Vetrarstarf hestamannafélaganna í Skagafirði

13. janúar 2012 -  
Tilheyrir: Æskulýðsstarf

Vetrarstarfið

Eins og glöggir hafa séð þá var auglýst eftir reiðkennurum og eða leiðbeinendum í Sjónhorninu og þá styttist í að vetrarstarf hestamannafélagana byrji.  Áætlað er að fyrirkomulag á kennslu verði með líku sniði og síðastliðinn vetur, þ.e.
vikulega starfið – kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 ,
helgarstarfið – kennt verður aðra hverja helgi = 5 helgar

 

Áætlað er að vikulega starfið hefjist þriðjudaginn 24. janúar, þar sem
þátttakendum verður skipt í hópa og helgarstarfið byrjar laugardaginn 28. janúar,
athugið að skiptingar í hópa geta breyst eftir fyrstu tímana.

 

Skráningar á netfangið lettfetar( hjá) gmail.com, í
síma 847 2685 Stína  – eða -   894 7558 Magga

Einnig verða teknar niður skráningar á STÓR-BINGÓinu sem verður haldið  sunnudaginn 22. janúar í Tjarnabæ, frá kl. 14:00.  Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs hestamannafélaganna.

 

 

Bingó!

Sunnudaginn 22. Janúar klukkan 14:00 verður haldið STÓR BINGÓ í Tjarnabæ og greint frá hvaða kennarar halda utan um vetrarstarfið í vetur.  Stór glæsilegir vinningar fyrir  hestamenn og einnig þá sem eru ekkert í hestum  J

 

 

Grunnskólamót: 

Búið er að setja niður dagsetningar á Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra, mótin hefjast öll kl. 13:00

19. Febrúar á Hvammstanga –  keppt verður í:

Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Tölt 4. – 7. og 8.– 10 bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur

11. Marz á Sauðárkróki – keppt verður í:

Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Fjórgangur 4. – 7. og 8. – 10. bekkur, Skeið 8. – 10. bekkur

25. Marz á Blönduósi – keppt verður í:

Þrautabraut 1. -3. bekkur, Smali 4. – 7. og 8. – 10 bekkur,  Skeið 8. – 10. Bekkur

ATH.   keppni  í Skeiði  er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.

Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða