Vetrarstarfið
Eins og glöggir hafa séð þá var auglýst eftir reiðkennurum og eða leiðbeinendum í Sjónhorninu og þá styttist í að vetrarstarf hestamannafélagana byrji. Áætlað er að fyrirkomulag á kennslu verði með líku sniði og síðastliðinn vetur, þ.e.
vikulega starfið – kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 ,
helgarstarfið – kennt verður aðra hverja helgi = 5 helgar
Áætlað er að vikulega starfið hefjist þriðjudaginn 24. janúar, þar sem
þátttakendum verður skipt í hópa og helgarstarfið byrjar laugardaginn 28. janúar,
athugið að skiptingar í hópa geta breyst eftir fyrstu tímana.
Skráningar á netfangið lettfetar( hjá) gmail.com, í
síma 847 2685 Stína – eða - 894 7558 Magga
Einnig verða teknar niður skráningar á STÓR-BINGÓinu sem verður haldið sunnudaginn 22. janúar í Tjarnabæ, frá kl. 14:00. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs hestamannafélaganna.
Bingó!
Sunnudaginn 22. Janúar klukkan 14:00 verður haldið STÓR BINGÓ í Tjarnabæ og greint frá hvaða kennarar halda utan um vetrarstarfið í vetur. Stór glæsilegir vinningar fyrir hestamenn og einnig þá sem eru ekkert í hestum J
Grunnskólamót:
Búið er að setja niður dagsetningar á Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra, mótin hefjast öll kl. 13:00
19. Febrúar á Hvammstanga – keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Tölt 4. – 7. og 8.– 10 bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur
11. Marz á Sauðárkróki – keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Fjórgangur 4. – 7. og 8. – 10. bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur
25. Marz á Blönduósi – keppt verður í:
Þrautabraut 1. -3. bekkur, Smali 4. – 7. og 8. – 10 bekkur, Skeið 8. – 10. Bekkur
ATH. keppni í Skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.
Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða