Kynningarfundur um Knapamerkin

4. janúar 2010 -  
Tilheyrir: Almennt efni

Almennur kynningarfundur um knapamerkin verður haldinn í Tjarnarbæ þriðjudagskvöldið 12. Janúar kl. 20:00.   Fundurinn er ætlaður öllum  sem vilja afla sér upplýsinga um Knapamerkin, markmið þeirra og framkvæmd.  Fyrirlesari er Helga Thoroddsen, mun hún fjalla um knapamerkin almennt. Einnig mun Arndís Brynjólfsdóttir fjalla um knapamerkin út frá kennslu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.