Kvennareið – allar konur velkomnar !
17. ágúst 2010 - Kristin
Tilheyrir: Uncategorized
Kvennareið 2010
Kvennareið Stíganda
Hin árlega kvennareið Stíganda verður farin laugardaginn 28. ágúst. Lagt verður af stað frá Rósurétt við Narfastaði kl 14:00 og riðið í Brimnes og út bakkana með sjónum í Kolkuós og þaðan upp Kolbeinsdal og í Fjall. Á Fjalli verður grillað og gist.
Á sunnudeginum verður riðið niður í Laufskálarétt og yfir Hrísháls og endað í Rósurétt.
Skráning í ferðina þarf að berast í síðasta lagi sunnudaginn 22. ágúst til Klöru í síma 861-6940 eða Steinunnar í síma 865-0945
Allar konur velkomnar.



