Beitarhólf
maí 28, 2011 - Kristin
Tilheyrir Hverfisnefnd
Búið er að úthluta hólfum og fengu allir hólf sem sóttu um. Eru þeir beðnir um að hafa samband við undirritaða til að fá nánari upplýsingar.
Hörður gsm: 848 4180
Stefán gsm: 860 2050
Ragnar gsm: 864 6361
Hverfisnefnd
Tiltekt á laugardag
maí 12, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Hverfisnefnd
Tiltektardagur á laugardaginn !
Byrjum kl: 10.00 og verðum eitthvað fram yfir hádegi. Hesthúsaeigendur skildugir að mæta og aðrir félagsmenn beðnir að mæta því taka þarf líka til umhverfis Tjarnarbæ og völl o.m.fl.
Léttfeti
Tiltektardagur 14. maí
apríl 29, 2011 - Kristin
Tilheyrir Hverfisnefnd
Stefnt er að tiltekt í hesthúsahverfinu og þar í kring 14. maí.
Hverfisnefndin
Beitarhólf
apríl 29, 2011 - Kristin
Tilheyrir Hverfisnefnd
Léttfetafélagar athugið !
Þeir sem óska eftir hólfum í sumar, sæki um fyrir 15. maí hjá:
Herði 8484180 – eða - Stefáni 8602050 – eða - Ragnari 8646361
ATH Þeir sem voru með hólf í fyrra sæki um aftur
Hverfisnefnd
Leynifundur Léttfeta . . .
nóvember 18, 2010 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd, Fræðslu- og skemmtinefnd, Húsnefnd, Hverfisnefnd, Mótanefnd, Unglingaráð
Léttfetafélagar – Nú ætlum við að koma saman í Tjarnarbæ, klukkan 20:30 á föstudagskvöldið 19. nóvember (annaðkvöld !) og halda smá kósíkvöld.
.
ALLIR AÐ MÆTA
.
Stjórn og nefndir Léttfeta
Tiltekt
maí 10, 2010 - Kristin
Tilheyrir Hverfisnefnd
Hesthúseigendur í Flæðigerði.
Þá fer að koma að því að gera vorverkin.
Tiltektardagur er settur á 12. maí og er mæting við Tjarnarbæ klukkan 18.00.
Allir að mæta.
Stjórnin.
Í loftið
desember 1, 2009 - admin
Tilheyrir Almennt efni, Ferðanefnd, Fræðslu- og skemmtinefnd, Húsnefnd, Hverfisnefnd, Mótanefnd, Unglingaráð
Þá er loks komið að því að heimasíða okkar Léttfetsfélaga er tilbúin til notkunar. Vonandi verður þetta lifandi síða þar sem starfsemi félagsins verður kynnt hverju sinni. Umsjónarmaður síðunar verður Kristín Ármannsdóttir. Nefndir félagsins eru sérstaklega hvattar til að kynna starfsemi sína á síðunni. Öllum er frjálst að senda inn efni sem þeir telja eiga erindi til félagsmanna. Verum virk, nýtum okkur síðuna. Kveðja: Guðmundur Sv.



