Úrslit Grunnskólamóts
19. apríl 2010 - Kristin
Tilheyrir: Æskulýðsstarf
Í gær var síðasta Grunnskólamótið í hestaíþróttum í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Þar voru mættir knapar framtíðarinnar, til að keppa um veglegan farandbikar. Varmahlíðarskóli vann bikarinn í fyrra og einnig nú. Til hamingju keppnislið Varmahlíðarskóla. Í lok móts voru stigahæstu knapar mótaraðarinna verðlaunaðir, en það voru þau Guðný Rúna Vésteinsdóttir, Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Stefán Logi Grímsson. Eftir mótið var pizza-veisla fyrir keppendur áður en haldið var heim. Við eigum efalaust eftir að sjá meira af þessum krökkum í keppnum og á mótum í framtíðinni.
Úrslit í hverjum flokki urðu svo eftirfarandi:
Fegurðareið 1. – 3. bekkur
1. Guðný Rúna Vésteinsdóttir og Blesi frá Litlu-Tungu II Varmahlíðarskóli
2. Lara Margrét Jónsdóttir og Varpa frá Hofi Húnavallaskóli
3. Jón Hjálmar Ingimarsson og Flæsa frá Fjalli Varmahlíðarskóli
4. Hólmar Björn Birgisson og Tangó frá Reykjum Grunnskóli Austan Vatna
5.-6. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Funi frá Þorkelshóli Húnavallaskóli
5.-6. Guðmunda Góa Haraldsdóttir og Máni frá Árbakka Árskóli
Tölt 4. – 7. bekkur
1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Mön frá Lækjardal Varmahlíðarskóli
2. Ingunn Ingólfsdóttir og Hágangur frá Narfastöðum Varmahlíðarskóli
3. Guðmar Freyr Magnússon og Frami frá Íbishóli Árskóli
4. Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki frá Blönduósi Gr. Blönduósi
5. Rakel Eir Ingimarsdóttir og Smáralind frá S.-Skörðugili Varmahlíðarskóli
Tölt 8.-10.bekkur
1. Eydís Anna Kristófersdóttir og Spyrna frá Syðri-Reykjum Gr.Húnaþings Vestra
2. Elínborg Bessadóttir og Blesi frá Litlu-Tungu II Varmahlíðarskóli
3. Stefán Logi Grímsson og Gleði frá Sveinsstöðum Húnavallaskóli
4. Katarína Ingimarsdóttir og Johnny be good frá Hala Varmahlíðarskóli
5. Helga Rún Jóhannsdóttir og Akkur frá Nýjabæ Gr.Húnaþings Vestra
6. Friðrik Andri Atlason og Perla frá Kvistum Varmahlíðarskóli
Skeið 8.-10.bekkur
1. Fríða Marý Halldórsdóttir og Stígur frá Efri-Þverá Gr.Húnaþings Vestra
2. Stefán Logi Grímsson og Hávar frá Hofi Húnavallaskóli
3. Steindóra Ólöf Haraldsdóttir og Gneisti frá Yzta-Mói Árskóli
4. Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir og Kráka frá Starrastöðum Varmahlíðarskóli
5. Ragnheiður Petra Óladóttir og Hrekkur frá Enni Árskóli
Til hamingju krakkar !



