóti  : )

Úrslit úrtökumóts Léttfeta, Stíganda og Svaða

júní 14, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Úrslit á Úrtökumóti hestamannafélaganna Stíganda, Léttfeta og Svaða

A-flokkur

  1. Vafi Ysta-Mói og Magnús B Magnússon                                               4,40       Léttfeti
  2. Seyðir Hafsteinsstöðum og Þórarinn Eymundsson                         8,37       Svaði
  3. Hnokki Þúfum og Mette Mannseth                                                          8,36       Léttfeti
  4. Ljúfur Hofi og Friðgeir Jóhannsson                                                        8,30       Svaði
  5. Háttur Þúfum og Mette Mannseth                                                           8,28       Léttfeti
  6. Hreimur Flugumýri og Eyrún Pálsdóttir                                              8,26       Stígandi
  7. Gáski Pulu og Páll Bj.Pálsson                                                                     8,25       Stígandi
  8. Dofri Úlfstöðum og Skapti Steinbjörnsson                                          8,20       Léttfeti Read more

Úrtaka fyrir landsmót 2011

júní 12, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni

Ráslisti úrtöku Stíganda, Léttfeta og Svaða fyrir landsmót hestamannafélaga á Vindheimamelum mánudaginn 13. júní, 2011 .

Dagskrá úrtökunnar

10:00  A-Flokkur
11:30  Ungmennaflokkur
12:30  Matarhlé
13:00  B-Flokkur
15:00  Barnaflokkur
16:15  Kaffihlé
16:30  Unglingaflokkur
18:30  Tölt
20:10  Skeiðgreinar

A – flokkur Read more

Drög að dagskrá sumarsins hjá ferðanefnd Léttfeta

maí 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd

Laugardaginn 28.maí – Karla/kvenna reiðtúr með léttu ívafi og grill í Tjarnarbæ á eftir.

Mánudaginn 13.júní (annar í Hvítasunu)- Fjölskyldureiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.

Föstudaginn 24.júní – Jónsmessureið.

Hugmynd að sameiginlegum reiðtúr á Landsmót ef áhugi er fyrir hendi.

Laugardaginn 16.júlí – Léttur reiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.

Helgina 5.-7.ágúst – Stóra ferðin.

Allir atburðir verða auglýstir nánar þegar nær dregur og þetta er einnig birt með fyrirvara um breytingar.

.

Ferðanefndin.

« Undanfarandi síðaEftirfarandi síða »