Félagið


Þeim Eysteini Bjarnasyni, Ole Bang og Lárusi Þ Blöndal, hafði verið falið af nokkrum áhugasömum mönnum fyrir stofnun hestamannafélags í Skagafirði, að semja uppkast að lögum fyrir væntanlegt félag og boða til stofnfundar.

Annan hvítasunnudag mánudaginn 5. júní 1933 skáru þeir upp herörog hétu á alla hestavini og hestaeigendur á Sauðárkróki sérstaklega og annara utan kauptúnsins sem þeir gátu komið boðum til, að bregðast vel og drengilega við og fjölmenna á stofnfundinn, er þeir höfðu ákveðið að haldinn skyldi við vestari ós Héraðsvatna. Brugðust jafnt konur sem karlar vel við áeggjan þessari og þótti sem vænta mátti illt til afspurnar ef oft þyrfti að eggja til stofnunar slíks félagsskapar meðal Skagfirðinga.

Söfnuðust menn saman sunnan við kauptúnið og héldu af stað á hinn ákveðna fundarstað, fór það að vonum að sumir fóru hægt en aðrir hart, sem kom af því að engin skipulagsskrá hafði verið samþykkt um hegðun manna á slíku ferðalagi. Eysteinn Bjarnason las upp uppkast að lögum fyrir væntanlegt félag er nefndin hafði samið. Urðu talsverðar umræður um tillögur nefndarinnar, sétrstaklega um nafnið á félaginu.

Hafði nefndin gert að tillögu sinni að félagið héti Léttfeti og ásakaði fundarstjóri eftir að fundarmenn kæmu með fleiri tillögur. Komu ýmsar tillögur frá fundarmönnum um nafn á félagið svo sem Vakur, Stígandi, Sörli , Blakkur og fleiri.

Var gengið til atkvæða um þau nöfn sem fundarmenn og nefndin hafði stungið uppá og var nafnið Léttfeti samþykkt sem nafn félagsins með sjö athvæðum gegn sex. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu Eysteinn Bjarnason formaður, Sigurður Sigurðsson sýslumaður gjaldkeri og Lárus Blöndal ritari.

Sú ákvörðun var tekin á þessum fyrsta fundi að efna til kappreiða á sumri komanda og var það einróma álit fundarmanna að það væri eitt að aðalhlutverkum félagsins að beita sér fyrir þeim. Að þessu loknu lá ekkert annað fyrir svo fundarstjóri sagði fundi slitið en óskaði jafnframt eftir að hið nýstofnaða hestamannafélag haefði skipulegri heimferð til Sauðárkróks en er á stað var farið.