Nú styttist í Stóru Ferðina !

ágúst 4, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Þeir sem ætla að koma með í Stóru Ferðina eru beðnir um drífa sig að hafa samband við Söru eða Heiðrúnu — því 4. ágúst er í dag!

Skrá þarf í ferðina í síðasta lagi  4.ágúst.
Kostnaði verður stillt í hóf að vanda

Upplýsingar og skráning í síma
895-6417 Sara
861-1247 Heiðrún

.

Ferðanefndin

Opinn fundur á Norðurlandi um hestapestina

maí 28, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Næstkomandi Sunnudag (30. maí) munu hrossaræktarsamböndin á Norðurlandi standa fyrir opnum fundi á Hótel Varmahlíð vegna hinnar svokölluðu hestapestar. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum til hrossaræktenda og tamningamanna vegna veikinnar og gefa mönnum færi á að skiptast á skoðunum um stöðu mála. Gestir fundarins verða Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á Keldum og Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ. Fundurinn hefst kl: 20:00.

Hrossaræktarsamband Skagfirðinga

Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga

Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu

Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu


af vef horse.is

Æfing vegna Æskan og hesturinn

apríl 19, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Á morgun er æfing hjá hóp 1, klukkan 19:00.

Kveðja Pétur og Heiðrún

KS-Deildin – Tölt

mars 3, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Eftir frábæra fjórgangskeppni í KS deildinni er komið að tölti.

Það verður mikið fjör í Svaðastaðahöllinni í kvöld,  miðvikudagskvöld.

Eins og sjá má á ráslistanum eru margir sterkir hestar skráðir til leiks og ljóst er að hart verður barist.

Ráslisti

1) Elvar E. Einarsson – Mön frá Lækjarmóti

2) Líney María Hjálmarsdóttir – Þerna frá Miðsitju

3) Ragnar Stefánsson – Lotning frá Þúfum

4) Bjarni Jónasson – Komma frá Garði

5) Riikka Anniina – Gnótt frá Grund II

6) Þorsteinn Björnsson – Ögri frá Hólum

7) Magnús Bragi Magnússon – Farsæll frá Íbishóli

8 ) Sölvi Sigurðarson – Töfri frá Keldulandi

9) Þórarinn Eymundsson – Fylkir frá Þingeyrum

10) Mette Manseth – Happadís frá Stangarholti

11) Heiðrún Ósk Eymundsdóttir – Spakur frá Dýrfinnustöðum

12) Ólafur Magnússon – Gáski frá Sveinsstöðum

13) Erlingur Ingvarsson – Gerpla frá Hlíðarenda

14) Viðar Bragason – Von frá Syðra-Kolugili

15) Tryggvi Björnsson – Ólga frá Steinnesi

16) Ísólfur Líndal Þórisson – Sindri frá Leysingjastöðum

17) Þorbjörn H. Matthíasson – Týr frá Litla-Dal

18) Björn Fr. Jónsson – Aníta frá Vatnsleysu

KS-deildin.

febrúar 18, 2010 -  
Tilheyrir Uncategorized

Úrslit í 4-gangi.

Hart var barist í A og B úrslitum og hrossin á heimsmælikvarða. Margt var um manninn í höllinni og skemmtu sér vel yfir frábærri keppni. Úrslitin eru eftirfarandi
A úrslit:
1. Mette Manseth og Happadís frá Stangarholti                      7.87
2. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum                     7.83
3. Bjarni Jónasson og Komma frá Garði                                   7.63
4. Elvar E. Einarsson og Mön frá Lækjamóti                             7.37
5. Ísólfur Líndal Þórisson og Sindri frá Leysingjarstöðum 2      7.17
6. Þórarinn Eymundsson og Fylkir frá Þingeyrum                     7.13

B úrslit:
Upp í A úrslit Elvar E. Einarsson og Mön frá Lækjamóti            7.33
7. Sölvi Sigurðarson og Nanna frá Halldórsstöðum                  7.23
8. Magnús Bragi  Magnússon og Farsæll frá Íbishóli                7.20
9. Líney María Hjálmarsdóttir og Þytur frá Húsavík                  6.80

.

Næsta KS-deild er 3. mars, þá er keppt í tölti.

svadastadir.is

Fyrsti tíminn.

janúar 17, 2010 -  
Tilheyrir Almennt efni, Uncategorized, Unglingaráð

Þökkum góða þáttöku á kynningarfundinum á fimmtudagskvöldið.  Skiptingu í hópa og hvenær hver hópur á að mæta birtist innan tíðar.  

Fyrsti tími er þriðjudaginn 26. janúar.

Stjórn Barna og ungmennastarfs Léttfeta

Gleðileg Jól !

desember 24, 2009 -  
Tilheyrir Uncategorized

Léttfetafélagar   

        Gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár. 

                   Jólakveðja

« Undanfarandi síða