Lokahóf helgarstarfs hestamannafélaganna
21. júní 2010 - Kristin
Tilheyrir: Æskulýðsstarf
Miðvikudagskvöldið 16. júní var haldið lokahóf vegna helgarstarfs hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða. Byrjað var á að fara í sund í nýju og flottu sundlaugina á Hofsósi og skoða hana. Síðan var farið að hesthúsinu á Hofi og glæsileg aðstaða þar skoðuð. Áður en haldið var heim voru grillaðar pylsur og afhentar peysur með merki félagskaparins .
Veðrið var meiriháttar gott, eins og á sólarströnd en krakkarnir og reiðkennarar þeirra fengust þó til að stilla sér upp fyrir myndatöku í nýju peysunum.
Sumarkveðjur Stjórnin.




