Hestamanna-hittingur

júní 9, 2010 -  
Tilheyrir Ferðanefnd

Hestamanna hittingur

Eins og staðan er í dag er félagslíf hestamanna frekar dapurt sökum hestapestar.  Lítið er um að hægt sé að fara í skipulagðar hestaferðir.  Hafa því ferðanefndir hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða ákveðið að slá til grillveislu og léttrar kvöldskemmtunar í Melsgili að kveldi 26.júní.

Nánar auglýst síðar

Ferðanefndirnar

Í loftið

Þá er loks komið að því að heimasíða okkar Léttfetsfélaga er tilbúin til notkunar. Vonandi verður þetta lifandi síða þar sem starfsemi félagsins verður kynnt hverju sinni. Umsjónarmaður síðunar verður Kristín Ármannsdóttir. Nefndir félagsins eru sérstaklega hvattar til að kynna starfsemi sína á síðunni. Öllum er frjálst að senda inn efni sem þeir telja eiga erindi til félagsmanna. Verum virk, nýtum okkur síðuna. Kveðja: Guðmundur Sv.

« Undanfarandi síða