Íþróttamaður Skagafjarðar

31. desember 2009 -  
Tilheyrir: Almennt efni

Bjarni Jónasson félagi í hestamannafélaginu Léttfeta stóð sig með miklum ágætum á árinu 2009. 

Keppti hann og sýndi hross víða, bæði hérlendis og erlendis.   Allsstaðar komst hann í úrslit og oftar en ekki hafði hann sigur.

Helstu afrek hans i íþróttagreinum hestamennskunnar voru eftirfarandi:

  • Héraðsmót UMSS 1.sæti tölt
  • Fjórðungsmót Vesturlands 3.sæti tölt og valinn knapi mótsins.
  • Íslandsmót í hestaíþróttum 6.sæti fjórgangur, 5.sæti tölt og 1.sæti sameigilegur árangur í fjórgangsgreinum.
  • Fákaflug 1.sæti tölt.
  • Þýska skeiðmeistaramótið 1.sæti 250m. skeið.

 Auk þessa var Bjarni með mjög góðan alhliða árangur og má þar helst nefna:

  • Sigraði bæði A og B flokk hjá Léttfeta, sigraði bæði A og B flokk á Fákaflugi.
  • Sigraði B flokk á Fjórungsmóti Vesturlands.

Hann var kjörinn kynbótaknapi Skagafjarðar og útnefndur sem einn af fimm bestu gæðingaknöpum Íslands 2009.  Einnig sýndi hann hryssu í hæsta hæfileikadóm í heiminum árið 2009.

 Bjarni er íþróttamaður góður,  algjör reglumaður og kemur ætið vel undirbúinn til keppni.  Hann er vel að titlinum Íþróttamaður Skagafjarðar kominn.