Dagskrá félagsmóts Léttfeta 2010

ágúst 20, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Félagsmót Léttfeta árið 2010

Dagskrá:

A.-flokkur (hefst kl. 12:30)

Barnaflokkur

Unglingaflokkur

Ungmennaflokkur

B.-flokkur

Kaffihlé

Úrslit:     Ungmennaflokkur (kl.16:00)

Unglingaflokkur (kl.16:30)

Barnaflokkur (kl.17:00)

B.-flokkur (kl.17:30)

A.-flokkur (kl. 18:00)

Opin skeiðkeppni: 100 m. skeið (kl.19:10)

Félagsmót Léttfeta og Firmakeppni

ágúst 20, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Félagsmót og Firmakeppni hestamannafélagsins Léttfeta  20.-21.ágúst

Firmakeppni 20.ágúst:

Firmakeppni verður haldin á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki föstudagskvöldið 20.júlí 2010.  Skráning í Tjarnarbæ milli kl. 18:00 – 19:00 en keppni hefst kl 19:30   Keppt verður í:  Barnaflokki  (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17  ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.

Félagsmót 21.ágúst:

Félagsmót verður haldið á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki laugardaginn 21.ágúst 2010.

Keppnisgreinar:    A- og B-flokkur. Barna, ungl. og ungmenna-flokkar.

Dagskrá nánar auglýst síðar.

Skráningar þurfa að berast til Guðmundar á netfang badboy@simnet.is fyrir miðvikudaginn 18.ágúst n.k.   Skráningargjald kr. 1.000,-  Gefa þarf upp nafn og kennit knapa og IS-númer hests.   ATH! Allir keppnishestar skulu skráðir í Worldfeng og í eigu félagsmanns í Léttfeta.

Opið skeiðmót í 100m skeiði:

Opið skeiðmót í 100m skeiði verður haldið þann 21.ágúst á félagssvæði Léttfeta kl 19:10.  Skráning á staðnum og skráningargjald kr. 1.000,-.

FIRMAKEPPNI

maí 10, 2010 -  
Tilheyrir Mótanefnd

Firmakeppni Léttfeta hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna smitandi hósta sem herjar nú á hross.
Firmakeppnin verður haldin þegar hestar hafa náð heilsu á ný og verður þá auglýst.
Stjórnin

Árshátíðarmót Léttfeta 2010

mars 4, 2010 -  
Tilheyrir Mótanefnd

Árshátíðarmót Léttfeta 2010

Í tilefni árshátíðar Léttfeta laugardaginn 6.mars n.k. verður sama dag haldið sérstakt Árshátíðarmót, með firmakeppnisfyrirkomulagi á beinni braut.  Keppt verður í karla og kvennaflokki.  Mótið er opið öllum Léttfetafélögum og engin þátttökugjöld.

Mótið verður haldið á keppnisvelli félagsins og byrjar kl. 13:30.   Skráning í andyri Tjarnarbæjar frá kl.12:00 til 13:00.

.

Mótanefnd Léttfeta

Öryggismál og íþróttakeppnir.

febrúar 9, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Fræðslu- og skemmtinefnd, Mótanefnd

Fræðslufundur fimmtudagskvöldið 11. febrúar, kl 20:00 í Tjarnarbæ.

Tekin verða fyrir öryggismál, Sigurbjörn Bogason frá VÍS kemur og fræðir okkur um tryggingamál.   Einnig ætlar Ísólfur Líndal Þórisson að fræða okkur um íþróttakeppni og þær reglur sem þar gilda.

Allir – ungir sem aldnir hvatti til að mæta – heitt á könnunni !

Fræðslu og skemmtinefnd  og hestaíþróttaráð

KS – deildin í kvöld, 27. janúar.

janúar 27, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Ráslisti fyrir úrtöku í KS-deild 27. janúar.

4 Gangur.

1. Viðar Bragason. Von frá Syðra-Kolugili.
2. Gestur Stefánsson. Silfurdís frá Hjallalandi.
3. Rúnar Númason. Þota frá Þrastarstöðum.
4. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir. Vígur frá Eikarbrekku.
5. Elvar Eylert Einarsson. Mön frá Lækjamóti.
6. Pernille Muller. Sorró frá Hraukbæ.
7. Hörður Óli Sæmundarson. Valli frá Vatnsleysu.
8. James Bóas Faulkner. Vígtýr frá Lækjamóti.
9. Tryggvi Björnsson. Penni frá Glæsibæ.
10. Líney María Hjálmarsdóttir. Þytur frá Húsavík.
11. Lísa Rist. Fúga frá Hestheimum.
12. Riikka Anniina. Gnótt frá Grund.
13. Þorsteinn Björnsson. Ögri frá Hólum.

.

5. Gangur.

1. Hörður Óli Sæmundarson. Hagsýn frá Vatnsleysu.
2. James Bóas Faulkner. Úlfur frá Fjalli.
3. Tryggvi Björnsson. Óðinn frá Hvítárholti.
4. Gestur Stefánsson. Stella frá Sólheimum.
5. Líney María Hjálmarsdóttir. Vaðall frá Íbishóli.
6. Rúnar Númason. Prúð frá Minni-Reykjum.
7. Pernille Muller. Spænir frá Hafrafellstungu.
8. Riikka Anniina. Styrnir frá Neðri-Vindheimum.
9. Þorsteinn Björnsson. Kilja frá Hólum.
10. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir. Venus frá Sjávarborg.
11. Lísa Rist. Táta frá Glæsibæ.
12. Viðar Bragason. Sísí frá Björgum.
13. Elvar Eylert Einarsson. Kóngur frá Lækjamóti.

.

www.svadastadir.is

Mót 2010

desember 18, 2009 -  
Tilheyrir Almennt efni, Mótanefnd

Þá er búið að ákveða mótadaga fyrir Léttfeta árið 2010.

Firmakeppnin verður haldin 22.maí.       Félagsmót og úrtaka fyrir landsmót verður 12.júní.

 Einnig er rétt að geta þess að Fákaflug verður haldið um verslunarmannahelgina.

Í loftið

Þá er loks komið að því að heimasíða okkar Léttfetsfélaga er tilbúin til notkunar. Vonandi verður þetta lifandi síða þar sem starfsemi félagsins verður kynnt hverju sinni. Umsjónarmaður síðunar verður Kristín Ármannsdóttir. Nefndir félagsins eru sérstaklega hvattar til að kynna starfsemi sína á síðunni. Öllum er frjálst að senda inn efni sem þeir telja eiga erindi til félagsmanna. Verum virk, nýtum okkur síðuna. Kveðja: Guðmundur Sv.

« Undanfarandi síða