Félagsmót Léttfeta og Firmakeppni
20. ágúst 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Mótanefnd
Félagsmót og Firmakeppni hestamannafélagsins Léttfeta 20.-21.ágúst
Firmakeppni 20.ágúst:
Firmakeppni verður haldin á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki föstudagskvöldið 20.júlí 2010. Skráning í Tjarnarbæ milli kl. 18:00 – 19:00 en keppni hefst kl 19:30 Keppt verður í: Barnaflokki (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17 ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.
Félagsmót 21.ágúst:
Félagsmót verður haldið á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki laugardaginn 21.ágúst 2010.
Keppnisgreinar: A- og B-flokkur. Barna, ungl. og ungmenna-flokkar.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Skráningar þurfa að berast til Guðmundar á netfang badboy@simnet.is fyrir miðvikudaginn 18.ágúst n.k. Skráningargjald kr. 1.000,- Gefa þarf upp nafn og kennit knapa og IS-númer hests. ATH! Allir keppnishestar skulu skráðir í Worldfeng og í eigu félagsmanns í Léttfeta.
Opið skeiðmót í 100m skeiði:
Opið skeiðmót í 100m skeiði verður haldið þann 21.ágúst á félagssvæði Léttfeta kl 19:10. Skráning á staðnum og skráningargjald kr. 1.000,-.



