Fjölmenni var á fundi um kvefpestina
31. maí 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni
Af fundi hrossaræktarsmbandanna á Norðurlandi á Hótel Varmahlíð
Það var nánast fullt út úr dyrum á Hótel Varmahlíð í gærkveldi þegar hestamenn af Norðurlandi hittust til þess að ræða um kvefpestina. Ingimar Ingimarsson formaður HSS stjórnaði fundinum fyrir hönd hrossaræktarsambandanna á Norðurlandi sem voru fundarboðendur. Vilhjálmur Svansson og Sigríður Björnsdóttir fóru vel yfir stöðu mál og upplýstu fundargesti um þá vitnesku sem þau hafa aflað um þessa pest og ræddu hana í tengslum við fyrri faralda. Guðlaugur ræddi síðan um kynbótasýningar og komandi Landsmót þar sem hann lýsti m.a. annars þeirri skoðun sinni að fresta bæri Landsmóti að sinni og halda það á Vindheimamelum að ári. Í máli dýralæknanna kom m.a. fram að ekki er búið að fá það staðfest hvaða veira það er sem veldur pestinni en góðu fréttirnar eru þær að búið er að útiloka allar helstu gerðir veira sem taldir eru mjög skæðir í hrossum. Þá kom fram að gjarnan kæmi bakteríu sýking í kjölfar veirusýkingarinnar sem myndi þá lengja sjúkdómsferlið hjá hverjum hesti. Bakterían er talin geta þrifist í nokkurn tíma í umhverfinu s.s. í safnstíum og mönnum því bent á að hreinsa út úr húsum sínum til þess að minnka smitálagið. Fyrir haustið þurfa síðan allir hestamenn að þrífa og sótthreinsa hesthúsin og reiðtygin áður en starfsemi hefst að nýju í húsunum. Ein spurningin sem Sigríður fékk var um það hvort pestin gæti borist í fólk. Á meðan hún útskýrði að það væri ekki útilokað rak Guðlaugur upp allmikinn hnerra og endaði því sú umræða í almennum hlátri.
Þessi fundur var málefnalegur, umræður líflegar og trúlega gefið uggandi hestamönnum ákveðna ró að fá svör við mörgum af þeim spurningum sem fram komu þó ljóst sé að ýmislegt er enn óljóst varðandi þess óláns pest.
af vef Íslensk hrossakynning



