Þjálfun á afmörkuðu svæði, reiðhöll/reiðgerði.

20. febrúar 2012

Takið kvöldið frá !!

Mánudagskvöldið 20. febrúar (Bolludaginn) kl 20:00 í Tjarnarbæ

mun Brynjólfur Þór Jónsson reiðkennari frá Fagranesi

fjalla um þjálfun á afmörkuðu svæði ásamt reiðleiðum  og umferðarreglum í reiðhöll. Hann mun kynna fyrir okkur lokaverkefni sitt sem  hann vann í reiðkennaranáminu á Hólum og hvernig hægt er að nýta sér  reiðhöll/reiðgerði á markvissan hátt.

Hvetjum alla Léttfeta félaga sem og aðra til að koma og hlusta á fróðlegt erindi ásamt því að splæsa á sig rjómabollu og kaffi.

Fræðslunefnd Léttfeta

Úrslit í Fjórgangi

17. febrúar 2012

Næsta mót verður 29. febrúar.

Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.

Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.

 

Úrslit í Fjórgangi í Skagfirsku mótaröðinni 15. febrúar

Read the rest of this entry »

Skagfirska mótaröðin 2012

14. febrúar 2012

 

Fjórgangur

 

Skagfirska mótaröðin 2012

 

Fjórgangur 15. febrúar 2012  ( ráslisti til útprentunar )

 

Hefst miðvikudaginn 15.febrúar klukkan 18:00

 

með forkeppni í barnaflokki og úrslit riðin strax á eftir.

 

Síðan er unglingaflokkur og ungmennaflokkur kláraður.

 

Áhugamanna og meistaraflokkur reka síðan lestina með úrslitum í endann.

 

Í barna, unglinga, ungmenna og áhugamannaflokki eru tveir inn á í einu og stjórnað af þul.

 

Í meistaraflokki er einn inn á í einu.

  Read the rest of this entry »

Videó

13. febrúar 2012

Á morgun þriðjudag er videó – upptaka  af þátttakendum í virka-daga-starfi hestamannafélaganna.

Sjá lista frá fyrri viku og póst.

:)

Grunnskólamót 2012

13. febrúar 2012

 NÝJAR dagsetningar

Því miður þurfum við að breyta áður auglýstum dagsetningum fyrir Grunnskólamótin í vetur.

Mjög erfitt er að finna daga sem skarast sem minnst á við það sem er á dagskrá hjá skólunum og hestamannafélögunum, en endanlegar dagsetningar eru eftirfarandi:
4. mars , Fegurðarreið (1.-3. bekkur), Tölt (4.-10. bekkur) og Skeið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga
18. mars , Fegurðarreið (1.-3. bekkur), Tvígangur (4.-7. bekkur), Þrígangur (4.-7. bekkur), Fjórgangur (8.-10. bekkur) og Skeið í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki
25. mars , Þrautabraut (1.-3. bekkur), Smali (4.-10. bekkur) og Skeið (8.- 10.bekkur) í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.

 

 

——-  Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. ——-

 

Nánar auglýst þegar nær dregur.

 

Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra

Skagfirska mótaröðin

7. febrúar 2012

Skagfirska mótaröðinhefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í fjórgangi.

Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og  meistaraflokki.

Keppni hefst kl. 18:00 á barnaflokki. Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12.  febrúar á netfangið   fritz@mi.is.   Það verður kjötsúpa í kvöldmat eftir kl 19:00

 

Næsta mót verður 29. febrúar.

Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.  Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti.

 

Þriðja mótið verður haldið þann 14. mars.

Ungmenni, áhugamenn og meistarar  keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi.

 

Fjórða og síðasta mótið er svo áætlað 28.mars.

Í barnaflokki og unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður  keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið  í þeirri grein.

 


Skagfirska mótaröðin er stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótinu.

Fellur niður !

7. febrúar 2012

Vegna roks þá fellur niður það sem vera átti í  dag - engin  kennsla heldur –

Videó upptaka  sem vera átti í dag er frestað.

Kennt á fimmtudag.

Kveðja Reiðkennarar

Read the rest of this entry »

Hópaskipting í helgarstarfi

3. febrúar 2012

 

Hópaskipting í helgarstarfi hestamannafélaganna – Léttfeta – Stíganda – Svaða

Fyrsta kennsluhelgin í helgarstarfi hestamannafélaganna 4. og 5. Febrúar.   Búið er að raða í hópa og gera tímaáætlun vegna kennslunnar um helgar,  skipting í hópa getur breyst og líka tímasetningar.  Reiðkennarar eru Hafdís Arnardóttir og Sif Jónsdóttir.  

 

 

Kennt bæði  laugardag og sunnudag  — höllinni skipt í tvennt  -  tveir hópar í kennslu í einu.

11:00 – 11:45    hópar         5 og  3

11:55 – 12:40     hópar         6 og  4

12:50 – 13:20     hópur         7

12:50 – 13:35     hópur         2

13:45 – 14:30     hópur         1

 

  Read the rest of this entry »

Ísmót á Ólafsfjarðarvatni

1. febrúar 2012

Ísmót Gnýfara Ólafsfirði 11. febrúar n.k.  Keppt í tölti og skeiði, skráning fyrir kl. 22:00   –  9. febrúar.

sjá nánar á  -  http://gnyfari.fjallabyggd.is/is/news/istolt/

Íamót á Ólafsfjarðarvatni

Þjálfun í upphafi vetrar !!

28. janúar 2012

Mánudagskvöldið 30. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar.
Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt.

Hvetjum alla hestamenn til að mæta og bæta við sig fróðleik.

Fræðslunefnd Léttfeta.