Grunnskólamótið á Sauðárkróki
12. apríl 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Æskulýðsstarf
Nú er komið að loka mótinu í Grunnskólamótaröð hestamannafélaga á Norðurlandi vestra.
Það verður haldið í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki
sunnudaginn 18. apríl kl. 13:00
Keppt verður í:
Fegurðarreið 1. – 3. bekkur
Tölt 4. – 7. bekkur
Tölt 8. – 10. bekkur
Skeið 8. – 10. bekkur
* ATH. 4. – 7. bekkur þarf ekki að sýna hraðabreytingar í tölti. *
Við skráningu þarf að koma fram keppnisgrein, nafn knapa, bekkur og skóli.
Nafn hests, aldur, litur og upp á hvora hönd er riðið.
Skráning þarf að berast fyrir fimmtudagskvöld 15. apríl á lettfetar@gmail.com
Skráningargjald er 1000 krónur á hest og 500 á næstu hesta og greiðist á staðnum áður en mót hefst.
Frekari upplýsingar hjá Smára í síma 8447285



