Þjálfun á afmörkuðu svæði, reiðhöll/reiðgerði.

20. febrúar 2012 -  
Tilheyrir: Fræðslu- og skemmtinefnd

Takið kvöldið frá !!

Mánudagskvöldið 20. febrúar (Bolludaginn) kl 20:00 í Tjarnarbæ

mun Brynjólfur Þór Jónsson reiðkennari frá Fagranesi

fjalla um þjálfun á afmörkuðu svæði ásamt reiðleiðum  og umferðarreglum í reiðhöll. Hann mun kynna fyrir okkur lokaverkefni sitt sem  hann vann í reiðkennaranáminu á Hólum og hvernig hægt er að nýta sér  reiðhöll/reiðgerði á markvissan hátt.

Hvetjum alla Léttfeta félaga sem og aðra til að koma og hlusta á fróðlegt erindi ásamt því að splæsa á sig rjómabollu og kaffi.

Fræðslunefnd Léttfeta