Landsmót 50+ 2012
mars 12, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Heilir og sælir kæru hestamenn
Helgina 8. – 10. júní verður haldið 2. Landsmót UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ.
Á mótinu verður keppt í hestaíþróttum: fjórgangi, fimmgangi og tölti. Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti og senda þessar upplýsingar á sem flesta.
Mótið er íþrótta – og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða frítt á fyrirlestrar, kynningar á íþróttagreinum, hóptímar í m.a. sundleikfimi, Zumba og línudansi. Einnig verður boðið upp á heilsufarsmælingar og fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða.
Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasambands Kjalarnesþings og Ungmennafélags Íslands í samstarfi við Mosfellsbæ og Heilsuvin.
Keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, badminton, blak, boccia, bridds, frjálsar, hestaíþróttir, hringdansar, knattspyrna, kraftlyftingar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, strandblak, sund, sýningar og þríþraut.
Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins hvort sem þeir eru í félagi eða ekki.
Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast þar með þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda. Frítt verður á tjaldstæði mótshelgina í Mosfellsbæfellsbæ. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is.
Aðstaða til keppni í hestaíþróttum er öll til fyrirmyndar í Mosfellsbæ ásamt annarri íþróttaaðstöðu.
Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ helgina 8. – 10. júní 2012 kát og hress .
Mínar allra bestu kveðjur,
Sigurður Guðmundsson framkvæmdarstjóri Landsmóts UMFÍ 50 +
Frekari upplýsingar um mótið er að finna inn á http://www.landsmotumfi50.is/ eða senda póst á sigurdur@umfi.is sími: 568-2929
Grunnskólamót á Hvammstanga – úrslit
mars 6, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Í gær var haldið í Þytsheimum á Hvammstanga fyrsta af þremur Grunnskólamótum hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra í vetur. Æskulýðsnefndir félaganna standa að þessari mótaröð. Þátttökurétt hafa börn og unglingar á grunnskólaaldri á svæðinu og keppa þau í nafni þess skóla sem þau stunda nám við, skólarnir eru alveg ótengdir mótunum að öðru leiti.
Mótið tókst mjög vel, góð þátttaka, góð stemning og gott veður. Æskulýðsnefnd Þyts þakkar öllum keppendum, aðstandendum þeirra og öllum starfsmönnum kærlega fyrir mjög góðan dag.
Næsta mót verður í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki sunnudaginn 18. mars , þar verður keppt í:
Fegurðarreið 1.-3. bekkur, Tvígangur 4.-7. bekkur, Þrígangur 4.-7. bekkur, Fjórgangur 8.-10. bekkur og Skeið 8.-10. bekkur.
Úrslitin voru eftirfarandi:
|
Fegurðarreið 1.-3 bekkur |
|||||||
|
Nafn |
Hestur |
litur |
Bekkur |
Skóli |
Úrslit |
Fork |
|
| 1 | Björg Ingólfsdóttir | Hnokki frá Dýrfinnustöðum | grár 8v | 3 | Varmahl.sk | 7,75 | 6,75 |
| 2 | Jón Hjálmar Ingimarsson | Flæsa frá Fjalli | jarpblesó 8v | 3 | Varmahl.sk | 6,25 | 5,50 |
| 3 | Júlía Kristín Pálsdóttir | Náð frá Flugumýri | bleikálótt 8v | 3 | Varmahl.sk | 5,50 | 4,75 |
| 4 | Einar Pétursson | Prímus frá Brekkukoti | rauðglófext 7v | 2 | Húnavallask | 5,25 | 4,50 |
| 5 | Rakel Gígja Ragnarsd | Uggur frá Grafarkoti | brúnblesó 6v | 2 | Gr.Húnaþ ve | 4,00 | 3,00 |
|
Tölt 4. – 7. bekkur |
B-úrslit |
|||||||
|
Nr |
Nafn |
Hestur |
Litur/aldur |
Bekkur |
Skóli |
Fegurðartölt |
Úrslit |
Fork |
|
6 |
Sigurður Bjarni Aadnegard | Prinsessa frá Blönduósi | leirljós 7v | 7 | Blönduskóli | 5,67 | 5,50 | |
|
7 |
Sólrún Tinna Grímsdóttir | Gjá frá Hæli | brún 11v | 6 | Húnavallask | 5,17 | 5,35 | |
|
8 |
Viktor Jóhannes Kristófersson | Geisli frá Efri-Þverá | rauður 11v | 7 | Gr.Húnaþ ve | 4,42 | 4,85 | |
|
9 |
Anna Herdís Sigurbjartsdóttir | Funi frá Fremri-Fitjum | móskj 13v | 7 | Gr.Húnaþ ve | 4,42 | 4,95 |
|
Tölt 4. – 7. bekkur |
A-úrslit |
||||||
|
Nr |
Nafn |
Hestur |
Litur/aldur |
Bekkur |
Skóli |
Úrslit |
Fork |
|
1 |
Ingunn Ingólfsdóttir | Hágangur frá Narfastöðum | rauðglófe 15v | 6 | Varmahl.sk |
6,42 |
6,50 |
|
2 |
Rakel Eir Ingimarsdóttir | Vera frá Fjalli | bleikálótt 8v | 7 | Varmahl.sk |
6,17 |
5,65 |
|
3 |
Viktoría Eik Elvarsdóttir | Máni frá Fremri-Kvestu | brúnskj 18v | 7 | Varmahl.sk |
5,83 |
5,65 |
|
4 |
Karítas Aradóttir | Gyðja frá Miklagarði | jörp 11v | 6 | Gr.Húnaþ ve |
5,83 |
5,70 |
|
5 |
Sigurður Bjarni Aadnegard | Prinsessa frá Blönduósi | leirljós 7v | 7 | Blönduskóli |
5,75 |
5,50 |
|
6 |
Lilja María Suska | Feykir frá Stekkjardal | rauður 6v | 5 | Húnavallask |
5,33 |
5,75 |
|
Tölt 8. – 10. bekkur |
B-úrslit |
||||||
|
Nr |
Nafn |
Hestur |
Litur/aldur |
Bekkur |
Skóli |
Úrslit |
Fork |
|
5 |
Helga Rún Jóhannsdóttir | Logadís frá Múla | rauðstj 5v | 10 | Gr.Húnaþ ve |
6,50 |
5,85 |
|
6 |
Sigurgeir Njáll Bergþórsson | Hátíð frá Blönduósi | grár 9v | 9 | Blönduskóli |
6,33 |
5,90 |
|
7 |
Gunnar Freyr Gestsson | Flokkur frá Borgarhóli | rauður 8v | 10 | Varmahl.sk |
6,33 |
6,00 |
|
8 |
Ragnheiður Petra Óladóttir | Rán frá Skefilsstöðum | rauðstjörnótt 7v | 10 | Árskóli |
6,25 |
5,95 |
|
9 |
Ragna Vigdís Vésteinsdóttir | Glymur frá Hofstaðaseli | móvindsk 8v | 9 | Varmahl.sk |
5,67 |
5,85 |
|
Tölt 8. – 10. bekkur |
A-úrslit |
||||||
|
Nr |
Nafn |
Hestur |
Litur/aldur |
Bekkur |
Skóli |
Úrslit |
Fork |
|
1 |
Þórdís Inga Pálsdóttir | Kjarval frá Blönduósi | grár 7v | 8 | Varmahl.sk |
7,50 |
6,65 |
|
2 |
Birna Olivia Agnarsdóttir | Jafet frá Lækjamóti | brúnn 9v | 10 | Gr.Húnaþ ve |
6,83 |
6,25 |
|
3 |
Ásdís Ósk Elvarsdóttir | Ópera frá Brautarholti | rauðblesó 9v | 8 | Varmahl.sk |
6,67 |
6,35 |
|
4 |
Fanndís Ósk Pálsdóttir | Glaðværð frá Fremri-Fitjum | brúnskj 11v | 10 | Gr.Húnaþ ve |
6,58 |
6,25 |
|
5 |
Helga Rún Jóhannsdóttir | Logadís frá Múla | rauðstj 5v | 10 | Gr.Húnaþ ve |
6,33 |
5,85 |
|
Skeið 8. -10. bekkur |
||||||
|
Nr |
Nafn |
Hestur |
Litur/aldur |
Bekkur |
Skóli |
Besti tími |
| 1 | Helga Rún Jóhannsdóttir | Hvirfill frá Bessastöðum | rauðstjörnó 11v | 10 | Gr.Húnaþ ve | 4,46 |
| 2 | Haukur Marian Suska | Tinna frá Hvammi II | brún 7v | 10 | Húnavallask | 4,70 |
| 3 | Kristófer Smári Gunnarsson | Kofri frá Efri-Þverá | rauður 9v | 10 | Gr.Húnaþ ve | 4,76 |
| 4 | Ásdís Ósk Elvarsdóttir | Hrappur frá Sauðárkróki | bleikálóttur 10v | 8 | Varmahl.sk | 4,77 |
| 5 | Hanna Ægisdóttir | Gúrkublesa frá Stekkjarhlíð | rauðblesó | 10 | Húnavallask | 5,01 |
Grunnskólamót – Dagskrá og ráslisti
mars 4, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Mótið verður sunnudaginn 4. mars í Þytsheimum á Hvammstanga og hefst kl. 13:00.
Dagskrá:
- Fegurðarreið 1.-3. bekkjar
- Tölt 4.-7. bekkjar
- B-úrslit í tölti 4.-7. bekkjar
- stutt hlé
- Tölt 8.-10. bekkjar
- B-úrslit í tölti 8.-10.bekkjar
- 15 mínútna hlé
- A-úrslit í tölti 4.-7. bekkjar
- A-úrslit í tölti 8.-10. bekkjar
- stutt hlé
- Skeið 8.-10. bekkjar
Úrslit í Skagfirsku mótaröðinni – fimmgang
mars 3, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Tölt barnaflokkur – Forkeppni
1. Björg Ingólfsdóttir á Hnokka frá Dýrfinnustöðum 5,37
2. Viktoría Eik Elvarsdóttir Máni frá Fremri-Hvestu 5,30
3. Rakel Eir Ingimarsdóttir-Vera frá Fjalli 4,70
4. Ingunn Ingólfsdóttir á Emblu frá Dýrfinnustöðum 4,60
5. Ingunn Ingólfsdóttir-Grímhildur frá Tumabrekku 4,50
6. Stefanía Sigfúsdóttir Sigurdís frá Syðra Vallholti 3,77
Tölt barnaflokkur – Úrslit
1. Björg Ingólfsdóttir á Hnokka frá Dýrfinnustöðum 5,67
2. Viktoría Eik Elvarsdóttir Máni frá Fremri-Hvestu 5,56
3. Rakel Eir Ingimarsdóttir-Vera frá Fjalli 5,44
Skagfirska mótaröðin
febrúar 28, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Fimmgangur og tölt – Ráslisti
Skagfirska mótaröðin heldur áfram næsta miðvikudagskvöld með hörkumóti með mörgum áhugaverðum hrossum og knöpum.
Þá verður keppt í fimmgangi ungmenna,-áhugamanna og meistaraflokki og einnig keppt í tölti í barna og unglingaflokki.
Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokki eru tveir inn á í einu og stjórnað af þul.
Mótið hefst klukkan 18:00 með töltinu og það klárað,
hlé gert eftir það og keppni í fimmgangi að því loknu.
Aðgangseyrir 1000 kr.-
Grunnskólamót 4. marz á Hvammstanga !
febrúar 27, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Unglingaráð
Sunnudaginn 4. mars verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið klukkan 13:00 Þetta er fyrsta mótið í vetur og vonumst við eftir góðri þátttöku og skemmtilegri keppni eins og síðastliðin ár.
Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudag, 29. febrúar á netfangið: thyturaeska@gmail.com
Keppt verður í:
1. – 3. bekkur fegurðarreið
4. – 7. bekkur tölt
8. – 10. bekkur tölt
8. – 10. bekkur skeið, ef veður og aðstæður leyfa
Við skráningu skal koma fram:
nafn, bekkur og skóli knapa – - nafn hests og uppruni, aldur og litur – - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt.
1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra.
2. Keppnisgreinar eru:
Ø Fegurðarreið 1. – 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 – 3 keppendur inná í einu.
Ø Tvígangur 4. – 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Ø Þrígangur 4. – 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd.
Ø Fjórgangur 8. – 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk.
Ø Þrautabraut 1. – 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í þvermál.
Ø Smali 4. – 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2×4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn
Ø Tölt 4. – 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir .
Ø Tölt 8. – 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir .
Ø Skeið 8. – 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.
¨ Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.
v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.
3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis.
4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar.
5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur
6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. – 7. bekk, verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum.
7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa.
8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti.
9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar.
10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur.
11. Í Tölti 4. – 7. og 8. – 10. bekk og Fjórgangi 8. – 10. bekk skulu riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Stig:
Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið,
Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis.
1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla
2. sæti gefur 8 stig
3. sæti gefur 7 stig
4. sæti gefur 6 stig
5. sæti gefur 5 stig.
Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein.
1. sæti gefur 5 stig
2. sæti gefur 4 stig
3. sæti gefur 3 stig
4. sæti gefur 2 stig
5. sæti gefur 1 stig.
Úrslit í Fjórgangi
febrúar 17, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Næsta mót verður 29. febrúar.
Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.
Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.
Úrslit í Fjórgangi í Skagfirsku mótaröðinni 15. febrúar
Skagfirska mótaröðin 2012
febrúar 14, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Fjórgangur
Fjórgangur 15. febrúar 2012 ( ráslisti til útprentunar )
Hefst miðvikudaginn 15.febrúar klukkan 18:00
með forkeppni í barnaflokki og úrslit riðin strax á eftir.
Síðan er unglingaflokkur og ungmennaflokkur kláraður.
Áhugamanna og meistaraflokkur reka síðan lestina með úrslitum í endann.
Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokki eru tveir inn á í einu og stjórnað af þul.
Í meistaraflokki er einn inn á í einu.
Skagfirska mótaröðin
febrúar 7, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Skagfirska mótaröðinhefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í fjórgangi.
Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og meistaraflokki.
Keppni hefst kl. 18:00 á barnaflokki. Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12. febrúar á netfangið fritz@mi.is. Það verður kjötsúpa í kvöldmat eftir kl 19:00
Næsta mót verður 29. febrúar.
Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki. Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.
Þriðja mótið verður haldið þann 14. mars.
Ungmenni, áhugamenn og meistarar keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi.
Fjórða og síðasta mótið er svo áætlað 28.mars.
Í barnaflokki og unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið í þeirri grein.
Skagfirska mótaröðin er stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótinu.
Ísmót á Ólafsfjarðarvatni
febrúar 1, 2012 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni
Ísmót Gnýfara Ólafsfirði 11. febrúar n.k. Keppt í tölti og skeiði, skráning fyrir kl. 22:00 – 9. febrúar.
sjá nánar á - http://gnyfari.fjallabyggd.is/is/news/istolt/






