Stóra Ferðin!
júlí 18, 2011 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Helgina 5.-7. ágúst verður farið í stóruferð Léttfeta.
Lagt verður á stað frá Rósarrétt föstudaginn 5.ágúst klukkan 13:00,
stefnan tekin á Hrísháls og svo áfram að Fjalli í Kolbeinsdal.
Laugardag verður riðið um Kolbeinsdal. Sunnudag verður farið niður Kolbeinsdal í Kolkuós og þaðann Bakkana að Rósarrétt.
Hægt verður að koma hrossum í hólf á fimmtudag.
Þátttöku þarf að skrá fyrir þriðjudagskvöldið 2.ágúst
Nánari upplýsingar og skráning í síma 895-6417 Sara eða 861-1247 Heiðrún
ALLIR VELKOMNIR
Ferðanefndin
Jónsmessureið Léttfeta
júní 20, 2011 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Laugardaginn 25.júní verður farið í jónsmessureið Léttfeta.
Lagt verður á stað úr hesthúsahverfinu klukkan 18:00 stundvíslega.
Stefnan verður tekinn í Hegranesið þar sem stoppað verður í félagsheimilinu og grillað,
matarverði stillt í hóf að vanda.
Allir velkomnir
Ferðanefndin
Fjöldskylduferð!!!!!
júní 8, 2011 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Fjölskylduferðin sem var fyrirhuguð næstkomandi Mánudag 13.júní FRESTAST um óákveðin tíma
vegna óviðráðanlegra orsaka.
Ferðanefnd
Karla og kvennareiðin
júní 8, 2011 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Ferðanefndin vill þakka fyrir góða þátttöku í kvenna og karla reið sem fram fór föstudagskvöldið 27.maí og er meðfylgjandi mynd af vinningshöfum kvöldsins
Ferðanefnd
Karla og Kvenna Reið Léttfeta
maí 23, 2011 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Föstudaginn 27. maí !
Föstudaginn 27. maí verður farið í karla og kvenna reið Léttfeta.
Lagt verður á stað frá Tjarnarbæ klukkan 18:30 og riðin góður hringur.
Grillað verður í Tjarnarbæ á eftir og verður matarverði stillt í hóf.
Skrautlegur klæðnaður er æskilegur, verðlaun verða veitt fyrir flottasta knapann/hestinn.
Mætum sem flest og eigum góða stund saman.
Allir velkomnir !
Ferðanefndin
Drög að dagskrá sumarsins hjá ferðanefnd Léttfeta
maí 18, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd
Laugardaginn 28.maí – Karla/kvenna reiðtúr með léttu ívafi og grill í Tjarnarbæ á eftir.
Mánudaginn 13.júní (annar í Hvítasunu)- Fjölskyldureiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.
Föstudaginn 24.júní – Jónsmessureið.
Hugmynd að sameiginlegum reiðtúr á Landsmót ef áhugi er fyrir hendi.
Laugardaginn 16.júlí – Léttur reiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.
Helgina 5.-7.ágúst – Stóra ferðin.
Allir atburðir verða auglýstir nánar þegar nær dregur og þetta er einnig birt með fyrirvara um breytingar.
.
Ferðanefndin.
Leynifundur Léttfeta . . .
nóvember 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd, Fræðslu- og skemmtinefnd, Húsnefnd, Hverfisnefnd, Mótanefnd, Unglingaráð
Léttfetafélagar – Nú ætlum við að koma saman í Tjarnarbæ, klukkan 20:30 á föstudagskvöldið 19. nóvember (annaðkvöld !) og halda smá kósíkvöld.
.
ALLIR AÐ MÆTA
.
Stjórn og nefndir Léttfeta
Stóra Léttfetaferðin 6. til 8. ágúst 2010.
ágúst 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir eitt og annað . . ., Ferðanefnd
Hin árlega stóra Léttfetaferð var farin dagana 6,7 og 8 ágúst. Að þessu sinni var stefnan tekin í Austurdalinn. Hófst ferðin í Miðsitju föstudaginn 6. ágúst kl. 13,00. Þó var allnokkur hópur, sem lagði af stað frá Sjávarborg miðvikudagskvöldið 4. ágúst og reið fram í Torfgarð. Daginn eftir var svo farið úr Torfgarði niður hjá Garðhúsum og yfir Húseyjakvísl, gegnum hlaðið í Krossanesi. Farið þaðan meðfram veginum fram í Miðsitju, með stoppi á Höskuldsstöðum. Gekk þetta mjög vel, þrátt fyrir mikla bílaumferð austur Hólminn og fram Blönduhlíð.
Föstudagur 6. ágúst, lagt af stað kl. 13,00 frá Miðsitju, 18 manns og 106 hross, stoppað var í Silfrastaðarrétt. Þaðan farið í Flatatungu og Kelduland, þar sem Stebbi bóndi bauð ferðafólki uppá kaffi. Eftir kaffið hans Stebba sem er annálað fyrir gæði var haldið að Gilsbakka, það var síðasta stopp fyrir náttstað, sem var Merkigil. Komið þangað kl. 19,00. Úr Miðsitju í Merkigil eru c/a 25 km. Veðrið var mjög gott 18 til 20 stiga hiti, en það helliringdi síðustu tvo tímana. Í Merkigili biðu þau Bjössi og Edda með matinn. Tekið var hraustlega til matarins enda allir orðnir svangir. Kvöldinu var eytt með því að sagðar voru sögur, spilað og sungið.
Laugardagur 7. ágúst, lagt af stað kl. 13,00 fram að Ábæ og stoppað í gömlu steinréttinni . (það er verið að gera hana upp ) Þar skiptist hópurinn í tvennt, sumir riðu frammí Fögruhlíð. Þar sem þeir hittu Kristján í Stóradal og fleiri húnvetninga, sem voru þar í hestaferð. En hinir snéru við í Merkigil. Allir voru komnir þangað kl. 18,30. Úr Merkigili framí Fögruhlíð og í Merkigil aftur eru ca. 44 km. Sól, þurrt og 16 til 18 stiga hiti. Um kvöldið var grillað, sungið,spilað og sagðar sögur fram á kvöldið.
Sunnudagur 8.ágúst. Lagt af stað kl. 13,00. Farið yfir Jökulsárbrúna og í Bústaði. Þaðan í Birgisskarð og Tunguháls, þar sem ferðafólk borðaði nestið sitt. Næst var stoppað í Sveinsstaðarrétt. Síðasti leggurinn var í Mælifelsrétt. Þangað var komið kl. 18,30. Úr Merkigili í Mælifellsrétt eru ca. 38 km. Sól og blíða og 15 til 17 stiga hiti.
Ferðinni lauk svo formlega í Mælifellsrétt . Í ferðinni voru 24 manns og 106 hross. Eina óhappið í ferðinni var að einn hestur skarst á fæti í Austurdalnum og þurfti að koma honum með kerru til byggða.
Við í ferðanefnd Léttfeta þökkum kærlega, öllum þeim sem tóku þátt og aðstoðuðu okkur í og við ferðina.
Ferðanefnd Léttfeta.
Stóra ferðin 6.-8. ágúst
júlí 16, 2010 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Fyrirhugað er að fara í Austurdalinn.
Farið verður frá Miðsitju á Föstudag fram kjálka í Merkigil og gist þar.
Á laugardag verður riðið fram Austurdalinn og aftur í Merkigil.
Á sunnudag verður riðið niður Lýtingstaðahrepp í Mælifelsrétt.
Skrá þarf í ferðina í síðasta lagi 4.ágúst.
Kostnaði verður stillt í hóf að vanda
Upplýsingar og skráning í síma
895-6417 Sara
861-1247 Heiðrún
.
Ferðanefndin
Hestamanna hittingur !
júní 21, 2010 - Kristin
Tilheyrir Ferðanefnd
Þá er komið að Grillveislu ferðanefnda hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.
Stefnan er tekin á létta kvöldskemmtun með söng og glensi í Melsgili kl 20.00 þann 26.júní. Á staðinn mætir hinn heimsfrægi Guðjón Viðar trúbador með gítarinn og Riddarakórinn. Einnig mun Ari stjórna fjöldasöng. Svo eitthvað sé nefnt.
Vonast ferðanefndirnar til að sjá sem flesta hestamenn og aðra. Kostnaði verður haldið í lámarki.
Skrá þarf í matinn fyrir fimmtudag 24 júní.
Skráning og nánari upplýsingar hjá:
.Söru 8956417, Bjössa 8985455, Ara 8936673 og Sigfríði 8669906.
Ferðanefndirnar







