Fellur niður !
febrúar 7, 2012 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Vegna roks þá fellur niður það sem vera átti í dag - engin kennsla heldur –
Videó upptaka sem vera átti í dag er frestað.
Kennt á fimmtudag.
Kveðja Reiðkennarar
af vef veðurstofunnar http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/nordurland_vestra/
Viðvörun
Stóra Ferðin !
ágúst 1, 2011 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Viljum minna á skráningu vegna stóru ferð Léttfeta.
Nánari upplýsingar og skráning í síma
895-6417 Sara
eða
861-1247 Heiðrún
ALLIR VELKOMNIR
Ferðanefndin
Torfgarður, félagsaðstaða hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði
júlí 13, 2011 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Laust til útleigu fyrir ferðahópa,veislur eða annað tilfallandi
Það er gistirými fyrir 10-14 manns í svefnpokaplássi
Sturta og öll eldhúsaðstaða, kolagrill.
Ágætis reiðleið að jörðinni sem er örstutt frá Varmahlíð.
Hólf fyrir ferðahesta, hesthús og stórt gerði.
Verð á nóttina 2.500 kr fyrir manninn og 250 kr.á hrossið.
Upplýsingar á netfanginu
storagrof@internet.is
eða í síma 864-8208
Hestamannafélagið Stígandi
Reiðtúr
apríl 21, 2011 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Léttfetafélagar
Gleðilegt sumar og þökk fyrir veturinn!
Á annan í páskum förum við í stuttan reiðtúr úr hesthúsahverfinu kl.14:00
Kaffisala í Tjarnarbæ á eftir kl. 16:00
Mætum sem flest og fáum okkur svo kaffi saman á eftir.
Stjórnin
Ráslisti – Grunnskólamót – Hvammstanga
apríl 2, 2011 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Ráslisti fyrir Grunnskólamót á Hvammstanga 3. apríl, mótið hefst kl. 13:00
| Fegurðarreið 1. – 3. bekkur | |||||||
| Holl | Nafn | Bekk | Skóli | Hönd | Hestur | Aldur og litur | |
| 1 | Ásdís Freyja Grímsdóttir | 3 | Húnavallaskóla | V | Hnakkur frá Reykjum | 6v | brúnskjótt |
| 1 | Vigdís María Sigurðardóttir | 3 | Gr.Austan Vatna | V | Toppur frá Sleitustöðum | 14v | brúnn |
| 2 | Freydís Þóra Bergsdóttir | 3 | Gr.Austan Vatna | H | Gola frá Ytra-Vallholti | 7v | jörp |
| 2 | Guðný Rúna Vésteinsdóttir | 3 | Varmahlíðarskóla | H | Tíbrá frá Hofstaðaseli | 6v | rauðblesóttur |
| 3 | Einar Pétursson | 1 | Húnavallaskóla | H | Jarl frá Hjallalandi | 10v | brúnn |
| 3 | Rakel Gigja Ragnarsdóttir | 1 | Gr,Húnaþings v. | H | Uggur frá Grafarkoti | 6v | brúnblesóttur |
| 4 | Bjartmar Dagur Bergþórs | 2 | Blönduskóla | H | Fagrajörp | 15v | jörp |
| 4 | Rannveig Elva Arnarsd | 2 | Gr,Húnaþings v. | H | Jasmín frá Þorkelshóli 2 | 16v | jörp |
| 5 | Björg Ingólfsdóttir | 2 | Varmahlíðarskóla | H | Hágangur frá Narfastöðum | 14v | rauðglófextur |
| 5 | Júlía Kristín Pálsdóttir | 2 | Varmahlíðarskóla | H | Ketill frá Flugumýri | 20v | bleikálóttur |
| 6 | Ásdís Freyja Grímsdóttir | 3 | Húnavallaskóla | V | Drífandi frá Steinnesi | 6v | rauðblesóttur |
| 6 | Jón Hjálmar Ingimarsson | 2 | Varmahlíðarskóla | V | Garður frá Fjalli | 7v | grár |
| 7 | Guðný Rúna Vésteinsdóttir | 3 | Varmahlíðarskóla | H | Blesi frá Litlu-tungu II | 10v | rauðblesóttur |
| 7 | Stefanía Sigfúsdóttir | 3 | Árskóla | H | Lady frá Syðra-Vallholti | 15v | brúnn |
| Read more | |||||||
Úrslit Grunnskólamóts
febrúar 21, 2011 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Þrautabraut, smali og skeið á Blönduósi
Frábærlega vel heppnað mót í Smala Grunnskólamótsins var í gær.
Sráning var mjög mikil og veðrið dásamlegt svo allt var þetta mjög gaman.
Þökkum við öllum sem að þessu móti kom á einn eða annan hátt kærlega fyrir.
FT ályktar um smitvarnarmál
desember 7, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Aðalfundur FT sl. föstudag fjallaði m.a. um smitvarnarmál og mikilvægi þeirra og var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða á fundinum:
Aðalfundur FT, haldinn á Kænunni í Hafnarfirði 3. des. 2010, skorar á félagsmenn sína og hestamenn alla að virða smitvarnarreglur til hins ítrasta. Einnig beinir fundurinn því til yfirvalda að lögð verði aukin áhersla á smitvarnir, með frekari fræðslu, kynningu og eftirliti í flug- og skipshöfnum og tekið verði á brotum af fullri einurð samkvæmt lögum.
Greinargerð:
Heilbrigði íslenska hrossastofnsins er gríðarlega mikilvægt og þess virði að vernda með öllum ráðum.
Smitsjúkdómur sá er herjað hefur á á hross á Íslandi í ár og lamað alla atvinnustarfsemi í greininni er dýrkeypt lexía sem ekki má endurtaka sig.
Nauðsynlegt er að herða verulega á smitvörnum og mætti leita upplýsinga um hvernig slíkum málum er háttað annars staðar, t.d. á Nýja-Sjálandi þar sem mikil áhersla er lögð á að vernda bústofn.
af vef Félags tamningamanna
Úrslit í Firmakeppni 2010
ágúst 25, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Úrslit í Firmakeppni Léttfeta
Firmakeppni Léttfeta fór fram föstudagskvöldið 20.ágúst s.l. og var þátttaka góð. Keppt var í fimm flokkum, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, kvennaflokki og karlaflokki. Þökkum við styrktaraðilum keppninnar fyrir þeirra stuðning. Annars voru úrslitin eftirfarandi:
Kvennaflokkur:
1. Camilla Sörensen á Blæng f. Húsavík / Fluga
2. Arndís Brynjólfsdóttir á Hlyn f. Vatnsleysu / Vörumiðlun
3. Guðrún Hanna Kristjánsdóttir á Töffara f. Hlíð / Verslun Haraldar Júlíussonar
4. Anna Lóa Guðmundsdóttir á Þyrli f. Hólkoti / Topphestar
5. Þórhildur Jakobsdóttir á Kolgerði f. V.-Leirárgörðum / Deloitte
Karlaflokkur:
1. Sigurbjörn Þorleifsson á Elvu f. Langhúsum / Trésmiðjan Ýr
2. Brynjólfur Jónsson á Koníaks-Rauð f. Reykjum / Sjóvá
3. Guðmundur Sveinsson á Spegli f. Sauðárkróki / Dýralæknaþjónusta Stefáns Friðrikssonar
4. Gunnar Eysteinsson á Stíganda f. Hofsósi / Snyrtistofan Táin
5. Árni Friðriksson á Draum f. Sauðárkróki / Króksverk
Ungmennaflokkur:
1. Hallfríður Óladóttir á Ræl f. Varmalæk / K-Tak
2. Svala Guðmundsdóttir á Hélu f. Sauðárkróki / Landsbankinn
3. Karitas Guðmundsdóttir á Gneista f. Miðhúsum / Efnalaug Sauðárkróks
4. Egill Bjarnason á Hugleik f. Hafragili / Leiðbeiningamiðstöðin
5. Sigurlína Magnúsdóttir á Sunnu f. Stóru-Ökrum / Byggðastofnun
Unglingaflokkur:
1. Steindóra Haraldsdóttir á Takt f. Varmalæk / Hádrangi
2. Friðrik Andri Atlason á Létti f. Kvistum / Fasteignasala Sauðárkróks
3. Bryndís Baldursdóttir á Tenór f. Eyjarkoti / Sauðárkrókshestar
4. Lydía Gunnarsdóttir á Geysi f. Hofsósi / Ólafshús
5. Ragnheiður Petra Óladóttir á Rán f. Skefilsstöðum / Hótel Tindastóll
Barnaflokkur:
1. Guðmar Freyr Magnússon á Blæ frá Íbishóli / K.S. Bifreiðaverkstæði
2. Hafdís Lára Halldórsdóttir á Gustur frá Hlíð / K.S. Vélaverkstæði
3. Aníta Ýr Atladóttir á Demant f. S.-Hofdölum / Tannlæknastofa Ingimundar
4. Magnús Eyþór Magnússon á Mánadís f. Íbishóli / Nýprent.
Kvennareið – allar konur velkomnar !
ágúst 17, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Kvennareið 2010
Kvennareið Stíganda
Hin árlega kvennareið Stíganda verður farin laugardaginn 28. ágúst. Lagt verður af stað frá Rósurétt við Narfastaði kl 14:00 og riðið í Brimnes og út bakkana með sjónum í Kolkuós og þaðan upp Kolbeinsdal og í Fjall. Á Fjalli verður grillað og gist.
Á sunnudeginum verður riðið niður í Laufskálarétt og yfir Hrísháls og endað í Rósurétt.
Skráning í ferðina þarf að berast í síðasta lagi sunnudaginn 22. ágúst til Klöru í síma 861-6940 eða Steinunnar í síma 865-0945
Allar konur velkomnar.
Nú styttist í Stóru Ferðina !
ágúst 4, 2010 - Kristin
Tilheyrir Uncategorized
Þeir sem ætla að koma með í Stóru Ferðina eru beðnir um drífa sig að hafa samband við Söru eða Heiðrúnu — því 4. ágúst er í dag!
Skrá þarf í ferðina í síðasta lagi 4.ágúst.
Kostnaði verður stillt í hóf að vanda
Upplýsingar og skráning í síma
895-6417 Sara
861-1247 Heiðrún
.
Ferðanefndin



