1001 Þjóðleið

nóvember 21, 2011 -  
Tilheyrir eitt og annað . . .

Jónas Kristjánsson hefur áratugum saman skrásett þjóðleiðir á Íslandi og birtist afraksturinn í einstakri bók sem nú býðst félagsmönnum í hestamannafélögum á sérstöku kynningartilboði.

 

Í bókinni er yfir 1.000 reið- og gönguleiðum lýst og þær sýndar á vönduðum kortum. Stafrænn diskur sem gerir kleift að hlaða leiðunum inn í GPS-tæki fylgir.

1001 Þjóðleið

KJÖRGRIPUR FYRIR ALLA HESTAMENN SEM FERÐAST UM LANDIÐ.

 

KYNNINGARTILBOÐ:

Verð til félagsmanna kr. 17.900 með sendingarkostnaði (almennt verð kr. 22.900).  Tilboðið gildir til 1. desember 2011.

 

PANTANIR:

Sendið pantanir á tölvupósti:   lhhestar@sogurutgafa.is   (tilgreinið nafn, heimilisfang, símanúmer, fjölda eintaka og greiðslumáta (bankamillifærsla eða kreditkort).     Eða hringið í síma 557-3100

 

 

Landsmót

júní 22, 2011 -  
Tilheyrir eitt og annað . . .

Þeir félagar sem áhuga hafa að taka þátt í hópreiðinni á Landsmótinu sem fulltrúar Léttfeta hafi samband við Geira í síma 894 5832  eða geir@fnv.is  fyrir þriðjudagskvöld 28. júní.   

Setningarathöfnin er kl. 20:00 – 21:00 á fimmtudag 30. júní.

Lummudagar

júní 22, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Á morgun, fimmtudag fer fram setning Lummudaga í fjörunni hjá Siglingaklúbbnum kl. 19:30   

 Kveikt í brennu, söngur glens og gaman.  

Hvernig væri að taka þátt í hópreið í byrjun Lummudaga ?

Safnast saman við Tjarnarbæ  kl. 19:00  

Allir velkomnir.

Stóra Léttfetaferðin 6. til 8. ágúst 2010.

ágúst 18, 2010 -  
Tilheyrir eitt og annað . . ., Ferðanefnd

  
 
 
 
 

Merkigil

Hin árlega stóra Léttfetaferð var farin dagana  6,7 og 8  ágúst. Að þessu sinni var stefnan tekin í Austurdalinn.  Hófst ferðin í Miðsitju föstudaginn 6. ágúst kl. 13,00.  Þó  var allnokkur  hópur, sem lagði af stað frá Sjávarborg miðvikudagskvöldið 4. ágúst og reið fram í Torfgarð.  Daginn eftir var svo farið úr Torfgarði niður hjá Garðhúsum og yfir Húseyjakvísl,  gegnum hlaðið í Krossanesi.   Farið þaðan meðfram veginum fram í Miðsitju, með stoppi á Höskuldsstöðum. Gekk þetta mjög vel, þrátt fyrir  mikla bílaumferð austur Hólminn og fram Blönduhlíð.            

            

Föstudagur 6. ágúst, lagt af stað kl. 13,00  frá Miðsitju, 18 manns og 106 hross,  stoppað var í Silfrastaðarrétt.  Þaðan  farið í Flatatungu og  Kelduland, þar sem Stebbi bóndi bauð ferðafólki uppá kaffi.  Eftir kaffið hans Stebba sem er annálað fyrir gæði var haldið að Gilsbakka, það var síðasta stopp fyrir náttstað, sem var Merkigil. Komið þangað kl. 19,00.  Úr Miðsitju í Merkigil eru c/a 25 km.  Veðrið var mjög gott 18 til 20 stiga hiti, en það helliringdi síðustu tvo tímana.  Í Merkigili biðu þau Bjössi og Edda  með matinn. Tekið var hraustlega til  matarins enda allir orðnir svangir.  Kvöldinu var eytt með því að sagðar voru sögur, spilað og sungið.            

           

Laugardagur 7. ágúst, lagt af stað kl. 13,00  fram að Ábæ og stoppað í gömlu steinréttinni . (það er verið að gera hana upp ) Þar skiptist hópurinn í tvennt, sumir riðu frammí Fögruhlíð.  Þar sem þeir hittu Kristján í Stóradal og fleiri húnvetninga, sem voru þar í hestaferð.  En hinir snéru við í Merkigil. Allir voru komnir þangað kl. 18,30. Úr Merkigili framí Fögruhlíð og í Merkigil aftur eru ca.  44 km.   Sól, þurrt og 16 til 18 stiga hiti. Um kvöldið var grillað, sungið,spilað og sagðar sögur fram á kvöldið.           

       

            

Sunnudagur 8.ágúst. Lagt af stað kl. 13,00. Farið yfir Jökulsárbrúna og í Bústaði. Þaðan í Birgisskarð og Tunguháls, þar sem ferðafólk borðaði nestið sitt. Næst var stoppað í Sveinsstaðarrétt.  Síðasti leggurinn var í Mælifelsrétt.  Þangað var komið kl. 18,30.  Úr Merkigili í Mælifellsrétt eru ca. 38 km. Sól og blíða og 15 til 17 stiga hiti.         

Ferðinni lauk svo formlega í Mælifellsrétt .  Í ferðinni voru 24 manns og 106 hross.   Eina óhappið í ferðinni var að einn hestur skarst á fæti í Austurdalnum og þurfti að koma honum með kerru til byggða.            

Við í ferðanefnd Léttfeta þökkum kærlega, öllum þeim sem tóku þátt og aðstoðuðu okkur í og við ferðina.          

 

Ferðanefnd Léttfeta.  

 

       

Landsmót 2012 . . . .

mars 10, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undirritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi Hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að Landsmót skyldi haldið í Reykjavík.

Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undirritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi Hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að Landsmót skyldi haldið í Reykjavík.

Hestamannafélögin Geysi, Léttfeti, Sindri og Stígandi sendu í kjölfarið frá sér fréttatilkynningu þar sem þau furða sig á vinnubrögðum formanns LH, telja þau ólýðræðisleg og ekki sé unnið af heilindum. „Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Haraldur hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann hafnar því að hafa beitt ólýðræðislegum vinnubrögðum. Beðið hafi verið um fundinn með sólarhringsfyrirvara og hafi hann átt erfitt um vik að verða við því, enda hafi verið stefnt að fundi með Fáksmönnum á svipuðum tíma. Hafi síðar komið í ljós að fundartíminn hefði ekki hentað og hann tjáð formanni Stíganda það í síma. Ákveðið hafi verið að sá fundur færi fram 9. mars. Þá segir Haraldur í tilkynningu sinni: „Undirritaður vill taka skýrt fram að miðað við þann stutta fyrirvara sem hér um ræðir þar sem óskað var eftir fundi með stjórn LH, með sólarhrings fyrirvara, tel ég mig hafa lagt mig allan fram um að leysa úr óskum félaga okkar hvað það varðar og vann að því af heilindum.“

Jónína Stefánsdóttir formaður Stíganda undrast framgöngu Haraldar. Hún segir jafnframt að hún telji afar ólíklegt að af fundi þeirra verði á morgun, 9. mars. „Okkur finnst við nú ekki hafa erindi til að fara suður eftir þessa ákvörðun um Landsmót í Reykjavík, trúlega sendum við þessar undirskriftir bara í ábyrgðarpósti.“ Jónína segir að þessi 26 félög setji sig á móti Reykjavík sem landsmótsstað en ekki síður þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafi verið. „Ákvörðun um landsmótsstað á að taka á aðalfundi eða formannafundi og í raun átti að vera búið að taka þessa ákvörðun í júlí síðastliðnum. Í þessu ljósi þykir mér mjög ólýðræðislega staðið þessari ákvarðanatöku. Það eru meira en helmingur hestamannafélaganna í LH sem að eru mótfallnir þessu.“ Spurð hvort hún telji að kominn sé upp trúnaðarbrestur milli stjórnar LH og aðildarfélaga þess sagði Jónína að henni fyndist það. „LH er samnefnari fyrir öll hestamannafélögin í landinu og þau virðast ekki vera að starfa eftir því.“

Haraldur Þórarinsson segist undrast hversu seint þessi mótmæli komi fram. „Það var vitað að við vorum búin að gefa okkur tíma til 26. febrúar að klára málið en síðan framlengdum við það um viku. Þetta var úrslitastundin þarna á föstudaginn.“ Haraldur segir það ekki hafi komið fram í samtali hans við formann Stíganda að 26 félög hefðu undirritað mótmælaskjalið. Spurður hvort það hefði breytt einhverju um undirritun samningsins segir hann ómögulegt að segja til um það. Haraldur segir að þessi mótmæli verði rædd á stjórnarfundi LH á föstudaginn. „Auðvitað skoðum við þetta, við tökum tillit til þess sem félögin vilja, það er skylda okkar.“

Af vef  www.bbl.is

 

 

Af vef  http://bbl.is

Hresst upp á minni Haraldar Þórarinssonar – opið bréf

mars 10, 2010 -  
Tilheyrir eitt og annað . . .

 

Sæll Haraldur

Vegna svars þíns við fréttatilkynningu frá Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda, sé ég mig knúna til þess að leiðrétta nokkrar staðreyndir.  Í fyrsta lagi þá tilkynnti ég starfsmanni L.H. að morgni 4. mars að erindið væri vegna Landsmóts 2012.  Hálfri klukkustund síðar hringir starfsmaðurinn, þá búinn að hafa samband við þig þar sem við (fulltrúar fjögurra hestamannafélaga af Suður- og Norðurlandi) höfðum fengið úthlutaðan fund kl: 15:30 föstudaginn 5. mars.  Um kvöldið hafðir þú síðan samband, sagðist sjálfur vera upptekinn á morgun við önnur verk og enginn gæti mætt úr stjórninni nema kannski ein manneskja.  Þú tjáðir mér að þér þætti miður að geta ekki tekið sjálfur á móti okkur og vildir bjóða okkur í mat eftir helgi.  Ég gerði þér alveg ljóst að tilefnið hafi verið að afhenda ályktanirnar frá hestamannafélögunum. Aldrei minntist þú einu orði á það hver þessi  “önnur verk”  væru sem þú varst skyndilega upptekinn við, enda brá mér mikið þegar ég sá fréttir netmiðlanna daginn eftir um að þú hafir skrifað undir samning varðandi LM 2012 í Reykjavík.  Þá finnst mér skrítið að enginn úr stjórninni hafi getað mætt kl: 15:30 þar sem ég hef fyrir satt að þú hafir fundað með þínum stjórnarmönnum kl: 16:00 þann sama dag.  Einkennilegt finnst mér að þú skulir ekki hafa beðið með stórar ákvarðanir varðandi LM 2012 þar sem þú vissir full vel að þú ættir von á afstöðu frá aðildarfélögum þeirra samtaka sem þú ert í forsvari fyrir.

Jónína Stefánsdóttir formaður Stíganda.

FRÉTTATILKYNNING

mars 8, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Fréttatilkynning frá hestamannafélögunum Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda varðandi Landsmót hestamanna 2012

Fulltrúar ofan talinna hestamannafélaga áttu pantaðan fund með Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga (LH) í gær, 5. mars kl: 15:30. Þar átti að afhenda honum skjöl undirrituð af stjórnarmönnum 26 hestamannafélaga innan LH þar sem því er mótmælt hvernig staðið er að ákvörðun um að halda Landsmót 2012 í Reykjavík. Undir miðnætti í fyrrakvöld afboðar Haraldur fundinn á þeim forsendum að hann sé upptekinn og ná ekki að boða stjórnarmenn til fundarins. Í gær (5. mars) birtist síðan frétt um að komið hafi verið á fundi milli LH og Fáks þar sem undirritaður var samningur um Landsmót í Reykjavík 2012. Furðum við okkur á vinnubrögðum formanns LH og teljum þau ólýðræðisleg og ekki unnin af heilindum. Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012.

Geysir     Léttfeti      Sindri      Stígandi

Á döfinni 2010

febrúar 9, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, eitt og annað . . .

Mót og keppnir 2010

30. – 31. janúar

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

13. – 14. febrúar

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

17. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS- deildin.  4 – gangur

Fært til 21.mars

Reiðhöllin Arnargerði Blönduósi Grunnskólamót Hestamannafélaganna.Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði

24. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  Keppt verður í  Smala og skeiði. 

27. – 28. febrúar

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

MARS

3. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin. Tölt

7. mars

Reiðhöllin Þytsheimar Hvammstanga Grunnskólamót HestamannafélagannaKeppt verður í þrígangi, fjórgangi, pollaflokki og skeiði.

10. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  Tölt

12. – 13. mars

Reiðhöllin SvaðastaðirSauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

13. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Áskorendamót Riddara Norðursins

17. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin.  5. Gangur.

21. mars

Reiðhöllin Arnargerði Blönduósi Grunnskólamót Hestamannafélaganna. Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði

24. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin. 4. gangur

27. – 28. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Barna og ungmennastarf hestamannafélaganna,Léttfeta, Stíganda og Svaða

27. mars

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Ræktun Norðurlands

APRÍL

7. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki KS – deildin. Smali og skeið

14. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Skagfirska mótaröðin.  5.gangur, skeið og tölt.

18. apríl

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Grunnskólamót hestamannafélaganna á Sauðárkróki.  Keppt veður í tölti, pollaflokki og skeiði.

MAÍ

1. maí

Reiðhöllin Svaðastaðir Sauðárkróki Æskan og hesturinn

22. maí

Sauðárkróki Firmakeppni Léttfeta

JÚNÍ – ÁGÚST

12. júní

Sauðárkróki Félagsmót Léttfeta og úrtaka fyrir Landsmót

27. júní – 4. júlí

Vindheimamelar Landsmót hestamanna Vindheimamelum

31. júlí  – 1. ágúst

Sauðárkróki Fákaflug