Hrossaveisla ! 11.11.11.

11. nóvember 2011

Hrossakjötsveisla í Tjarnarbæ

Frá klukkan 18:00 – 20:00  verður hrossakjöt:  folald – tryppi – fullorðið: saltað, nýtt, reykt, soðið, steikt, grillað, grafið og að sjálfsögðu meðlæti sem hæfir hverjum rétti.

Það ættu flestir að finna eitthvað gómsætt  á borðinu!!  Kaffi - rússur og notalegheit á eftir. 

 

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read the rest of this entry »

Hestamenn safna fyrir eldhústækjum.

2. nóvember 2011

 Fjáröflunarnefnd Léttfeta hyggst seðja svanga maga nú í nóvember til að fjármagna ný eldhústæki í félagsheimili þeirra, Tjarnabæ, og verður byrjað nk. föstudag á bleikjuþema.

Föstudaginn 4. nóv. kl 18-19:30  verður boðið upp á nokkra bleikjurétti, kaffi og súkkulaði á eftir.  Á meðan á borðhaldi stendur munu myndir úr ferðum félagsmanna vera  sýndar á myndvarpa.

 

Föstudaginn 11. nóv. kl 18-19:30 verður boðið upp á nokkrar útfærslur á hrossakjöti,  kaffi og rússur á eftir.

 

Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.

 

Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn  27. nóv.

 

Read the rest of this entry »

Úlpur – Verum sýnileg !

20. október 2011

Mátun á úlpum!!

Þið kannski munið eftir að í vor þá viðruðum við ykkur hugmynd um að fá tilboð og styrki til að bjóða þátttakendum barnastarfsins, úlpur til kaups með lógóinu okkar og  þeirra sem myndu vera svo góðir að styrkja okkur til að greiða þær eitthvað niður.  Þessi áprentun (lógóin)  yrði með endurskini til að auka á sýnileikann í myrkri og einnig eykur það öryggi, hvort sem flíkin er notuð þegar farið er á hestbak eða bara út að ganga ( skóli – vinna – skemmtun).

Það er boðið upp á að fullorðnir geti líka fengið sér úlpu en greiði þá hærra verð fyrir  – einungis niðurgreitt til krakkanna -
Sóla er búin að vera mjög dugleg að taka niður stærðir og pantanir en einhverjir eru enn eftir og því ætlum við að vera í Tjarnarbæ annað kvöld -  fimmtudag 20. okt  frá kl. 20:00- 21:00 ca. Því svo sendum við pöntunina frá okkur og reiknum ekki með að það verði pantað aftur á þessu tilboðsverði – börn  ca. 10.000 fer eftir styrkjum, fullorðnir eitthvað hærra  — verð birt með fyrirvara um breytingar —

Félagar —-  Endilega komið og lítið á þessar flottu úlpur.

 

 

VERUM SÝNILEG Í VETUR Í FLOTTUM ÚLPUM !!!!

ENDILEGA AÐ LÁTA ÞETTA BERAST til þeirra sem voru þátttakendur sem og foreldra/forrráða.

Vonumst til að þeir félagar sem hafa áhuga á úlpu komi og máti  -  kaffi á könnunni

 Kveðja

Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða

 

Látið þetta ekki framhjá ykkur fara !

 

 

 

Æskan og hesturinn 2011 á DVD

16. september 2011

Sýningin Æskan og hesturinn 2011 sem haldin var í vor í reiðhöllinni Svaðastaðir, var tekinn upp og er til á DVD-diski.
Þeir sem vilja eignast eintak sendi póst á lettfetar@gmail.com eða á vjmyndir@fjölnet.is

 

 

 

einnig er hægt að koma við á snyrtistofunni Táin, Skagfirðingabraut 6, Sauðárkróki.
Diskurinn kostar 2,500 + sendingarkostnað ef þarf að senda.

Einnig er hægt að safna saman pöntunum á sama svæði og nýta ef einhver er á ferðinni á milli.

Landsmótsnefnd á ferð

12. september 2011

Landsmótsnefndin hefur síðustu tvær vikur fundað á Hornafirði, Egilsstöðum, Akureyri, Hvanneyri, Hvolsvelli og í Reykjavík.

Fundaröðinni lýkur á Blönduósi þann 13. september næstkomandi með fundi í reiðhöllinni Arnargerði kl. 20:00.

Allir hestamenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í málefnalegum umræðum um málefni landsmót, koma með fyrirspurnir og tjá skoðanir sínar.

Landsmótsnefnd og stjórnir LH og LM.

Stóra Ferðin !

1. ágúst 2011

Viljum minna á skráningu vegna stóru ferð Léttfeta.

Nánari upplýsingar og skráning í síma

895-6417 Sara

eða

861-1247 Heiðrún

ALLIR VELKOMNIR

Ferðanefndin

Stóra Ferðin!

18. júlí 2011

            

Helgina 5.-7. ágúst verður farið í stóruferð Léttfeta.
Lagt verður á stað frá Rósarrétt föstudaginn 5.ágúst klukkan 13:00,
stefnan tekin á Hrísháls og svo áfram að Fjalli í Kolbeinsdal.
Laugardag verður riðið um Kolbeinsdal. Sunnudag verður farið niður Kolbeinsdal í Kolkuós og þaðann Bakkana að Rósarrétt.
Hægt verður að koma hrossum í hólf á fimmtudag.
Þátttöku þarf að skrá fyrir þriðjudagskvöldið 2.ágúst

Nánari upplýsingar og skráning í síma 895-6417 Sara eða 861-1247 Heiðrún

                         ALLIR VELKOMNIR

Ferðanefndin

Fákaflug um verslunarmannahelgina

18. júlí 2011

 Fákaflug 2011 verður haldið á Vindheimamelum dagana 29.-31. júlí nk.

Keppt verður í A-flokk, B-flokk, Ungmennaflokk, Unglingaflokk, Barnaflokk, 100m skeiði, tölti og ef næg þátttaka fæst verður einnig keppt í 300m brokk og 250m stökk kappreiðum. Keppt verður í sérstakri forkeppni.

Skráning er hjá Guðmundi á netfanginu badboy@simnet.is og lýkur skráningu á miðnætti þann 25. júlí.

Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins við skráningu. Skráningargjald er kr. 3.000,- og skal það greiðast inn á reikning 161-26-269, kt.620269-6979 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á badboy@simnet.is.

Mótið hefst föstudagskvöldið 29. júlí kl.18:00 á forkeppni í tölti, nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Torfgarður, félagsaðstaða hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði

13. júlí 2011

 

 

Laust til útleigu fyrir ferðahópa,veislur eða annað tilfallandi
Það er gistirými fyrir 10-14 manns í svefnpokaplássi
Sturta og öll eldhúsaðstaða, kolagrill.

Ágætis reiðleið að jörðinni sem er örstutt frá Varmahlíð.
Hólf fyrir ferðahesta, hesthús og stórt gerði.

Verð á nóttina 2.500 kr fyrir manninn og 250 kr.á hrossið.
 Upplýsingar á netfanginu
storagrof@internet.is
eða í síma 864-8208

Hestamannafélagið Stígandi

Landsmót

22. júní 2011

Þeir félagar sem áhuga hafa að taka þátt í hópreiðinni á Landsmótinu sem fulltrúar Léttfeta hafi samband við Geira í síma 894 5832  eða geir@fnv.is  fyrir þriðjudagskvöld 28. júní.   

Setningarathöfnin er kl. 20:00 – 21:00 á fimmtudag 30. júní.