Hestamanna-hittingur
9. júní 2010 - Kristin
Tilheyrir: Ferðanefnd
Hestamanna hittingur
Eins og staðan er í dag er félagslíf hestamanna frekar dapurt sökum hestapestar. Lítið er um að hægt sé að fara í skipulagðar hestaferðir. Hafa því ferðanefndir hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða ákveðið að slá til grillveislu og léttrar kvöldskemmtunar í Melsgili að kveldi 26.júní.
Nánar auglýst síðar
Ferðanefndirnar



