Worldfengur – í kvöld
mars 22, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslufundur um WorldFeng í kvöld
.
Í kvöld mun fræðslunefnd hestamannafélagsins Léttfeta standa fyrir fræðslu og kynningu um veraldarvefinn WorldFeng í Tjarnabæ. Farið verður yfir hvernig hægt er að nýta sér „heimaréttina“ til skráningar á hrossum ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum.
.
Allir eru velkomnir á fræðslufundinn sem hefst klukkan 20:00, ekkert kostar inn en hægt er að fá sér nýbakaðar vöfflur og rjúkandi kaffi gegn vægu gjaldi.
.
Fræðslunefnd
Árshátíð Léttfeta
febrúar 24, 2011 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Föstudagskvöldið 4. mars nk. verður haldin alveg snilldar árshátíð hjá hestamannafélaginu Léttfeta þar sem boðið verður upp á alveg magnaða skemmtun.
Maturinn sem verður alveg sérlega góður verður eldaður af félagsmönnum og rennur allur afrakstur til kaupa á eldhústækjum í Tjarnarbæ.
Ótrúlega mögnuð skemmtiatriði verða á dagskrá og ekki verður veislustjórinn síðri en Tryggvi Jónsson var narraður í það verk.
Geiri og Jói munu svo halda fólkinu í skagfirskri sveiflu fram á nótt.
Einungis 100 miðar eru í boði og stendur forsalan fram til kl. 20:00 þriðjudagskvöld 1. mars hjá Steinunni í síma 8650945 og Daníel í síma 8667447.
Miðaverð er hlægilega lágt eða aðeins kr. 3500- Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst stundvíslega kl. 20:00
Árshátíð Léttfeta
febrúar 12, 2011 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Árshátíð Léttfeta verður haldin föstudagskvöldið 4. mars nk. Rétt er að fara að huga að því að taka daginn og ekki síður kvöldið frá þar sem takmarkaður fjöldi miða eru í boði.
Eins og áður verða gríðarlega skemmtileg skemmtiatriði og maturinn óborganlega góður.
Á eftir formlegri dagskrá munu hinir dugmiklu hljóðfæraleikarar Geiri og Jói halda uppi ballstemningu fram á rauða nótt.
.
Fræðslu og skemmtinefnd
Minnum á járningafræðsluna í kvöld.
febrúar 8, 2011 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslunefnd Léttfeta mun standa fyrir járningafræðslu þriðjudaginn 8. febrúar í Tjarnarbæ kl: 20:00. Járningameistarinn Kristján Elvar Gíslason mun fjalla um járningar almennt en einnig fræða okkur um hvernig best er að járna t.d klárgengann hest, hest sem er bundinn á tölti, hest með sprungna hófa o.s.frv.
.
Hvetjum alla til þess að mæta og nýta sér vitneskju og ráð frá K. Elvari.
Fræðslunefnd Léttfeta.
Járningafræðsla
febrúar 2, 2011 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslunefnd Léttfeta mun standa fyrir járningafræðslu þriðjudaginn 8. febrúar í Tjarnarbæ kl: 20:00. Járningameistarinn Kristján Elvar Gíslason mun fjalla um járningar almennt en einnig fræða okkur um hvernig best er að járna t.d klárgengann hest, hest sem er bundinn á tölti, hest með sprungna hófa o.s.frv.
Hvetjum alla til þess að mæta og nýta sér vitneskju og ráð frá K. Elvari.
Fræðslunefnd Léttfeta.
Fræðslu og skemmtinefnd
janúar 25, 2011 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Í gær kom saman fræðslu og skemmtinefnd Léttfeta. Nefndinni er ætlað að halda fræðslu fundi/erindi og skipuleggja árshátíð Léttfeta. Margar hugmyndir komu fram varðandi hvort tveggja og lítur vonandi fyrsta hugmyndin dagsins ljós nú strax í febrúar. Það var létt yfir nefndarmönnum og allir lögðu orð í belg.Í nefndinni sitja:
Páll Friðriksson, Steinunn Anna, Camilla Munk, Daniel Helgason, Björn Magni og Ólafur Smári. Nánari fréttir af dags og tímasetningum viðburða munu síðan birtast hér á síðunni.
kv Nefndin.
Leynifundur Léttfeta . . .
nóvember 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd, Fræðslu- og skemmtinefnd, Húsnefnd, Hverfisnefnd, Mótanefnd, Unglingaráð
Léttfetafélagar – Nú ætlum við að koma saman í Tjarnarbæ, klukkan 20:30 á föstudagskvöldið 19. nóvember (annaðkvöld !) og halda smá kósíkvöld.
.
ALLIR AÐ MÆTA
.
Stjórn og nefndir Léttfeta
Uppskeruhátíð – Frestað.
október 29, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Uppskeruhátíð hestamannafélaganna í Skagafirði, Léttfeta, Stíganda, Svaða og Hrossaræktarsambands Skagafjarðar, sem vera átti í Miðgarði á morgun, laugardag er frestað um óákveðinn tíma.
.
Skemmtinefndin
Uppskeruhátíð hestamanna í Skagafirði
október 26, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd
Hestafólk í Skagafirði ætlar að halda sína uppskeruhátíð í Menningarhúsinu Miðgarði laugardaginn 30. október nk. þar sem veitt verða afreksverðlaun í reiðmennsku og hrossarækt ársins auk þess sem slegið er upp balli.
Það eru hestamannafélögin í Skagafirði; Léttfeti, Stígandi og Svaði auk Hrossaræktarsambands Skagafjarðar sem standa að hátíðinni sem verður glæsileg í alla staði.
Auk verðlaunaafhendingar verður boðið upp á veislumat, 40 ára afmæli Hrossaræktarsambandsins í máli og myndum og fleira skemmtilegt.
Veislustjóri verður Tryggvi Jónsson kenndur við Dæli og Himmi Sverris mætir með spilafélaga sína þó ekki Magga Kjartans eins og misritaðist í auglýsingu og halda þeir uppi fjöri á ballinu fram á nótt.
Allt hestafólk í Skagafirði er hvatt til að taka kvöldið frá og mæta í hátíðarskapi.
Miðinn kostar kr. 6.200.- og panta verður miða í síðasta lagi miðvikudaginn 27. okt. hjá: Páli í síma 861 9842, Ingimar í síma 891 9560, Auðbjörgu í síma 698 0087 / 453 6560, Jónínu í síma 864 8208.
Byggingadómar hrossa
mars 22, 2010 - Kristin
Tilheyrir Fræðslu- og skemmtinefnd
Sýnikennsla í byggingu hrossa
Fyrirhugað er að halda sýnikennslu í byggingadómum hrossa í Reiðhöllinni Svaðastöðum þriðjudagskvöldið 23. mars næstkomandi. Kennslan hefst í Tjarnarbæ kl 20:00. Síðan verður farið yfir í reiðhöll og skoðuð bygging á nokkrum hrossum. Leiðbeinandi verður Víkingur Gunnarsson kynbótadómari og kennari við Háskólann á Hólum. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að fræðast um byggingu hrossa og þá þætti sem lagðir eru til grundvallar þegar hross kemur til dóms til þess að mæta.
Fræðslunefnd Léttfeta



