Stóra Léttfetaferðin 6. til 8. ágúst 2010.
18. ágúst 2010 - Kristin
Tilheyrir: eitt og annað . . ., Ferðanefnd
Hin árlega stóra Léttfetaferð var farin dagana 6,7 og 8 ágúst. Að þessu sinni var stefnan tekin í Austurdalinn. Hófst ferðin í Miðsitju föstudaginn 6. ágúst kl. 13,00. Þó var allnokkur hópur, sem lagði af stað frá Sjávarborg miðvikudagskvöldið 4. ágúst og reið fram í Torfgarð. Daginn eftir var svo farið úr Torfgarði niður hjá Garðhúsum og yfir Húseyjakvísl, gegnum hlaðið í Krossanesi. Farið þaðan meðfram veginum fram í Miðsitju, með stoppi á Höskuldsstöðum. Gekk þetta mjög vel, þrátt fyrir mikla bílaumferð austur Hólminn og fram Blönduhlíð.
Föstudagur 6. ágúst, lagt af stað kl. 13,00 frá Miðsitju, 18 manns og 106 hross, stoppað var í Silfrastaðarrétt. Þaðan farið í Flatatungu og Kelduland, þar sem Stebbi bóndi bauð ferðafólki uppá kaffi. Eftir kaffið hans Stebba sem er annálað fyrir gæði var haldið að Gilsbakka, það var síðasta stopp fyrir náttstað, sem var Merkigil. Komið þangað kl. 19,00. Úr Miðsitju í Merkigil eru c/a 25 km. Veðrið var mjög gott 18 til 20 stiga hiti, en það helliringdi síðustu tvo tímana. Í Merkigili biðu þau Bjössi og Edda með matinn. Tekið var hraustlega til matarins enda allir orðnir svangir. Kvöldinu var eytt með því að sagðar voru sögur, spilað og sungið.
Laugardagur 7. ágúst, lagt af stað kl. 13,00 fram að Ábæ og stoppað í gömlu steinréttinni . (það er verið að gera hana upp ) Þar skiptist hópurinn í tvennt, sumir riðu frammí Fögruhlíð. Þar sem þeir hittu Kristján í Stóradal og fleiri húnvetninga, sem voru þar í hestaferð. En hinir snéru við í Merkigil. Allir voru komnir þangað kl. 18,30. Úr Merkigili framí Fögruhlíð og í Merkigil aftur eru ca. 44 km. Sól, þurrt og 16 til 18 stiga hiti. Um kvöldið var grillað, sungið,spilað og sagðar sögur fram á kvöldið.
Sunnudagur 8.ágúst. Lagt af stað kl. 13,00. Farið yfir Jökulsárbrúna og í Bústaði. Þaðan í Birgisskarð og Tunguháls, þar sem ferðafólk borðaði nestið sitt. Næst var stoppað í Sveinsstaðarrétt. Síðasti leggurinn var í Mælifelsrétt. Þangað var komið kl. 18,30. Úr Merkigili í Mælifellsrétt eru ca. 38 km. Sól og blíða og 15 til 17 stiga hiti.
Ferðinni lauk svo formlega í Mælifellsrétt . Í ferðinni voru 24 manns og 106 hross. Eina óhappið í ferðinni var að einn hestur skarst á fæti í Austurdalnum og þurfti að koma honum með kerru til byggða.
Við í ferðanefnd Léttfeta þökkum kærlega, öllum þeim sem tóku þátt og aðstoðuðu okkur í og við ferðina.
Ferðanefnd Léttfeta.





