Nokkur orð um fundinn með Ísólfi og VÍS
18. febrúar 2010 - Kristin
Tilheyrir: Fræðslu- og skemmtinefnd
Fræðslunefnd Léttfeta stóð á dögunum fyrir fræðslufundi um Íþróttakeppni. Ísólfur Líndal Þórisson kom og fjallaði um slíka keppni bæði frá augum dómarans og sýnandans. Ísólfur hefur starfað sem dómari í ellefu ár og tekið þátt í mörgum keppnum í gegnum árin. Hann er einn okkar besti fyrirlesari og reiddi því boðskapinn fram á mjög skiljan – og skemmtilegan hátt.
Hér á eftir kemur stutt samantekt um það helsta sem farið var yfir.
Frá augum dómarans á hesturinn að vera frjáls og fallegur. Knapi og hestur eiga að vera í sama liði og sýna vasklega framgöngu. Gangskiptingar þurfa að vera nákvæmar og mikilvægt er að hesturinn fari á þeim hraða sem knapinn vill. Afar mikilvægt er að takturinn sé góður „ekkert hopp upp á fótinn“
Mikilvægir hlutir sem hafa þarf í huga inn á vellinum.
• Hneigja sig á skammhlið bæði við upphaf og endi sýningar
• Ríða stystu leið að þeirri skammhlið sem knapinn hefur ákveðið að byrja á
• Þegar skipta á um gangtegund er mikilvægt að fara að undirbúa hestinn einni hestlengd fyrir miðlínu skammhliðar.
• Ef riðið er út úr beygju (inn á langhlið) þegar snúa á við er sýningin ógild.
• Þegar hægt tölt/yfirferðartölt er riðið og ekki hægt niður á fet þegar atriðinu er lokið heldur dettur hesturinn í brokk má draga 0,5 af einkunn.
• Hvað hraða varðar í íþróttakeppni er talað um að ríða allt að milliferð. Í gæðingakeppni er aftur á móti talað um fulla ferð.
• Reglan á að vera sú að lipur hestur fái hærri einkunn heldur en sá sem spýtist áfram.
Sýningatækni.
• Láta sýninguna ganga upp
• Gera sem mest úr því góða hjá hestinum
• Gera sem minnst úr því sem er ábótavant
• Ekki koma með hesta þreytta í keppni
• Hugsa vel út í það hvernig sé best að raða gangtegundum upp í sýningunni. Hvað röð hentar hestinum best. T.d. töltir hesturinn betur eftir stökk.
• Þegar dómarar eru staðsettir fyrir utan völlinn myndast svokallað „blint svæði“ í beygjum. Þetta svæði má nýta í það að „laga hestinn til“ ef þarf. T.d. losa um stirðan hest með því að láta hann víkja í beygjunni.
• Skrefmiklum hestum sem eiga erfitt með að tölta mjög hægt er betra að ríða aðeins hraðar á hægu ferðinni.
• Huga að heildarmynd hestsins. Fallegri heildarmynd fyrirgefst ýmislegt.
Þetta sama kvöld fengum við til okkar góða gesti frá tryggingafélaginu Vís og kynntu þeir fyrir okkur helstu tryggingar á hrossum ásamt tryggingum á reiðtygjum, hestakerrum og bílum.
Einnig var farið yfir helstu öryggisatriði í hestamennsku svo sem notkun hjálma og endurskinsmerkja.
Lýsum okkur upp í skammdeginu og notum endurskinsmerki til þess að forða slysum á okkur sjálfum eða þeim sem að á vegi okkar verða.
.
F.h Fræðslunefndar Léttfeta
Steinunn Anna Halldórsdóttir



