Youth Cup í Danmörku
24. febrúar 2010 - Kristin
Tilheyrir: Almennt efni, Æskulýðsstarf
Æskulýðsnefnd LH minnir áhugasama á að skila inn umsóknum á Youth Cup sem verður haldið 10.- 18. júlí nk. Mótið er haldið í Kalo í Damörku. Útvegaðir verða hestar ef óskað er. Skilyrði fyrir þátttöku: Reynsla í hestamennsku, enskukunnátta, keppnisreynsla í íþróttakeppni, sjálfstæði, geta unnið í hóp og reglusemi.
Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu LH undir æskulýðsmál og hjá æskulýðsfulltrúum LH og félaganna.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1. mars nk.
.
Sjá nánari upplýsingar undir ÆSKULÝÐSMÁL á vef LH http://www.lhhestar.is/
.
Heimasíða mótsins: www.youthcup2010.dk . Mótsstaðurinn: www.kalo.dk



