Landsmóti frestað
31. maí 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni
FRÉTTATILKYNNING VEGNA FRESTUNAR Á LANDSMÓTI HESTAMANNA
mánudagur 31.maí 2010
Samhljóða ákvörðun var tekin á fundi hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála, starfandi dýralæknum, fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og fulltrúa sjávar- og landbúnaðarráðuneytisins vegna smitandi hósta sem herjað hefur á hrossastofninn í landinu undanfarið.Í ályktuninni samþykkti fundurinn að fresta Landsmóti 2010 en halda það að ári, á Vindheimamelum í Skagafirði eins og til stóð á þessu ári. Fundurinn ítrekaði að þessi frestun Landsmóts um ár skyldi unnin í nánu samstarfi við Alþjóðasamtök Íslandshestafélaga (FEIF).
sjá nánar á vef lhhestar.is



