Sameiginlega vetrarstarfið :- )
4. júní 2010 - Kristin
Tilheyrir: Æskulýðsstarf
Sameiginlega vetrarstarf hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða.
Jæja krakkar, nú er komið að því að gera eitthvað saman eins og venja hefur verið í lok vetrarstarfs okkar. Fyrirhugað er að vera með grill og glens 16. júní – nánar auglýst síðar – fylgjast með
En fyrst er peysumátun í anddyri Reiðhallarinnar á sunnudagskvöldið, 6. júní frá klukkan 18:00 til 20:00. Þá þarf að máta peysur og skrifa niður hvaða stærð hver þarf svo við getum pantað peysur með merkinu okkar á, peysurnar eru innifaldar í námskeiðisgjaldi vetrarins.
EF það eru einhverja spurningar þá má hafa samband við:
Tullan: 849 6420 . Helga: 869 2160 .Stína: 847 26850
Kveðja stjórnin



