Videó
febrúar 6, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Vikulega starfið
Undanfarin ár þá höfum við oft haft á orði þegar líður að lokum “af hverju tókum við ekki videó þegar við byrjuðum?”, því knapar hafa oft tekið miklum framförum á tímabilinu. Nú ætlum við að láta verða af því og ætlum að taka tímann á morgun í að taka videó.
Á morgun, þriðjudag þá ætlum við að taka video af knöpum og hestum og þá viljum við fá ykkur á aðeins mismunandi tímum. Það verður hver knapi myndaður í ca 6-8 mín. og markmiðið er að knapi sýni hestinn sinn sem bestan á þeim gangtegundum sem hesturinn ræður við – sýna skal fet – tölt -brokk og stökk ef knapi treystir sér til – ekki skilyrði. Leyfilegt er að nota hlífar ef það á við. Svo er hugmyndin að mynda jafnvel aftur þegar líður á.
Vinsamlega látið vita með sms í síma 692 4666 eða 847 2685 og nafn barns ef þið komið ekki.
(Tölustafirnir vísa bara í hópanúmerin)
3 Stefanía Sigfúsdóttir 17:00
3 Aníta Atladóttir 17:10
3 Guðmunda Góa Haraldsdóttir 17:16
3 Herjólfur Hrafn Stefánsson 17:23
4 Þórdís Pálsdóttir 17:30
5 Júlía Pálsdóttir 17:38
4 Rakel Ingimarsdóttir 17:45
5 Jón Hjálmar Ingimarsson 17:52
Hlé í ca 15 mín
6 Freydís Þóra Bergsdóttir 18:15
6 Guðný Rúna Vésteinsdóttir 18:23
4 Ragna Vigdís Vésteinsdóttir 18:30
7 Freyja Sól Bessadóttir 18:37
6 Heimir Sindri Þorláksson 18:45
7 Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir 18:52
Hlé í ca 15 mín
7 Hólmar Freyr Birgisson 19:15
7 Stefanía Malen Halldórsdóttir 19:23
5 Aron Ingi Halldórsson 19:30
4 Hafrún Halldórsdóttir 19:37
1 Ásdís Elvarsdóttir 19: 45
2 Viktoría Elvarsdóttir 19: 52
Hlé í ca 15 mín
2 Þórir Árni Jóelsson 20:15
1 Sylvía Björnsdóttir 20:23
1 Ragnheiður Petra Óladóttir 20:30
2 Úrsúla Lindudóttir 20:37
2 Anna Baldvina Vagnsd. 20:45
2 Stella Finnbogadóttir 20:52
2 Benni Rúnarsson 21:00
Hópaskipting í helgarstarfi
febrúar 3, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Hópaskipting í helgarstarfi hestamannafélaganna – Léttfeta – Stíganda – Svaða
Fyrsta kennsluhelgin í helgarstarfi hestamannafélaganna 4. og 5. Febrúar. Búið er að raða í hópa og gera tímaáætlun vegna kennslunnar um helgar, skipting í hópa getur breyst og líka tímasetningar. Reiðkennarar eru Hafdís Arnardóttir og Sif Jónsdóttir.
Kennt bæði laugardag og sunnudag — höllinni skipt í tvennt - tveir hópar í kennslu í einu.
11:00 – 11:45 hópar 5 og 3
11:55 – 12:40 hópar 7 og 4
12:50 – 13:35 hópar 6 og 2
13:45 – 14:30 hópur 1
Hópur 1
Ásdís Eva Halldórsdóttir
Pálmi Þórsson
Telma Ösp Einarsdóttir
Unnur Rún Sigurpálsdóttir
Hópur 2
Halla Margrét Sigurðardóttir
Herdís María Sigurðardóttir
Ólöf Bára Birgisdóttir
Sara Líf Elvarsdóttir
Hópur 3
Alma Karen Sigurðardóttir
Ásta Lilja Gísladóttir
Hildur Heba Einarsdóttir
Sóley Dögg Maríudóttir
Hópur 4
Helena Erla Árnadóttir
Ingiberg Daði Kjartansson
Katrín Ösp Bergsdóttir
Sólrún Silfá Guðmundsdóttir
Hópur 5
Áróra Árnadóttir
Ásgrímur Þór Kjartansson
Sigurður Pétur Unnarsson
Hópur 6
Flóra Rún Haraldsdóttir
Hrefna Guðrún Gústavsdóttir
Þórgunnur Þórarinnsdóttir
Viktoría Björnsdóttir
Hópur 7
Arndís Katla Óskarsdóttir
Gísli Kristjánsson
Halldóra Sölvadóttir
Jóhann Orri Unnarsson
Sindir Sölvason
—————– Með fyrirvara um breytingar ————
Hópaskipting í vikulegastarfinu
janúar 25, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Hópaskipting vegna vikulegastarfs hestamannafélagann. Vinsamlega látið vita ef þið komist ekki með sms eða hringja..
— Birt með fyrirvara um breytingar.—
Þriðjudag. Fimmtudag
17:00 – 17:45 Hópur 3 Hópur 3
17:55 – 18:40 Hópur 4 og 5 Hópur 2
18:50 – 19:35 Hópur 6 og 7 Hópur 1
19:45 – 20:30 Hópur 1 og 2
Þri 19:45-20:30
Fim 18:50-19:35
Hópur 1 2x
Ásdís Elvarsdóttir
Sylvía Björnsdóttir
Ragnheiður Petra Óladóttir
Þri 19:45-20:30
Fim 17:55-18:40
Hópur 2 2x
Úrsúla Lindudóttir
Anna Baldvina Vagnsd.
Viktoría Elvarsdóttir
Stella Finnbogadóttir
Benni Rúnarsson
Þórir Árni Jóelsson
Þri 17:00-17:45
Fim 17:00-17:45
Hópur 3 2x
Stefanía Sigfúsdóttir
Aníta Ýr Atladóttir
Herjólfur Hrafn Stefánsson
Guðmunda Góa Haraldsdóttir
Þri 17:55-18:40
Hópur 4
Þórdís Pálsdóttir
Ragna Vigdís Vésteinsdóttir
Hafrún Halldórsdóttir
Rakel Ingimarsdóttir
Þri 17:55-18:40
Hópur 5
Aron Ingi Halldórsson
Jón Hjálmar Ingimarsson
Júlía Pálsdóttir
Þri 18:50-19:35
Hópur 6
Freydís Þóra Bergsdóttir
Guðný Rúna Vésteinsdóttir
Heimir Sindri Þorláksson
Þri 18:50-19:35
Hópur 7
Hólmar Björn Birgisson
Freyja Sól Bessadóttir
Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir
Stefanía Malen Halldórsdóttir
Hópar í dag !
janúar 24, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
I dag er mæting með hest og svo verður raðað í hópa fyrir fimmtudag
Áætlað er 20 mín á hvern hóp og sá fyrsti mæti þá klukkan 17:00 og svo næsti 20 mínútum seinna.
Ef einhver kemst ekki vinsamlega látið þá vita í síma 847 2685 Stína
| 17:00 - 1 | Stella Finnbogadóttir |
| 1 | Ragnheiður Petra Óladóttir |
| 1 | Benni Rúnarsson |
| 1 | Úrsúla Ósk Lindudóttir |
| 17:20 -2 | Anna Margrét Hörpudóttir |
| 2 | Áróra Árnadóttir |
| 2 | Helena Erla Árnadóttir |
| 2 | Telma Ösp Einarsdóttir |
| 17:45 -3 | Jón Hjálmar Ingimarsson |
| 3 | Rakel Eir Ingimarssdóttir |
| 3 | Þórir Árni Jóelsson |
| 3 | Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir |
| 18:10 -4 | Aníta Ýt Atladóttir |
| 4 | Freyja Sól Bessadóttir |
| 4 | Freydís Þóra Bergsdóttir |
| 4 | Guðný Rúna Vésteinsdóttir |
| 4 | Ragna Vigdís Vésteinsdóttir |
| 18:30 -5 | Orri Sigurbjörn Þorláksson |
| 5 | Heimir Sindri Þorláksson |
| 5 | Guðmunda Góa Haraldsdóttir |
| 5 | Hólmar Björn Birgisson |
| 18:50 – 6 | Sylvía Björnsdóttir |
| 6 | Stefanía Sigfúsdóttir |
| 6 | Anna Baldvina Vagnsdóttir |
Skráning á námskeið !
janúar 23, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Við viljum benda þeim á sem eiga eftir að skrá sig á námskeiðin í barna og ungmennastarfi hestamannafélaganna
- Léttfeta – Stíaganda - Svaða – að drífa í því.
Fyrsti dagur í vikulegastarfinu er á morgun — þriðjudag -24. janúar - helgarstarfið hefst helgina 4. – 5. febrúar.
hægt er að skrá sig með e-maili á lettfetar(hjá)gmail.com eða í síma 847 2685 – Stína eða 894 7558 – Magga
Stjórnin
Vetrarstarf hestamannafélaganna í Skagafirði
janúar 13, 2012 - Kristin
Tilheyrir Æskulýðsstarf
Vetrarstarfið
Eins og glöggir hafa séð þá var auglýst eftir reiðkennurum og eða leiðbeinendum í Sjónhorninu og þá styttist í að vetrarstarf hestamannafélagana byrji. Áætlað er að fyrirkomulag á kennslu verði með líku sniði og síðastliðinn vetur, þ.e.
vikulega starfið – kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 ,
helgarstarfið – kennt verður aðra hverja helgi = 5 helgar
Áætlað er að vikulega starfið hefjist þriðjudaginn 24. janúar, þar sem
þátttakendum verður skipt í hópa og helgarstarfið byrjar laugardaginn 28. janúar,
athugið að skiptingar í hópa geta breyst eftir fyrstu tímana.
Skráningar á netfangið lettfetar( hjá) gmail.com, í
síma 847 2685 Stína – eða - 894 7558 Magga
Einnig verða teknar niður skráningar á STÓR-BINGÓinu sem verður haldið sunnudaginn 22. janúar í Tjarnabæ, frá kl. 14:00. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs hestamannafélaganna.
Bingó!
Sunnudaginn 22. Janúar klukkan 14:00 verður haldið STÓR BINGÓ í Tjarnabæ og greint frá hvaða kennarar halda utan um vetrarstarfið í vetur. Stór glæsilegir vinningar fyrir hestamenn og einnig þá sem eru ekkert í hestum J
Grunnskólamót:
Búið er að setja niður dagsetningar á Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra, mótin hefjast öll kl. 13:00
19. Febrúar á Hvammstanga – keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Tölt 4. – 7. og 8.– 10 bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur
11. Marz á Sauðárkróki – keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Fjórgangur 4. – 7. og 8. – 10. bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur
25. Marz á Blönduósi – keppt verður í:
Þrautabraut 1. -3. bekkur, Smali 4. – 7. og 8. – 10 bekkur, Skeið 8. – 10. Bekkur
ATH. keppni í Skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.
Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða
Úlpur – Verum sýnileg !
október 20, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Mátun á úlpum!!
Þið kannski munið eftir að í vor þá viðruðum við ykkur hugmynd um að fá tilboð og styrki til að bjóða þátttakendum barnastarfsins, úlpur til kaups með lógóinu okkar og þeirra sem myndu vera svo góðir að styrkja okkur til að greiða þær eitthvað niður. Þessi áprentun (lógóin) yrði með endurskini til að auka á sýnileikann í myrkri og einnig eykur það öryggi, hvort sem flíkin er notuð þegar farið er á hestbak eða bara út að ganga ( skóli – vinna – skemmtun).
Það er boðið upp á að fullorðnir geti líka fengið sér úlpu en greiði þá hærra verð fyrir – einungis niðurgreitt til krakkanna -
Sóla er búin að vera mjög dugleg að taka niður stærðir og pantanir en einhverjir eru enn eftir og því ætlum við að vera í Tjarnarbæ annað kvöld - fimmtudag 20. okt frá kl. 20:00- 21:00 ca. Því svo sendum við pöntunina frá okkur og reiknum ekki með að það verði pantað aftur á þessu tilboðsverði – börn ca. 10.000 fer eftir styrkjum, fullorðnir eitthvað hærra — verð birt með fyrirvara um breytingar —
Félagar —- Endilega komið og lítið á þessar flottu úlpur.
VERUM SÝNILEG Í VETUR Í FLOTTUM ÚLPUM !!!!
ENDILEGA AÐ LÁTA ÞETTA BERAST til þeirra sem voru þátttakendur sem og foreldra/forrráða.
Vonumst til að þeir félagar sem hafa áhuga á úlpu komi og máti - kaffi á könnunni
Kveðja
Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða
Látið þetta ekki framhjá ykkur fara !
Æskan og hesturinn 2011 á DVD
september 16, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Sýningin Æskan og hesturinn 2011 sem haldin var í vor í reiðhöllinni Svaðastaðir, var tekinn upp og er til á DVD-diski.
Þeir sem vilja eignast eintak sendi póst á lettfetar@gmail.com eða á vjmyndir@fjölnet.is
einnig er hægt að koma við á snyrtistofunni Táin, Skagfirðingabraut 6, Sauðárkróki.
Diskurinn kostar 2,500 + sendingarkostnað ef þarf að senda.
Einnig er hægt að safna saman pöntunum á sama svæði og nýta ef einhver er á ferðinni á milli.
Æskan og hesturinn
maí 12, 2011 - Kristin
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf
Á laugardaginn var stórsýningin Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki.
Sýningarna voru tvær, kl. 13:00 og 16:00 og voru þær vel sóttar.
Þar voru mætt börn frá hestamannafélögum á norðurlandi að sýna margvíslega munsturreið, þrautabraut og fimleika á hesti, en víða erlendis er keppt í fimleikum á hesti. Veðrið var eins og áætlað var, mjög gott, sól og blíða allan daginn. Fjölmennt var á sýningunum og var gaman að sjá fjölbreytileika atriða og margvíslega búninga krakkanna. Þarna mættu tvær Mjallhvítar með dvergana sína, indíánar og kúrekar, prinsessur og prinsar, Lína langsokkur og fleiri ævintýraverur.
.
Við viljum þakka öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við undirbúning og framkvæmd þessarar stórsýningar, í formi styrkja, vinnuframlags eða hesthúsláns. Hafið öll kæra þökk fyrir.
.
Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða
Lokahóf barnastarfs hestamannafélaganna í Skagafirði
maí 2, 2011 - Kristin
Tilheyrir Unglingaráð, Æskulýðsstarf
Á miðvikudaginn næsta, 4. maí kl. 16:00 ætlum við að hittast sem flest upp á Hólum í reiðhöllina Brúnastaðir og sjá hvað verið er að gera þar. Svo skoðum við Sögusetur Íslenska hestsins og að því loknu er sund á Hólum og auðvitað gæðum við okkur svo á grilluðum pylsum og pulsum á eftir.
Þeir sem ekki komast kl.16:00 bætast við hópinn þegar þeir geta .
Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða





