Grunnskólamót – Hvammstanga

mars 28, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra 3. apríl

Sunnudaginn 3. apríl verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið klukkan 13:00 Þetta er síðasta mótið í vetur og verður spennandi að sjá hvaða skóli ber sigur úr bítum. En mest gaman er að sjá sem flesta keppendur spreyta sig og bæta sinn eigin árangur.

Æskilegt er að skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 30. mars á netfangið thyturaeska@gmail.com einnig má senda á lettfetar@gmail.com og því verður komið á ákvörðunarstað.

Keppt verður í:

1. – 3. bekkur  fegurðarreið

4. – 7. bekkur tölt

8. – 10. bekkur tölt

8. – 10. bekkur skeið

Vinsamlega lesið keppnisreglur fyrir hverja grein !

Read more

Grunnskólamót – úrslit

mars 22, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

grunnskolamot

Mjög góð þátttaka var á Grunnskólamótinu í hestaíþróttum sem haldið var í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í gær. Margir nemendur úr grunnskólum á Norðurlandi vestra tóku þátt og stóðu sig með stakriprýði. Eftirtektarvert er hvað krakkarnir eru vel ríðandi og æskulýðsstarf hestamannafélaganna hefur skilað góðum árangri.

Read more

Grunnskólamót – ráslisti

mars 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra er á sunnudag og hefst kl. 13:00  Keppt er í fegurðarreið, tví-og þrígangi, fjórgangi og skeiði.  Þetta er annað mótið í mótaröðinni og er þátttaka mjög góð 88 skráningar samtals þannig að það verður mikið um að vera við reiðhöllina Svaðastaði hér á Sauðárkróki á sunnudag.

Skráningargjöld skulu greidd áður en mót hefst og þá helst í peningum, ekki með kortum.

. Read more

Grunnskólamót á Sauðárkróki 20. marz.

mars 14, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Sunnudaginn 20. febrúar verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki og hefst mótið klukkan 13:00  Æskilegt er að skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 16. marz á netfangið lettfetar@gmail.com

Við skráningu skal koma fram:

Nafn, bekkur og skóli knapa – - nafn hests og uppruni, aldur og litur – - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.  Taka skal skýrt fram hjá 4. – 7. bekk hvort keppa á í tví- eða þrígangi.

Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða (með peningum kort ekki tekin) áður en mót hefst.

Keppt verður í:

1. – 3. bekkur  fegurðarreið

4. – 7. bekkur tví- eða þrígangur (sjá grein nr. 6. í reglum)

8. – 10. bekkur fjórgangur

8. – 10. bekkur skeið

Read more

Ekkert námskeið í dag !

mars 10, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Ákveðið er að fresta námskeiðinu sem vera átti í dag, fimmtudag 10. marz,  í vikulega-starfinu.

Kveðja stjórnin.

Helgarstarfið

febrúar 24, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Nú er kennsluhelgi framundan það ættu allir sem skráð hafa póstföngin sín að hafa fengið póst vegna breytinganna.  Kennt verður bæði laugardag og sunnudag, hópaskipti og tímasetning eru eftirfarandi:

Read more

Ráslistar fyrir Grunnskólamót

febrúar 18, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

 

Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verður haldið í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi sunnudaginn 20. febrúar kl: 13:00. Keppnisgreinar verða 1. – 3. bekkur þrautabraut þar sem eru 10 skráningar, 4 – 10. bekkur smali en þar hafa 56 skráð sig til leiks og loks 8. – 10. bekkur skeið en þar ætla 12 krakkar að láta gamminn geisa. Ráslistinn er klár og er eftirfarandi:

  Read more

Grunnskólamót á Blönduósi

febrúar 14, 2011 -  
Tilheyrir Almennt efni, Æskulýðsstarf

 Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra

verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi

sunnudaginn 20. febrúar kl: 13:00.

Skráningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti miðvikudaginn 16. feb 2011 á
 netfangið:
      neisti.net@simnet.is

 

 

Fram þarf að koma:   nafn, bekkur og skóli knapa, nafns hests, aldur, litur og keppnisgrein.

 

Keppnisgreinar eru:

1. – 3. bekkur þrautabraut
4 – 10. bekkur smali
8. – 10. bekkur skeið

Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu,
500 kr fyrir næstu skráningar        
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.

  

  þrautabrautin 1-3 bekk.doc

 

Smalabraut  4. – 7. og 8. – 10. bekkur

 

Reglur keppninnar eru:

Read more

Helgarstarfið – breytingar

febrúar 11, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Á síðustu kennsluhelgi var gerð óformleg könnun á að breyta tilhögun námskeiða, þ.e. að kenna 2x á laugardeginum og sleppa sunnudeginum.   Sumum hentar þetta vel, hjá öðrum skiptir þetta ekki máli og nokkrir vildu hafa þetta óbreytt.  Nú ætlum við að prófa að hafa þetta 2x á laugardaginn og vonumst til að þið látið vita hvernig þetta fer í ykkur.  Það eru smá breytingar á hópum – svo endilega lítið yfir nafnalistann og tímasetningar.

Hópur 6

Heimir Þorláksson
Mattías Finnbogason
Arney Björnsdóttir
Birgitta Ósk Örvarsdóttir
Pálmi Þórsson

.

Read more

Greiðslur . . . ;) !

febrúar 8, 2011 -  
Tilheyrir Æskulýðsstarf

Reikningsnúmer og upphæðir vegna reiðnámskeiða hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.  Ef systkini eru þátttakendur í sitthvoru starfinu þá greiðist fullt gjald fyrir það sem kostar meira og svo reiknast 20% systkina-afsláttur af lægra þátttökugjaldinu.  Þátttökugjöld óskast greidd fyrir 4 marz, eftir það bætast 2000 krónur við.

.

Vikulegastarfið: 1x í viku Krónur   8.000 2x í viku krónur  12.500 (-20% =10.000)

Greiðist inn á reikning 1125 – 05 – 402601   Kennitala  430269-7049.   Æskilegt að fram komi nafn barns á greiðslutilkynningu og / eða senda  email á lettfetar@gmail.com

.

Helgarstarfið.: Krónur   8.000 með 20% systkina-afslætti þá krónur  6.400

Greiðist inn á reikning 1125 – 05 – 400506   Kennitala  580408 – 0950  Æskilegt að fram komi nafn barns á greiðslutilkynningu og / eða senda  email á lettfetar@gmail.com

.

Þeir sem vilja greiða í pening þá verður einhver á staðnum á laugardag til að taka við féinu ;)  Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem ykkur finnst að betur megi fara.

Kveðja Stjórnin

« Undanfarandi síðaEftirfarandi síða »