Þjálfun í upphafi vetrar !!

janúar 28, 2012 -  
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd

Mánudagskvöldið 30. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar.
Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt.

Hvetjum alla hestamenn til að mæta og bæta við sig fróðleik.

Fræðslunefnd Léttfeta.

Þjálfun í upphafi vetrar

janúar 19, 2012 -  
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd

Mánudagskvöldið 31. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar.
Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt.

Hvetjum alla hestamenn til að mæta og bæta við sig fróðleik.

                                                                                                                  Fræðslunefnd Léttfeta.

Elhústækin

desember 9, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Smáréttahlaðborðið

Þá er lokið þessum áfanga í fjáröflun til að standa straum af tækjakaupum í eldhúsið.  Alls söfnuðust kr. 206,000  en þó vantar  í viðbót og er ætlunin að hvíla nú og safna kröftum þar til á nýju ári.

Við viljum þakka öllum sem á einhvern hátt styrktu okkur með ýmsu framlagi, vinnu, kökum, réttum, vinningum  og þeim fjölmörgu  sem komu og nutu um leið  góðs af þessu uppátæki okkar, vonum að allir hafi haft ánægju af.

 

 

Með ósk um gleðilega jólahátíð !

Fjáröflunarnefnd

Smáréttakvöld á sunnudag !

nóvember 23, 2011 -  
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd

Næstkomandi sunnudag, 27. nóvember  verður smáréttakvöld í Tjarnabæ frá kl. 18:00 – 20:00.

Nú er komið að síðasta kvöldinu á þessu ári í þessari fjáröflunarskorpu.

Boðið verður upp á ýmsa smárétti s.s. sænska jólaskinku, grafinn silung, danskt rúgbrauð, lifrarkæfu, síld, grafinn tryppavöðva, marineraðar rækjur, heita brauðrétti og litlar kjötbollur svo fátt eitt sé nefnt.

Kaffi og piparkökur á eftir.

Þátttaka í síðustu viðburðum hefur verið all góð og verið notaleg stemming, er því ekki tilvalið að fjölmenna og eiga góða kvöldstund saman í upphafi jólaföstu og endilega að taka með sér gesti.

 

Verð: 12 ára og yngri kr. 1000-, 13 ára og eldri kr. 2500-.

Kort ekki tekin.

Allir velkomnir – félagar sem og aðrir – ekki teknar niður pantanir – bara mæta á staðinn!

Fjáröflunar og skemmtinefnd

 

 

Kökubingó !

nóvember 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Kökubingó á sunnudag klukkan 14:00 í Tjarnabæ

Á Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður kökubingó í Tjarnarbæ. 1000 krónur fyrsta spjald, kaffi og vöfflur í hléi  og viðbótar spjald/spjöld á 500 krónur stykkið.

 

Smárétta kvöld verður haldið sunnudaginn 27. nóv. , Þá ætlum við að hafa gaman saman með jólalegu ívafi –  nánar auglýst síðar

Léttfetafélagar sem og aðrir velkomnir.   Vinsamlega hafið með pening sem greiðslumiðil,  kort ekki tekin.

Nefndin

 

Hrossaveisla ! 11.11.11.

nóvember 11, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Hrossakjötsveisla í Tjarnarbæ

Frá klukkan 18:00 – 20:00  verður hrossakjöt:  folald – tryppi – fullorðið: saltað, nýtt, reykt, soðið, steikt, grillað, grafið og að sjálfsögðu meðlæti sem hæfir hverjum rétti.

Það ættu flestir að finna eitthvað gómsætt  á borðinu!!  Kaffi - rússur og notalegheit á eftir. 

 

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read more

Hestamenn safna fyrir eldhústækjum.

nóvember 2, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

 Fjáröflunarnefnd Léttfeta hyggst seðja svanga maga nú í nóvember til að fjármagna ný eldhústæki í félagsheimili þeirra, Tjarnabæ, og verður byrjað nk. föstudag á bleikjuþema.

Föstudaginn 4. nóv. kl 18-19:30  verður boðið upp á nokkra bleikjurétti, kaffi og súkkulaði á eftir.  Á meðan á borðhaldi stendur munu myndir úr ferðum félagsmanna vera  sýndar á myndvarpa.

 

Föstudaginn 11. nóv. kl 18-19:30 verður boðið upp á nokkrar útfærslur á hrossakjöti,  kaffi og rússur á eftir.

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read more

Worldfengur – í kvöld

mars 22, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd

Fræðslufundur um WorldFeng í kvöld

.

Í kvöld mun fræðslunefnd hestamannafélagsins Léttfeta standa fyrir fræðslu og kynningu um veraldarvefinn WorldFeng í Tjarnabæ. Farið verður yfir hvernig hægt er að nýta sér „heimaréttina“ til skráningar á hrossum ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum.

.

Allir eru velkomnir á fræðslufundinn sem hefst klukkan 20:00, ekkert kostar inn en hægt er að fá sér nýbakaðar vöfflur og rjúkandi kaffi gegn vægu gjaldi.

.

Fræðslunefnd

Árshátíð Léttfeta

febrúar 24, 2011 -  
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd

Föstudagskvöldið 4. mars nk. verður haldin alveg snilldar árshátíð hjá hestamannafélaginu Léttfeta þar sem boðið verður upp á alveg magnaða skemmtun.

Maturinn sem verður alveg sérlega góður verður eldaður af félagsmönnum og rennur allur afrakstur til kaupa á eldhústækjum í Tjarnarbæ.

Ótrúlega mögnuð skemmtiatriði verða á dagskrá og ekki verður veislustjórinn síðri en Tryggvi Jónsson var narraður í það verk.

Geiri og Jói munu svo halda fólkinu í skagfirskri sveiflu fram á nótt.

Einungis 100 miðar eru í boði og stendur forsalan fram til kl. 20:00 þriðjudagskvöld 1. mars hjá Steinunni í síma 8650945 og Daníel í síma 8667447.

Miðaverð er hlægilega lágt eða aðeins kr. 3500- Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst stundvíslega kl. 20:00

Árshátíð Léttfeta

febrúar 12, 2011 -  
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd

Árshátíð Léttfeta verður haldin föstudagskvöldið 4. mars nk. Rétt er að fara að huga að því að taka daginn og ekki síður kvöldið frá þar sem takmarkaður fjöldi miða eru í boði.

Eins og áður verða gríðarlega skemmtileg skemmtiatriði og maturinn óborganlega góður.

Á eftir formlegri dagskrá munu hinir dugmiklu hljóðfæraleikarar Geiri og Jói halda uppi ballstemningu fram á rauða nótt.

.

Fræðslu og skemmtinefnd

Eftirfarandi síða »